Innlent

277 milljónir í veg um Svínahraun

Verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði átti lægsta tilboð í lagningu nýs vegar um Svínahraun. KNH bauð 277 milljónir króna sem reyndist 77 prósent af kostnaðaráætlun en alls bárust níu tilboð. Verkið felst í að leggja þriggja kílómetra kafla Suðurlandsvegar fyrir neðan Hveradalabrekku, með mislægum vegamótum við Þrengslaveg, og á verkinu að vera að fullu lokið 30. september í haust. Um leið styttist hringvegurinn um einn kílómetra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×