Palestínumenn fá 22 milljarða 3. febrúar 2005 00:01
Það þarf að skerða lífeyrisréttindi Bandaríkjamanna á næstu misserum, ekki er hægt að segja til um hvenær Bandaríkjamenn fara frá Írak og Palestínumenn fá tuttugu og tvo milljarða króna í styrk frá Bandaríkjamönnum á næstu árum. Þetta er meðal þess sem kom fram í stefnuræðu George Bush Bandaríkjaforseta í Washington í gær. Bush eyddi bróðurparti ræðu sinnar í innanríkismál og þá einkum félagsmál. Hann sagði að lífeyrisréttindi Bandaríkjamanna yrði að skerða á næstu árum og áratugum, enda stefndi í að lífeyrissjóðir landsins yrðu brátt gjaldþrota ef núverandi kerfi héldist óbreytt. Stjórnvöld gætu komið til móts við fólk með skattalækkunum í staðinn svo ungt fólk gæti fjárfest í verðbréfum og hlutabréfum til þess að búa í haginn fyrir efri árin. Eins og oft áður hét Bush því að mæta af fullri hörku stjórnvöldum þeirra landa þar sem hryðjuverkamenn fengju að leika lausum hala. Nefndi hann Sýrland og Íran sérstaklega í því samhengi. Þá sagðist Bush mjög ánægður með þróun mála fyrir botni Miðjarðarhafs og hét því að Palestínumenn fengju 350 milljónir dollara í styrki frá Bandaríkjamönnum á kjörtímabilinu.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Innlent Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Innlent Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Innlent Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Innlent Rýnt í ákærurnar: „Ég fékk nóg af hatri hans“ Erlent SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Innlent Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Innlent Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Innlent Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Erlent Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum Innlent Fleiri fréttir Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Segir Kennedy hafa rekið sig fyrir að standa við vísindaleg heilindi Fjarlægðu skýrslu um pólitískt ofbeldi hægri öfgamanna Vatnaskil í dönskum varnarmálum: Ætla að kaupa langdræg vopn í fyrsta sinn Rýnt í ákærurnar: „Ég fékk nóg af hatri hans“ Segir að Navalní hafi verið myrtur í fangelsinu Bein útsending: Rauða dreglinum rúllað út fyrir Trump Evrópa sein með nýtt loftslagsmarkmið vegna óeiningar Opna tímabundna flóttaleið Ráðast í frekari rannsókn á andláti kvennanna sem létust í Laos Trump fær konunglegar móttökur í Bretlandi „Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“ Fara fram á dauðarefsingu yfir Robinson Nálægt því að draga úr flæðinu vegna drónaárása Hafa engar skýringar á margföldum gammablossa Enn ein ásiglingin við rifið umdeilda Hryðjuverkaákærum vísað frá Samþykkja að framselja Úkraínumann vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Trump-liðar heita hefndum Nefnd SÞ segir Ísraelsmenn hafa framið þjóðarmorð á Gasa Látlausar sprengjuárásir á Gasa í nótt Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Bandaríkin lýstu yfir fullum stuðningi við fyrirætlanir Ísraelsstjórnar Drápu þrjá í annarri árás á meinta smyglara Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Sjá meira
„Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“