Erlent

Á annað hundrað létust

Byggingin brennur. Þótt slökkvistarf hafi gengið vel rauk lengi úr fjölbýlishúsinu.
Byggingin brennur. Þótt slökkvistarf hafi gengið vel rauk lengi úr fjölbýlishúsinu.

Talið er að nærfellt 130 manns hafi beðið bana í gær og níutíu slasast þegar herflugvél hrapaði á íbúðarhverfi í Teheran, höfuð­borg Írans. Vélarbilun er sögð skýringin á slysinu.

Auk tíu manna áhafnar voru 84 blaða- og fréttamenn um borð í C-130 herflugvélinni sem var á leið til borgarinnar Bandar Abbas í suðurhluta landsins.

Fljótlega eftir flugtak frá flugvellinum í Teheran virðist bilun hafa komið upp í hreyflum vélarinnar og því hrapaði hún. Áður en hún féll til jarðar rakst annar vængurinn utan í tíu hæða fjölbýlishús.

Enginn sem var um borð í vélinni komst lífs af, 34 á jörðu niðri létust og níutíu slösuðust. Lögregla og slökkvilið komu fljótt á vettvang og gekk slökkvistarf ágætlega.

@Mynd -FoMed 6,5p CP:Öngþveiti Nokkur múgæsing greip um sig við slysstaðinn en lögregla reyndi að koma í veg fyrir að fólkið kæmi of nálægt. fréttablaðið/AP

Þúsundir manna söfnuðust auk þess saman á vettvangi og kom til uppþota og öngþveitis af þeim sökum. Margir viðstaddra óttuðust um ástvini sína á slysstað og varð lögregla að varna þeim vegarins sem reyndu að komast að byggingunni.

"Þetta var eins og jarðskjálfti," sagði Reza Sadeqi, kaupmaður í nágrenninu sem sá vélina hrapa. "Ég fann hitann af eldinum sem kviknaði í kjölfar slyssins. Þetta var eins og helvíti."

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, var í Sádi-Arabíu í gær en hann sendi samúðarkveðjur sínar og fullvissaði þá sem slösuðust um að um þá yrði séð. Bandarísku Lockheed-verksmiðjurnar framleiða C-130 flugvélarnar og því telja menn að vélin hafi verið frá því fyrir klerkabyltinguna 1979 þar sem grunnt hefur verið á því góða á milli Írana og Bandaríkjamanna síðan þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×