Öngþveiti í Evrópu vegna vetrarveðurs 26. nóvember 2005 07:00 Snjór í Frankfurt. Drengur í vetrarklæðum gengur eftir snævi þöktu engi með háhýsin í miðborg Frankfurt am Main í baksýn í gær.
Margur meginlandsbúinn var óviðbúinn er vetrarveðrið skall á. Þýska lögreglan sagði ótal árekstra hafa orðið á fimmtudagskvöld og föstudagsmorgun. Mörg dæmi væru um nokkurra klukkustunda umferðarteppur vegna árekstra; vörubíla sem lentu þversum eða ultu í hálkunni á hraðbrautum, fjöldaárekstra fólksbíla, útafaksturs og fleiri slíkra hálkuóhappa. Banaslys varð er sendibíll og vörubifreið skullu saman á þjóðvegi í Hessen. Að sögn lögreglu gerði það illt verra hve margir ökumenn óku enn á sumardekkjum. Á alþjóðaflugvellinum í Frankfurt am Main, fjölfarnasta flugvellinum á meginlandinu, urðu seinkanir á 87 flugleiðum eða þeim var alveg aflýst. Verkfall á Ítalíu olli aukatruflunum á flugumferð. Á meðaldegi fara á bilinu 1.300 til 1.400 flugvélar um Frankfurt-flugvöll á sólarhring. Svipaða sögu var að segja af öðrum helstu flugvöllum meginlandsins, svo sem Schiphol í Hollandi. Kona í tékkneska bænum Trest varð úti í fyrrinótt, en þar féll hitastigið í 10 gráðu frost. Í Austurríki var snjókoman hins vegar mörgum fagnaðarefni, enda opna flestir helstu vetrardvalarstaðirnir í austurrísku Ölpunum nú um helgina. Í Sviss var jafnfallinn snjór á bilinu 5 til 15 sentímetrar á láglendi sem olli miklum umferðartöfum á vegum, járnbrautum og flugvöllum. Í Skotlandi og Wales var yfir 150 skólum lokað vegna vetrarveðursins. Í norðanverðu Skotlandi urðu yfir 4.000 heimili rafmagnslaus af völdum þess. Í Englandi breyttu veðmangarar líkunum á því að það yrðu hvít jól í Lundúnum úr 7 á móti 2 í 3 á móti 1.
Erlent Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Fleiri fréttir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Sjá meira