Verðmerkingum á Laugavegi ábótavant 17. nóvember 2005 10:00 Dimmalimm. Allar vörur í gluggum verðmerktar og sagði Þóra Björg Ágústsdóttir sem þar starfar að það hefði verið regla hjá versluninni frá upphafi að hafa slíkt því það væri ekkert annað en aukin þjónusta við viðskiptavininn.
Allmargar verslanir við Laugaveg verðmerkja ekki vörur í gluggum sínum eins og lög kveða á um. Ástæðurnar eru margvíslegar en fyrst og fremst að skipt sé svo oft um vörur í gluggum þessa dagana að það sé ekki heiglum hent. Talsvert vantar upp á að verslanir við Laugaveg í Reykjavík fari að settum reglum hvað varðar verðmerkingar í gluggum verslana. Kveða reglurnar skýrt á um að öllum söluaðilum sé skylt að verðmerkja allar vörur og þjónustu með söluverði. Á það ekki síst við um vörur í verslunargluggum en mikið vantar upp á að svo hafi verið á Laugaveginum við úttekt Fréttablaðsins. Starfsfólk og eigendur verslana bera því við að þessi árstími sé sérstaklega slæmur hvað þetta varðar. Margir eigendur skipti um og breyti útstillingum sínum oftar á þessum tíma og fram að jólum en annars er eðlilegt og það geti útskýrt af hverju verðmerkingum sé áfátt. Aðrir seljendur smávöru hvers konar bentu einnig á að ekki væri auðvelt að verðmerkja margar slíkar vörur með góðu móti án þess að skyggja á vöruna sjálfa. Aðrir voru þó á því að verðmerkingar í gluggum væru aðeins enn einn hluti af sjálfsagðri þjónustu. Góð tilboð í gluggum fengi fólk frekar inn í verslunina en ella og svöluðu forvitni allra þeirra sem leið ættu um á lokunartíma. Fréttablaðið gerði svipaða könnun í Kringlunni fyrr í haust og reyndust verslanir þar að mestu hafa sitt á hreinu. Verið getur að verð og vörur breytist hraðar þegar líða fer að jólum og það hafi áhrif á samanburð þarna á milli.
Innlent Menning Mest lesið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Lífið Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Lífið „Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ Áskorun Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Lífið Tapaði ellefu milljónum Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Alæta á tónlist Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Reyndi við lúmskar Friends-spurningar Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Ungir skáksnillingar á Laufásborg unnu til verðlauna á EM Oddvitaáskorunin: Fær ekki lengur að velja tónlistina á viðburðum Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Með eina þriggja mánaða í vinnunni Oddvitaáskorunin: Erfðagóssið færi frekar til versta óvinar „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Hvað veistu um… pasta? Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Oddvitaáskorunin: Kleinan toppurinn á tilverunni Eldpiparshausar í átkeppni Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Ellefu ára þegar fyrrverandi maður Mariuh Carey vildi gera hana að stjörnu Sanna hét áður Díana Oddvitaáskorunin: Heillaðist alveg af Guðrið Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Sjá meira