Erlent

Ekki meira kossaflens

Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, er orðin hundleið á stöðugu kossaflensi karlmanna sem hún hittir. Hún frábiður sér nú frekari atlot. Arroyo segist vera siðprúð og hún muni aðeins kyssa eiginmann sinn héðan í frá. "Ég vara filippseyska karlmenn við, ef þið reynið að kyssa mig mun ég taka það óstinnt upp," sagði Arroyo á blaðamannafundi. Í kjölfarið fylgdi opinber yfirlýsing frá forsetaembættinu að enginn ætti að reyna að kyssa forsetann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×