Erlent

Sjúkrahús í endurbyggingu hrundi

Heil álma í fjögurra hæða sjúkrahúsi sem var í endurbyggingu hrundi til grunna í Kabúl í Afganistan í dag. Ekki er vitað hve margir voru í byggingunni þegar hún hrundi en ljóst er að nokkrir eru fastir í rústunum. Að sögn sjónarvotta var ekki um sprengingu að ræða en húsið hrundi skyndilega án nokkurra viðvarana. Þeir sem stóðu við sjúkrahúsið reyndu samstundis að grafa sig inn í rústirnar með berum höndunum í von um að finna slasaða. Kínverskir og afganskir verktakar sáu um endurbyggingu sjúkrahússins. Á myndinni bera þýskir hermenn sem starfa í Afganistan slasaðan mann úr rústunum. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×