Sport

Viggó sá Massenheim og Düsseldorf

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari fylgdist með leik Wallau Massenheim og Düsseldorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær þar sem Íslendingar voru bestu menn vallarins. Wallau vann 29-28. Einar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Wallau og Alexander Petterson skoraði 10. Markús Máni Michaelsson skoraði sex mörk fyrir Düsseldorf. Markús Máni var maður leiksins og hefur að öllum líkindum spilað sig inn í íslenska landsliðið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×