Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Aron Guðmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa 19. júní 2026 18:16 Gunnlaugur Árni Sveinsson endaði mótið á því að spila vel á seinni níu í dag en hinar 27 holurnar voru honum ansi erfiðar. Getty/Mike Mulholland Gunnlaugur Árni Sveinsson lék annan hringinn á sjö höggum yfir pari og endar því á 21 höggi yfir pari í frumraun sinni á Opna bandaríska risamótinu í golfi. Hann endar í neðsta sæti á mótinu en eftir daginn í dag verður skorið niður. Gunnlaugur endar í 155. sæti á mótinu eða neðsta sæti af þeim sem spiluðu tvo fyrstu hringina. Hann var fjórum höggum á eftir næsta manni sem var Rocco Repetto Taylor frá Spáni. Það gekk á ýmsu hjá Gunnlaugi á þessum afar krefjandi golfvelli en það voru heimsklassa kylfingar í vandræðum á Shinnecock Hills-golfvellinum. Þetta var mikil reynsla fyrir Gunnlaug en hann sýndi styrk með því að klára síðustu níu holurnar á einu höggi yfir pari. Á síðustu níu holunum var hann með einn fugl, einn skolla og sjö pör. Hann hafði fengið fjóra skolla og einn skramba á fyrstu níu holunum sínum í dag eftir að hafa spilað á 14 höggum yfir pari á fyrsta hringnum sem lauk ekki hjá honum fyrr en í morgun. Í beinni textalýsingu sem finna má hér neðar í fréttinni má sjá hvernig þetta gekk allt saman fyrir sig. Íslendingurinn opnaði nýjan kafla í íslenskri golfsögu í gær með því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn til þess að leika á þessu risamóti í karlaflokki.
Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira