Innlent

Gaf Skotum granítegg

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, afhenti forseta skoska þingsins nýlega gjöf frá Alþingi í tilefni af opnun nýs skosks þinghúss. Gjöfin er egg heiðargæsarinnar, mótað úr graníti sem hvílir á hraunhellu frá Þingvöllum. Í gjafabréfi með gjöfinni segir að viðgangur heiðargæsarinnar sé í höndum Íslendinga og Skota og að egg hennar minni á náin tengsl Íslendinga og Skota. Listaverkið er eftir Sigurð Guðmundsson myndlistarmann og hefur því verið fundinn staður í garði skoska þinghússins.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×