Banki stefnir Vélaborg 11. október 2004 00:01
KB banki krefst opinberrar rannsóknar á viðskilnaði fyrri eigenda á fyrirtækinu Vélum og þjónustu hf. Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur hjá KB banka, segir að óskað verði eftir opinberri rannsókn á ákveðnum þáttum í rekstri félagsins. Fyrrum eigendum Véla og þjónustu hf. hefur verið gert að skila nafninu sem þeir notuðu á nýju fyrirtæki sínu til rekstrarfélags KB banka. Bankinn rekur fyrirtækið áfram þrátt fyrir gjaldþrotið. Fyrri eigendur starfrækja sams konar fyrirtæki undir nafninu Vélaborg. Bæði fyrirtækin keppast um að ná umboðunum sem losnuðu við gjaldþrotið. Allir 39 starfsmenn Véla og þjónustu hf. fluttu með fyrri eigendum til Vélaborgar. Tveir hafa snúið til starfa hjá rekstrarfélagi gjaldþrotabúsins. Stefán Bjarnason, starfsmaður Vélaborgar og einn fyrrum eiganda Véla og þjónustu hf., segir KB banka reyna með öllum ráðum að stöðva rekstur nýja fyrirtækisins. "Bankinn þolir ekki að við, fyrri eigendur Véla og þjónustu, skyldum ekki hafa lagt upp laupana, hætt og hlaupið í felur þannig að hann gæti eignast það sem hann átti engan rétt til að eignast," segir Stefán. "Við erum óhræddir að takast á við þá fyrir dómstólum. Við teljum okkur ekki hafa gert neitt nema það sem við vorum neyddir til þar sem þeir fóru af stað með innheimtuaðgerðir á hendur gamla fyrirtækinu," segir Stefán. Þeir hafi skuldað bankanum um 65 til 70% krafnanna. Bankinn hafi ágirnst rekstur fyrirtækisins og ekki gefið þeim ráðrúm til endurfjármögnunar. Viðar Lúðvíksson, skiptastjóri Véla og þjónustu hf., segir fyrrum eigendur þrotabúsins hafa selt mikið af munum úr gamla fyrirtækinu til nýja fyrirtækisins sem þeir stofnuðu, rétt áður en það gamla varð gjaldþrota. "Þeir seldu meðal annars tölvur, tölvuþjóna, skrifstofumuni, verkfæri og verkfæralager," segir Viðar: "Þeir seldu einnig vörumerkið, nafnið, heimasíðuna og lénið; velar.is, gegn skuldajöfnuði." Viðar segir að kaupunum hafi verið rift. Fyrrum eigendur hafi skilað hluta munanna. Í skoðun sé hvort þeim beri að skila öðrum munum eða hvort þeim verði gert að borga mismuninn á verðmati þeirra og kaupverði.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira