Innlent

Ríkið þarf að veita peninginn

Formaður Kennarasambandsins segir fjárframlag frá ríkinu nauðsynlegt til að leysa kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaganna. Kennarar komu saman á baráttufundi í Háskólabíói í dag, á 22. degi kennaraverkfalls. Kennarar troðfylltu Háskólabíó. Hlýtt var á tónlist og ávörp, þar sem hvatt var til samstöðu á sama tíma og kjaradeilan virðist komin í illleysanlegan hnýt. Sextíu og tveir formlegir fundir hafa verið haldnir frá áramótum, en í gær sendi Ríkissáttasemjari menn heim og mun kalla þá aftur á sinn fund á miðvikudag. Hafi samninganefndirnar þá eitthvað nýtt fram að færa verður boðað til samningafundar, annars verður beðið. Deilendur segjast báðir hafa komið fram með tislakanir en enn ber mikið í milli. Eiríkur Jónsson, formaður kennarasambsins, virðist þó sjá fyrir sér hvernig deilan verður leyst. Hann sagðist í dag telja að launanefndin yrði einfaldlega að sækja sér meiri peninga, enda myndi það fólk sem samningurinn yrði borinn undir aldrei semja um það sem sveitarfélögin væru að bjóða upp á nú. Eiríkur sér ekki fyrir sér að ríkið höggvi á hnútinn við samningaborðið, en telur eðlilegt að þangað verðir peningarnir sóttir. Grunnskólinn sé samfélagslegt verkefni og menn geti ekki skýlt sér á bak við það að vera annað hvort ríkis- eða sveitafélagsmegin. Ríki og sveitarfélög verði einfaldlega að komast að því sín á milli hvernig finna eigi pening. Svartsýnustu menn halda því fram að kennaraverkfall vari þar til annaðhvort ríkið kemur færandi hendi, eða kennarar gefist upp á því að lifa á framlagi úr verkfallssjóði. Það virðist þó ætla að verða bið á því síðarnefnda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×