Aldraðir verða best settir 28. september 2004 00:01
Aldraðir verða ástmegir fjármálaráðherra um miðja öldina, segir Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sem í dag opinberaði nýja spá um framtíð þjóðarinnar. Að hans mati verða aldraðir best settu þegnar landsins eftir rúm þrjátíu ár, vel stæðir skattgreiðendur og engum háðir. Ásmundur kynnti þessa nýju sýn, sem hann kallar: „Aldraðir: yfirstétt framtíðarinnar," á morgunverðarfundi Tryggingastofnunar. Öldruðum fer fjölgandi, það er staðreynd og hingað til hefur verið óttast að þeir verði þá aukin byrði á þeim sem yngri eru. Af og frá, segir Ásmundur sem bendir á uppbyggingu lífeyriskerfisins og séreignarsparnað sem muni létta af almannatryggingakerfinu. Þá telur hann að aldraðir munu skila meiru til ríkisins en sem samsvarar kostnaði við þjónustu við þá. Hann segir að fari fólk á elliheimili borgi það sjálft fyrir, hingað til hafi fólk hins vegar ekki átt pening til þess, en það muni reytast þegar fram líði stundir og það sama eigi við um hjúkrunarheimilin. Því verði aukningin á kostnaði heilbrigðiskerfisins minni en að menn hafi verið að gera ráð fyrir. Það sem mestu skipti sé að þar sem aldraðir muni hafa meiri pening, í raun svipaðan og þeir sem séu í starfi, muni þeir borga hærri skatta og því verði vöxtur skattgreiðslna þeirra til ríkisins meiri en kostnaðaraukinn. Ólafur Ólafsson, formaður samtaka aldraðra í Reykjavík, segir að gangi þetta eftir verði það mjög ánægjulegt fyrir eldra fólk, þar sem það losi tak stjórnmálamanna á hag eldri borgara Ólafur vill kenna stjórnmálamönnum um að 30% ellilífeyrisþega nái ekki endum saman en samkvæmt kenningum Ásmundar verða aldraðir framtíðarinnar óháðir stjórnmálamönnum þar sem tekjur þeirra verða þegar komnar í hús ef svo má segja. Framtíðin bjarta er þó einungis björt ef hægt er að njóta hennar og þegar kemur að því virðist nútíminn duga ágætlega. Ólöf Konráðsdóttir, ellilífeyrisþegi, segir að við séum afar heppin að eiga hér fínt heilbrigðiskerfi og frábæra lækna, sem finni lausnir á nánast öllum vandamálum. Hún segist þakklát fyrir að vera svo heilbrigð á þessum aldri og segist nánast endurnýjuð, með alls konar varahluti eins og gamli Ford.
Fréttir Innlent Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Knapi datt af baki Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira