Þykir mikið til Barnahússins koma 8. september 2004 00:01
Silvia Svíadrottning segir að sér þyki mikið til Barnahússins á Íslandi koma og að það sé fyrirmynd fyrir önnur lönd. Hún og konungurinn eru ánægð með Íslandsheimsókn sína, þótt veðrið hefði mátt vera betra. Sænski ríkisarfinn, Viktoría prinsessa, fór snemma í morgun í Latabæ og hitti þar fyrir íþróttaálfinn, Glanna glæp og Sollu stirðu svo einhverjir séu nefndir og virtist skemmta sér hið besta. Að lokinni dvölinni í Latabæ fór hún ásamt konungsjónunum, forsetahjónunum og fylgdarliði austur að Nesjavöllum og þaðan til Þingvalla. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við gestina og skyggni þannig að ekki var reynt að rýna fram af Hakinu eins og til stóð, heldur brunað niður Almannagjá í rútu og á Lögberg þar sem farið var yfir sögu staðarins. Í Þingvallabænum gafst gestunum færi á að þurrka sér og hlýja í boði forsætisráðherra og var dvalið þar um hríð, en hádegisverður snæddur í Valhöll. Á leið til Reykjavíkur var komið við á Gljúfrasteini, þar sem Auður Laxness ekkja Nóbelskáldsins hitti gestina. Í dagslok var ánægja með daginn og heimsóknina. Karl XVI Gústaf Svíakonungur, minntist á að veðrið hefði mátt vera betra. Þetta væri þriðja heimsókn hans til landsins. Hann sagði Reykjavík hafa vaxið mikið og tók sérstaklega eftir því að allt væri orðið grænna en fyrir 30 árum. Silvia drottning lagði mikla áherslu á að kynnast málefnum íslenskra barna. Í gær heimsótti hún Barnaspítala Hringsins og segir hún að sér þyki mikið til starfs Hringskvenna koma, krafts þeirra, frumkvæðis og umhyggju. Í dag heimsótti hún síðan Barnahúsið og sagðist hún hafa heyrt margt um það meðal annars á ráðstefnu sem hún sótti. Hún segir húsið vera frábæra fyrirmynd og vonar að önnur ríki taki sig á við að bæta líf barna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi. Hún segir að í Reykjavík hafi þetta verið gert á mjög manneskjulegan og hlýjan hátt á grundvelli barnanna.
Fréttir Innlent Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Fullir í flugi Innlent „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Innlent Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Erlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Fleiri fréttir Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Sjá meira