Sharon gefur líklega eftir 6. ágúst 2004 00:01
Aríel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, ætlar líklega að gefa Gaza-svæðið eftir til Palestínumanna og þess í stað að efla landnemabyggðir á Vesturbakkanum. Ísraelski herinn hefur að hluta dregið sig frá norður Gaza-svæðinu og Sharon heldur fast í áætlanir um að leggja niður landnemabyggðir á svæðinu. Fréttir í gær sögðu hins vegar frá því að Ísraelsmenn hefðu áhuga á því að tengja stærstu landnemabyggðina á Vesturbakkanum við borgina Jerúsalem en Sharon neitar því. Landnemabyggðin á Vesturbakkanum sem um ræðir er stærsta landnemabyggð Ísraela á Vesturbakkanum og þar búa yfir þrjátíu þúsund manns. Sharon ætlar að fjölga íbúðum á svæðinu um sex hundruð en þær áætlanir eru allt að tíu ára gamlar. Það er því ljóst að Sharon ætlar ekki að gefa eftir þetta og önnur svæði á Vesturbakkanum. Nokkrir kílómetrar eru á milli byggðarinnar og Jerúsalems. Ljóst er að alþjóðasamfélagið myndi aldrei samþykkja slíka sameiningu. Ísraelsmenn hafa yfir að ráða fjörutíu prósentum af Vesturbakkanum sem ættu samkvæmt Oslóarsamkomulaginu að heyra undir Palestínu. Ísrael hertók Vesturbakkann árið 1967 og hefur smám saman verið að auka við landnemabyggðir sínar. Ísraelar hafa opnað landamæri Gaza-svæðisins og Egyptalands eftir mikinn þrýsting frá Evrópusambandinu og Sameinuðu þjóðunum. Yfir tvö þúsund Palestínumenn sátu fastir í Egyptalandi og höfðust í og við landamærastöð og þurfti egypski Rauði krossinn að dreifa matvælum á meðal fólksins. Ísraelar lokuðu landamærunum því þeir grunuðu að Palestínumenn væru að smygla vopnum frá Egyptalandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Innlent Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Fleiri fréttir Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Sjá meira