Erlent

Kettir klónaðir

Erfðarvísindafyrirtæki í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hefur í fyrsta sinn klónað tvo ketti en frumgerðin er kötturinn Tahini, köttur forstjóra fyrirtækisins. Markmiðið er að geta klónað gæludýr fyrir fólk sem finnst erfitt að sjá á eftir dýrunum sínum. Að sögn forstjórans ætlar fyrirtækið að klóna fleiri ketti síðar á árinu og verða sex þeirra seldir fyrir 500 þúsund íslenskar krónur hver. Ekki eru allir ánægðir með þessa þróun og dýraverndunarfélög í Bandaríkjunum benda á að heilbrigðir kettir séu svæfðir og yfirgefnir svo tugþúsundum skiptir í Bandaríkjunum á hverju ári og því sé engin þörf á því að búa til fleiri ketti með slíkum öfgakenndum aðferðum. Myndin er af klónuðu eintökum Tahinis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×