Ný öryggislög samþykkt í Írak 7. júlí 2004 00:01
Ríkisstjórn Íraks hefur samþykkt ný öryggislög til að auðvelda baráttuna við herskáa uppreisnarmenn í landinu. Bardagar héldu áfram á götum Bagdad í dag. Róstursamt hefur verið í höfuðborg Íraks síðustu sólarhringa og telur bráðabirgðastjórnin í Bagdad mikilvægt að bregðast við með strangari öryggisreglum. Að sögn heilbrigðisyfirvalda féllu að minnsta kosti fjórir og yfir tuttugu særðust í hörðum götubardaga í dag. Þá særðust nokkrir lögreglumenn í árás sem gerð var á lögreglustöð í borginni. Öflugar sprengingar heyrðust í Bagdad í allan dag og virðist sem sprengjum hafi verið varpað á græna svæðið sem umlykur höfuðstöðvar Bandaríkjahers í borginni. Sömu sögu var að segja við skrifstofur stjórnmálaflokks nýs forsætisráðherra Íraks, Iyads Allawis. Þar sprungu fjórar öflugar sprengjur og urðu margir sárir. Í öðru hverfi borgarinnar fann lögregla bíl hlaðinn 750 kílóum af sprengiefni. Á sama tíma kynnti dómsmálaráðherra Íraka ný öryggislög stjórnarinnar til að bregðast við svo til endalausum skærum í landinu. Samkvæmt lögunum fá stjórnvöld auknar heimildir til að bregðast við með ýmsum hætti, s.s. með útgöngubanni og húsleitum, og þá geta öryggissveitir hneppt grunaða vígamenn fyrirvararlaust í varðhald í allt að 60 daga. Enda þótt Írakar hafi formlega tekið við völdum í landinu mun Bandaríkjaher áfram aðstoða Íraka í átökum gegn uppreisnarmönnum. Sú staðreynd stappar aðeins stálinu í vígamenn sem segjast fylgja Guði gegn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira