Þingið leyndi hækkuninni 30. nóvember 2004 00:01
Alþingi leyndi landsmenn fyrirætlun sinni um að taka fyrir hækkun áfengisgjalds á þinginu í gær. Þetta var gert svo almenningur hamstraði ekki sterka drykki og tóbak í stórum stíl. Það varð að samþykkja frumvarp fjármálaráðherra um hækkun gjaldsins með afbrigðum þar sem það var ekki sett á dagskrá þingsins í fyrradag eins og þingskaparlög gera ráð fyrir. Ástæðan eru áhyggjur þingmanna af því að almenningur myndi flykkjast í áfengisverslanir og hamstra sterkt áfengi og tóbak. Þess vegna var málinu lætt í gegnum þingið, afar hljóðlega. Samkvæmt frumvarpinu hækkar áfengisgjald um 7% og tóbaksgjald einnig um 7%. Áfengisgjald af léttu víni og bjór hækkar ekki. Telja má að smásöluverð á sterku víni hækki um u.þ.b. 5,6% og verð á tóbaki um 3,7% að jafnaði. Tekjuauki ríkissjóðs vegna þessara hækkana nemur allt að 340 milljónum króna samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins. Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér ályktun þar sem segir að 7% hækkun áfengisgjalds, sem Alþingi samþykkti í gærkvöldi, gangi þvert á þá stefnu ríkisstjórnarinnar að ferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi verði sköpuð sambærileg rekstrarskilyrði og gilda í samkeppnislöndum. Er hækkun áfengisgjaldsins því harðlega mótmælt. Greiningardeild KB banka hefur endurskoðað verðbólguspá fyrir desember og er hún 0,3% í stað 0,1% áður. Þingmenn stjórnarflokkanna samþykktu frumvarpið ásamt Vinstri grænum en Frjálslyndir og Samfylking sátu hjá.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira