Ringulreið í Najaf 20. ágúst 2004 00:01
Harðlínuklerkurinn al-Sadr virðist hafa sloppið undan hersveitum Bandaríkjanna og Íraks síðdegis. Algjör ringulreið ríkir í Najaf og enginn virðist vita nákvæmlega hvað er þar á seyði. Það er vægast sagt ótrúlegt að þúsundir hermanna hafi setið um Imam Ali moskuna svo dögum skiptir en að sá sem leitað var hafi sloppið undan þeim, þrátt fyrir skothríð og sprengjuregn. En svo virðist sem sú hafi verið raunin síðdegis. Þá gerðu hersveitir írakskra stjórnvalda og Bandaríkjamanna áhlaup á moskuna. Írakskir lögreglumenn fóru í kjölfarið inn í moskuna ásamt trúarleiðtogum og eru sagðir hafa handsamað þar hundruð stuðningsmanna al-Sadrs, sem voru margir búnir léttum skotvopnum. Múktada al-Sadr var hins vegar hvergi að finna, og svo virðist sem hann hafi laumast undan í skjóli nætur, þrátt fyrir harða bardaga sem kostuðu um áttatíu lífið undanfarinn sólarhring. Ringulreið ríkir í Najaf og er óljóst hvort að þar er enn barist og hvort að moskan sé á valdi hersveitanna eður ei. Innanríkisráðherra Íraks sagði svo vera, en talsmenn Sadrs segja Mehdi-hersveitirnar ennþá halda moskunni og veita öfluga mótspyrnu. Blaðamenn á staðnum draga í efa að hundruð stuðningsmanna al-Sadrs hafi verið handteknir, og írakskir lögreglumenn segja CNN-fréttastöðinni að það sé alrangt að þeir hafi náð Imam Ali-moskunni á sitt vald. Heimildarmaður CNN í nánd við moskuna sagði raunar að þar væri allt með kyrrum kjörum síðdegis. Það er því algjörlega óljóst nákvæmlega hvað gerðist í Imam Ali moskunni í dag.
Erlent Fréttir Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Sjá meira