Erlent

Yfirmaður ísraelska hersins segir af sér

Yfirmaður ísraelska hersins hefur sagt af sér embætti vegna rannsóknar hersins á stríðinu gegn skæruliðum Hisbollah í Líbanon síðastliðið sumar. Yfirmaðurinn, David Halutz, sagði áður að ef rannsóknarnefndin teldi hann ábyrgan vegna mistaka í stríðinu í Líbanon, þá segði hann af sér.

Erlent

Konur án maka nú í meirihluta

Meirihluti bandarískra kvenna býr nú án maka - líklega í fyrsta sinn í sögunni. Frá þessu greinir bandaríska dagblaðið New York Times. Árið 1950 bjuggu 35 prósent bandarískra kvenna án maka, árið 2000 var hlutfallið komið upp í 49 prósent og árið 2005 var það komið í 51 prósent.

Erlent

Með krókódíl í farangrinum

Maður var handtekinn á Hong Kong-flugvelli nýlega fyrir tilraun til að smygla tösku með lifandi dýrum, þar á meðal krókódíl og 46 skjaldbökum. Hugðist maðurinn, sem kom frá Taílandi, selja dýrin á meginlandi Kína, þar sem þau eru eftirsótt í matseld og lækningar.

Erlent

Rússar afhenda Írönum vopn

Sergei Ivanov, varnarmálaráðherra Rússlands, staðfesti í gær að Rússar hefðu nú þegar afhent Írönum loftvarnaflaugar af gerðinni Tor-M1. Hann sagði ekki hve margar flaugarnar væru, en starfsmenn ráðuneytisins höfðu áður upplýst að Rússar hefðu samið við Írana um sölu á 29 loftvarnavopnum og mundu Íranar greiða fyrir 700 milljónir dala.

Erlent

Aðgerðir til að reisa við stofn

Tuttugu og fjórar þjóðir sem stunda fiskveiðar í Miðjarðarhafinu hafa heitið því að taka höndum saman við aðgerðir gegn rýrnun á fiskstofni samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Erlent

Pöttering tekur við af Borrell

Hans-Gert Pöttering, kristilegur demókrati frá Þýskalandi, var í gær kjörinn eftirmaður spænska sósíalistans Joseps Borrell á forsetastól Evrópuþingsins.

Erlent

Skellir sér í forsetaslaginn

Barack Obama sagðist í gær formlega hafa tekið fyrsta skrefið í áttina að forsetaframboði fyrir Demókrataflokkinn í Bandaríkjunum með því að sækja um að stofnuð yrði svonefnd könnunarnefnd, sem hefði það hlutverk að ganga úr skugga um hvort hann ætti erindi í forsetaframboð.

Erlent

35.000 borgarar féllu í Írak 2006

Hátt í 35.000 borgarar féllu í Írak árið 2006 samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna sem Gianni Magazzeni, mannréttindafulltrúi SÞ í Írak, kynnti í gær. Er þetta næstum þrisvar sinnum hærra hlutfall en írösk stjórnvöld lýstu yfir nýlega. Tæplega 36.700 borgarar særðust á sama tímabili.

Erlent

Óveðri spáð í Danmörku

Danska veðurstofan sagði í gær hættu á óveðri í suðurhluta Danmerkur í kjölfar lægðar á fimmtudag að því er kom fram á vef Politiken. „Ef lægðin færir sig suður fyrir Danmörku sleppum við, en færir hún sig inn yfir landið mun óveður geisa á öllum suðurhluta Danmerkur,“ sagði Mogens Bendsen, vaktstjóri á veðurstofunni.

Erlent

Sagður vera við dauðans dyr

Fídel Castro Kúbuleiðtogi er við dauðans dyr eftir þrjár skurðaðgerðir og alvarlega iðrasýkingu. Þetta hafði fréttavefur spænska dagblaðsins El País í gær eftir ónafngreindum samstarfsmönnum spænsks skurðlæknis sem fór til Kúbu í desember til að hlynna að hinum áttræða Castro.

Erlent

Færeyjar verði eitt byggðarlag

Ráðamenn í Færeyjum leggja nú til að Færeyjar verði sameinaðar í eitt byggðarlag, einkum til þess að auðvelda samgöngur milli svæða. Frá þessu er skýrt í færeyska dagblaðinu Dimmalætting.

Erlent

Sýrlendingar og Ísraelar voru nærri samkomulagi

Ísraelskt dagblað heldur því fram að Sýrlendingar og Ísraelar hafi nánast verið tilbúnir með drög að friðarsamkomulagi. Bandaríkjamenn reyna enn að afla stuðnings meðal arabaríkja við nýja Íraksstefnu sína.

Erlent

Fjórðungur dó úr vosbúð

Fjórðungur rússneskra stríðsfanga sem lentu í finnskum fangabúðum dó, meirihlutinn úr hungri, kulda og sjúkdómum. Aðstæður í fangabúðum voru lélegri en hingað til hefur verið talið. Þetta kemur fram á fréttavef finnska dagblaðsins Hufvudstadsbladet.

Erlent

Pandan orðin of feit fyrir kynlíf

Pandabjörninn Chuang Chuang er orðinn það feitur að pandabirnan Lin Hui vill ekki lengur stunda kynlíf með honum, að sögn talsmanna Chiang Mai dýragarðsins í Taílandi.

Erlent

Situr nú í ísraelsku fangelsi

Fawaz Mohammed Damra, fyrrverandi bænaformaður í Ohio í Bandaríkjunum, hefur verið hnepptur í fangelsi í Ísrael. Hann hafði leitað hælis í 72 löndum en alls staðar verið hafnað og neyddist því til að halda til fæðingarlands síns, Palestínu, eftir að hafa verið sviptur ríkisborgararétti í Bandaríkjunum.

Erlent

Börðust með fánastöngum

Slagsmál brutust út á tennismóti í Ástralíu á milli króatískra og serbneskra stuðningsmanna nýlega. Stuðningsmennirnir voru í tveimur hópum og hrópuðu þeir vígorð og móðganir til andstæðinganna á meðan á leikum stóð.

Erlent

Tígrarnir með pyntingaklefa

Pyntingaklefar hafa fundist í búðum tamílatígra á Srí Lanka sem talið er að hafi verið notaðir til að refsa liðhlaupum og uppljóstrurum, þar á meðal konum, að sögn varnarmálaráðuneytis landsins.

Erlent

Auglýsendum heitið áhrifum?

Forsvarsmenn nýju dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 eru í vanda staddir vegna gruns um að þeir hafi lofað auglýsendum að þeir gætu haft áhrif á fréttaflutning stöðvarinnar. Fyrir utan að loforðið stríði gegn dönskum lögum um sjónvarps- og útvarpsrekstur er talið að það dragi úr trausti áhorfenda á fréttastofu sjónvarpsstöðvarinnar.

Erlent

Hert lög um innflytjendur taka gildi

Hert lög um innflytjendur hafa nú tekið gildi í Rússlandi en talið er að á milli tíu og tólf milljónir ólöglegra innflytjenda séu í landinu. Margir hafa lýst áhyggjum yfir að þetta geti leitt til alvarlegs skorts á láglaunastarfsfólki.

Erlent

12 metrar horfnir af fjörunni

Eyrarsund ýfðist svo mikið upp í óveðrinu sem gekk yfir Svíþjóð og Danmörku um helgina að öldurnar brutu marga metra af strandlengju Skáns í Suður-Svíþjóð. Við Ysted í Suður-Svíþjóð eru að meðaltali níu metrar horfnir af fjörunni. Einn sumarbústaður er nú þremur metrum frá öldunum en stóð áður 15 metrum frá sjónum.

Erlent

Yfirmaður Ísraelshers segir af sér

Yfirmaður ísraelska hersins hefur sagt af sér embætti vegna herrannsóknar á stríðinu gegn skæruliðum Hisbollah í Líbanon síðastliðið sumar. Dan Halutz greindi forsætisráðherranum Ehud Olmert og varnarmálaráðherranum Amir Peretz frá ákvörðun sinni fyrr í kvöld.

Erlent

Rice kannski kölluð til vitnis

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, verður hugsanlega kölluð til að bera vitni við réttarhöldin yfir fyrrverandi aðstoðarmanni varaforsetans Dicks Cheneys. Rice, forveri hennar Colin Powell, varaforsetinn Dick Cheney voru á löngum lista yfir hugsanleg vitni í málinu gegn Lewis "Scooter" Libby.

Erlent

Hormónalaus Starbucks

Kaffikeðjan Starbucks stefnir á að nota eingöngu mjólkurvörur sem eru lausar við vaxtarhormón sem kúm eru gefin til að auka mjólkurframleiðslu. Forráðamenn fyrirtækisins tilkynntu þetta í dag. Keðjan varð fyrir barðinu á auglýsingaherferð neytendasamtaka sem gagnrýndu hormónagjöfina.

Erlent

Chavez neitar alvarlegum veikindum Kastrós

Hugo Chavez, forseti Venesúela og góðvinur Kastrós, neitar orðrómi um að Kúbuforsetinn sé alvarlega sjúkur. Chavez ræðir reglulega við Kastró og segir hann vera hægt og bítandi að jafna sig eftir skurðaðgerðir, orðrómur um að hann liggi fyrir dauðanum sé uppspuni úr ranni Bandaríkjamanna.

Erlent

Megrunartyggjó mögulega á markað

Án efa gleðjast margir jórtrarar yfir fréttum af því að megrunartyggjó sé væntanlegt á markað. Breskir vísindamenn þróa nú lyf hlaðið hormóni sem dregur úr svengdartilfinningu og hægt verður að nota í tyggjó eða jafnvel nefúða.

Erlent

Þrír Íslandsvinir hrepptu verðlaun

Þrír Íslandsvinir hrepptu samtals fjórar styttur þegar Golden Globe verðlaunin voru afhent í Hollywood í gærnótt. Helen Mirren hlaut tvenn verðlaun fyrir leik sinn í tveimur myndum um Englandsdrottningar, Forest Whitaker ein fyrir túlkun sína á einræðisherranum Idi Amin, og Clint Eastwood fyrir erlenda mynd. Það eru erlendir gagnrýnendur og blaðamenn í Hollywood sem veita Gullhnettina á hverju ári og eru þessi verðlaun sögð vísbending um hverjir hafa betur í baráttunni um Óskarsstytturnar í næsta mánuði. Í nótt var breska leikkonan Helen Mirren verðlaunuð fyrir að túlka tvær Elísabetur, það er Elísabetu fyrstu Englandsdrottningu í sjónvarpsþáttaröð um hana og Elísabetu aðra í myndinni "Drottningin" sem fjallar um dauða Díönu prinsessu af Wales og eftirmála hans. Whitaker mun að mati gagnrýnenda hafa unnið leiksigur með túlkun sinni á Idi Amin í myndinni Síðasti konungur Skotlands. Amin stjórnaði Austur-Afríkuríkinu Úganda með harðri hendi á áttunda áratug síðustu aldar. Besta drama-myndin var valin Babel með þeim Brad Pitt og Cate Blanchett í aðalhlutverkum. Á Golden Globe verðlaunahátíðinni eru gaman- eða söngvamyndir verðlaunaðar sérstaklega. Besta mynd úr þeim hópi var valin söngvamyndin um Draumastúlkunar. Grínarinn Eddie Murphy er þar í aukahlutverki og var verðlaunaður fyrir. Sacha Baron Cohen var valinn besti aðalleikari í gamanmynd fyrir túlkun sína á kasakska fréttamanninum Borat í samnefndri mynd. Í ræðu sinni þakkaði Cohen öllum þeim Bandaríkjamönnum sem hefðu ekki lögsótt hann vegna myndarinnar. Meryl Streep hreppti hnossið sem aðalleikona í gamanmynd fyrir myndina Djöfullinn klæðist Prada. Martin Scorsese var valinn besti leikstjórinn fyrir myndina Departed og besta erlenda myndin var Letters from Iwo Jima eftir Clint Eastwood. Besti dramaþátturinn var Læknalíf, eða Greys Anatomy, og besti gamanþátturinn Ljóta Bettý.

Erlent

SÞ: Tæplega 35 þúsund almennir borgarar fallið í Írak 2006

Sameinuðu þjóðirnar fullyrða að tæplega 35 þúsund almennir borgarar hafi fallið í átökum í Írak í fyrra. Það eru þrefalt fleiri en innanríkisráðuneytið íraska segir hafa fallið. Nærri því 100 manns hafa týnt lífi og rúmlega 200 særst í sprengjuárásum í og við Bagdad í dag.

Erlent

Prodi samþykkir herstöðvarstækkun

Ítalir eru samþykkir því að Bandaríkjamenn stækki eina stærstu herstöð sína í Evrópu, sem er í Vicenza á Ítalíu. Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnti þetta í dag. Skiptar skoðanir hafa verið innan samsteypustjórnar vinstri- og miðjumanna um áætlanir Bandaríkjamanna.

Erlent

Bið á að Blair hverfi frá

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að minnsta kosti að sitja í embætti fram yfir leiðtogafund Evrópusambandsins í júní. Blair hyggst hann láta af embætti forsætisráðherra á þessu ári en hefur ekki viljað segja neitt um hvenær hann yfirgefur Downingstræti.

Erlent

Blökkumaður í forsetastól í Hvíta húsinu?

Barack Obama, öldungadeildarþingmaður demókrata í Illinois, tók í dag fyrstu skrefin að hugsanlegu framboði til forseta Bandaríkjanna þegar hann greindi frá því að hefði myndað sérstaka könnunarnefnd sem gerir honum kleift að safna fé og ráða til sín starfsfólk vegna framboðsins.

Erlent