Erlent
Minnkun jökla sést vel úr geimstöðinni Minnkun jökla og annarra ísi lagðra svæða á jörðinni sést greinilega frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Kanadíski geimfarinn Bob Thirsk, sem þar dvelur, sagði á blaðamannafundi, sem fór fram með aðstoð fjarskipta í gær, að hann sæi greinilegan mun á jöklunum frá því að hann dvaldi síðast í geimstöðinni fyrir 12 árum. Erlent 27.7.2009 07:34
Palin lét af embætti í gær Sarah Palin, ríkisstjóri Alaska og varaforsetaframbjóðandi Repúblikana fyrir síðustu forsetakosningar, lét af embætti sínu í gær og hefur Sean Parnell vararíkisstjóri nú tekið sæti hennar. Erlent 27.7.2009 07:32
Átta látnir eftir árekstur í New York Átta manns eru látnir, þar af fjögur börn, eftir árekstur þriggja bíla rétt norðan við New York-borg í gær. Erlent 27.7.2009 07:27
Kjör breskra ellilífeyrisþega með þeim verstu Næstum því þriðjungur breskra ellilífeyrisþega býr við kjör sem teljast undir fátæktarmörkum og er ástandið þar mun verra en það sem að meðaltali telst eðlilegt innan Evrópusambandsins. Erlent 27.7.2009 07:20
Sarkozy fluttur á sjúkrahús Nicholas Sarkozy, Frakklandsforseti hefur verið fluttur á spítala eftir að hann veiktist skyndilega í dag. Samkvæmt frönskum fjölmiðlum var forsetinn að skokka hjá st frá París þegar hann fann fyrst fyrir vanlíðan. Hann var umsvifalaust sendur til læknis í skoðun og í kjölfarið var ákveðið að senda hann með þyrlu til Val de Grace hersjúkrahúsið. Erlent 26.7.2009 16:15
Átta látist í eldum í Suður evrópu Átta hafa látist í miklum eldum sem geisað hafa í Suður Evrópu undanfarna daga. Hitabylgja og miklir vindar hafa hamlað slökkvistarfi. Erlent 26.7.2009 13:27
Sex létust í eldsvoða í Stokkhólmi Að minnsta kosti sex létust í eldsvoða sem braust út í íbúðarblokk í Rinkeby í vesturhluta Stokkhólms í nótt. Fimm þeirra sem létust voru börn og ungmenni. Erlent 26.7.2009 12:57
Útlendingar fá ekki að gefa blóð Útlendingar sem búsettir eru í Danmörku þurfa að hafa náð fullkomnu valdi á dönsku til þess að mega gefa blóð, samkvæmt nýjum reglum. Reglurnar hindra þar með þúsund borgara í að gefa blóð, segir danska blaðið Politiken. Erlent 26.7.2009 09:00
Bresk stjórnvöld gagnrýnd vegna svínaflensunnar Nefnd á vegum breska þingsins gagnrýnir stjórnvöld þar í landi harðlega fyrir viðbrögð við svínaflensunni í skýrslu sem kemur út í vikunni. Erlent 26.7.2009 08:00
Snéri aftur heim til Hondúras í morgun Manuel Zelaya, forseti Hondúras, snéri aftur til heimalands síns í morgun aðeins mánuði eftir að hann var hrakinn frá völdum. Um táknrænan atburð var að ræða og sneri Zelaya aftur yfir landamærin til Níkaragúa stuttu síðar. Erlent 25.7.2009 13:10
Börn á leikskólaaldri skutu systkini sín Tvö börn á leikskólaaldri skutu og særðu önnur börn í tveimur tilvikum í Bandaríkjunum. Þriggja ára drengur skaut fjögurra ára gamlan bróður sinn í Gray Court í Suður Karólínu, með 22 kalíbera skammbyssu á fimmtudag. Í morgun skaut svo fjögurra ára drengur tveggja ára systur sína. Erlent 25.7.2009 11:26
Afvopnunarviðræður halda áfram í lok næsta mánaðar Afvopnunarviðræðum Rússa og Bandaríkjamanna verður framhaldið í lok næsta mánaðar en sendinefndir ríkjanna funduðu í Genf í Sviss nú í vikunni. START samkomulagið frá árinu 1991 sem kveður á um fækkun kjarnorkuvopna rennur út í lok þess árs. Bæði ríkin hafa lýst yfir vilja til að endurnýja samkomulagið til tíu ára. Erlent 25.7.2009 10:23
1700 ungmenni rekin úr tjaldbúðum í Noregi vegna svínaflensu Heilbrigðisyfirvöld í Noregi hafa kveðið 1700 ungmenni á brott frá tjaldbúðum í Vestur Noregi eftir að 15 ára gömul stúlka greindist með svínaflensu. Ungmennin voru samankomin á svæðinu til að taka þátt í alþjóðlegri útihátíð. Alls hafa nú 37 svínainflúensu tilfelli verið staðfest á svæðinu og er nú óttast að mun fleiri séu smitaðir. Erlent 25.7.2009 10:04
Faraldurinn á byrjunarreit Líklegt þykir að yfir hundrað þúsund manns hafi smitast af svínaflensu í Bretlandi og hefur smituðum fjölgað um helming nú í vikunni. Í Bandaríkjunum er talið að fjöldi þeirra sem hafa smitast sé kominn yfir milljón. Erlent 25.7.2009 09:00
Seselj dæmdur fyrir óvirðingu Vojislav Seselj, leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks Serbíu, var í gær dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi af stríðsglæpadómstól í Haag fyrir að hafa sýnt réttinum óvirðingu. Erlent 25.7.2009 06:15
Fárviðri kostaði tíu manns lífið Mikið óveður í Evrópulöndum síðustu daga varð sjö manns að bana í Póllandi, tveimur í Tékklandi og einum í Þýskalandi. Í Póllandi urðu dauðsföllin á fimmtudagskvöld þegar mikið hvassviðri reið yfir. Einna verst varð ástandið í kringum borgina Wroclaw í suðaustanverðu Erlent 25.7.2009 05:45
Einn öflugasti sjónauki heims Einn öflugasti sjónauki heims hefur verið tekinn í notkun á Kanaríeyjum. Jóhann Karl Spánarkonungur vígði hann. Sjónaukinn stendur efst á útkulnuðu eldfjalli og verður notaður til að kanna dauft ljós frá fjarlægum hlutum alheimsins. Erlent 25.7.2009 05:00
ESB vill Íslendinga á undan Balkanskagaríkjunum Mælt verður með því að Ísland fari fram fyrir Balkanskagalöndin í röð umsækjenda um aðild að Evrópusambandinu þegar utanríkisráðherrafundur sambandsins mun fjalla um umsókn Íslendinga í næstu viku. Erlent 24.7.2009 14:20
Mannskætt aftakaveður í Mið-Evrópu Aftakaveður geisaði í Mið-Evrópu í nótt, einkum Póllandi, Þýskalandi og Tékklandi. Átta manns týndu lífi í Póllandi en þar voru þúsundir björgunarmanna við störf næturlangt. Erlent 24.7.2009 08:22
Bretar flytja inn asísk skordýr til illgresisáts Bretar íhuga nú að flytja inn skordýr frá Asíu og láta þau éta japanska illgresisplöntu sem er að verða plága hjá breskum garðyrkjumönnum. Erlent 24.7.2009 08:07
Leifar ævaforns samfélags í Taiwan Fornleifafræðingar í Taiwan hafa uppgötvað leifar af allt að 20.000 ára gömlu menningarsamfélagi. Erlent 24.7.2009 07:32
Vinna við geimstöðina á áætlun Leiðangur geimferjunnar Endeavour gengur að óskum. Áhöfnin hefur nú flutt þrjár birgðasendingar úr skutlunni yfir í japönsku rannsóknarstofuna Kibo sem fest var við Alþjóðlegu geimstöðina í fyrrasumar. Erlent 24.7.2009 07:28
Hald lagt á 30 kíló af khat Lögreglan á Fjóni lagði í gærkvöldi hald á 30 kíló af jurtinni khat í bíl sem ekið var eftir Stórabeltisbrúnni en hún brúar sundið milli Sjálands og Fjóns. Erlent 24.7.2009 07:25
Gordon Brown með Winehouse í spilaranum Tónlist söngkonunnar Amy Winehouse er meðal þess sem er að finna í iPod-spilara Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands. Erlent 24.7.2009 07:21
Japanar liggja í ímyndarráðgjöf fyrir kosningar Undirbúningur þingkosninganna í Japan einkennist af því að frambjóðendur keppast við að ráða sér almannatengslaráðgjafa, sem semja fyrir þá vígorð og ráðleggja þeim um hvernig megi temja sér persónulegri og hlýlegri framkomu, eitthvað sem japanskur almenningur kannast almennt lítið við í fasi stjórnmálamanna sinna. Erlent 24.7.2009 07:18
Segir hervald tilgangslaust Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, ráðleggur Georgíustjórn eindregið að reyna ekki að fara með hervaldi gegn Rússum til að endurheimta héruðin Suður-Ossetíu og Abkasíu. Erlent 24.7.2009 07:15
Mágur Mousavis handtekinn Shahpour Kazemi, mágur stjórnarandstöðuleiðtogans Mir Hossein Mousavi, hefur verið handtekinn í Íran. Zahra Rahnavard, sem er eiginkona Mousavis og systir Kazemis, skýrði frá þessu í gær. Erlent 24.7.2009 04:00
Ekkert tilboð barst í Watergate hótelið í Washington Ekkert tilboð fékkst í hið sögufræga Watergate hótel í Washington þegar reynt var að selja það á uppboði. Innbrot í hótelið varð til þess að Richard Nixon neyddist til að láta af embætti forseta Bandaríkjanna á sínum tíma. Erlent 23.7.2009 19:36
Ungverjaland styður ESB umsókn Íslendinga Ungverjaland styður aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu en telur að samningaviðræðurnar eigi að fylgja eðlilegu ferli sagði Gabor Ivan, hátt settur yfirmaður í ungverska utanríkisráðuneytinu, við vefinn MTI í dag. Erlent 23.7.2009 12:51
Bannað að birta hluta af framburði Mumbai-árásarmanns Indverskur dómari hefur bannað fjölmiðlum að birta hluta af framburði Mohammad Ajmal Kasab sem er ákærður fyrir árásirnar í Mumbai á Indlandi í lok síðasta árs. Erlent 23.7.2009 08:25