Erlent
Styður fullveldi georgísku aðskilnaðarhéraðanna Hugo Chavez, forseti Venesúela, tilkynnti í dag að hann og ríkisstjórn hans hefðu ákveðið að viðurkenna fullveldi georgísku aðskilnaðarhéraðanna Abkasíu og Suður-Ossetíu. Erlent 10.9.2009 15:45
Flugræninginn var í guðdómlegri sendiför Bólivíumaður er í haldi mexíkósku lögreglunnar eftir að hann rændi farþegaþotu í innanlandsflugi í Mexíkó í gær. Þotan var á leið frá Cancun til Mexíkóborgar með 104 farþega og áhöfn. Skömmu eftir að þotan var komin á loft stóð farþegi upp, sagðist vera með sprengju meðferðis og heimtaði fund með Felipe Calderon, forseta Mexíkó. Erlent 10.9.2009 15:02
Obama varði tillögur sínar um umbætur í heilbrigðismálum Barack Obama, Bandaríkjaforseti, varði í gærkvöldi umbætur sínar í heilbrigðismálum fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings. Viðbrögð þingmanna voru blendin. Einn viðhafði frammíköll og sagði forsetann ljúga. Erlent 10.9.2009 12:15
Íhaldsmenn vilja stórtæka einkavæðingu ríkisfyrirtækja Áhrifamenn í breska íhaldsflokknum hafa viðrað hugmyndir um stórtæka einkavæðingu ríkisfyrirtækja, komist þeir til valda. Breska ríkisútvarpið er meðal þess sem nefnt og póstþjónustan. Erlent 10.9.2009 12:09
Ósáttir við Farrell vegna dauða hermanns Yfirmenn í breska hernum eru allt annað en sáttir við blaðamanninn Stephen Farrell sem sérsveit NATO bjargaði úr haldi talibana í Kunduz-héraðinu í Afganistan í gær. Erlent 10.9.2009 08:38
Eignir Madoffs til sölu Nú er lag að eignast þakhýsi stórsvindlarans Bernards Madoff í New York en íbúðin fer á sölu í næstu viku. Erlent 10.9.2009 08:19
Íranar brátt taldir geta smíðað sprengju Bandaríkjamenn vara við því að Íranar séu nú farnir að nálgast það ískyggilega mikið, að geta smíðað kjarnavopn. Erlent 10.9.2009 08:16
Sagði Obama ljúga Joe Wilson, þingmaður Suður-Karólínu á Bandaríkjaþingi, var ekkert að skafa af því þegar Barack Obama varði umbætur sínar í heilbrigðismálum á þinginu heldur kallaði fram í ræðu forsetans og sagði hann ljúga. Erlent 10.9.2009 08:15
Bréfdúfa fljótari en tölvupóstur Netsamband er svo lélegt í Suður-Afríku að upplýsingatæknifyrirtæki nokkru í Jóhannesarborg hefur tekist að sýna fram á að það er fljótlegra að senda gögn með bréfdúfu en tölvupósti. Erlent 10.9.2009 07:33
Fred í rénun Nokkuð dró af fellibylnum Fred á Atlantshafi í gær og fór hann úr þriðja stigs byl niður í annars stigs en vindhraði stjórnar því hvernig fellibylir flokkast á fimm stiga skala. Erlent 10.9.2009 07:31
Smyglaði mörgum tonnum af kókaíni Stórtækur kólumbískur kókaínsmyglari, Fabio Enrique Vasco, kvaðst sekur um að hafa smyglað mörgum tonnum af kókaíni frá Kólumbíu til Bandaríkjanna, þegar dómari í Miami bað hann að taka afstöðu til sakarefnisins. Erlent 10.9.2009 07:29
Myndaðir í bak og fyrir við innbrot Tveir innbrotsþjófar í Brøndby í Danmörku voru handteknir mjög snarlega eftir innbrot í fyrirtæki um síðustu helgi. Þeir vönduðu ekki valið meira en svo, að þeir brutust inn hjá Milestone Systems sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og uppsetningu öryggismyndavéla í Danmörku. Erlent 10.9.2009 07:26
Strauk úr fangelsi í pappakassa Stjórnendur hámarksöryggisfangelsisins í Burgundy í Frakklandi kunna engar skýringar á því hvernig stórhættulegum fanga, Jean-Pierre Treiber, tókst að strjúka úr fangelsinu með því að fela sig í pappakassa. Erlent 10.9.2009 07:17
Hafna kauptilboði frá Kraft Stjórnendur breska sælgætisfyrirtækisins Cadbury hafa hafnað 10,2 milljarða punda kauptilboði bandaríska fyrirtækisins Kraft. Hlutabréf í Cadbury hækkuðu um fjörutíu prósent í kjölfar fréttanna. Erlent 10.9.2009 06:00
Tveir smáflokkar með í stjórn Yukio Hatoyama, leiðtogi Lýðræðisflokksins í Japan, hefur boðið tveimur smáflokkum að ganga með sér í stjórnarsamstarf, þrátt fyrir ágreining flokkanna þriggja um utanríkismál og veru bandarískra hermanna á eyjunni Okinawa. Erlent 10.9.2009 05:15
Mannfallið á Gasa vanmetið Ísraelsku mannréttindasamtökin B‘Tselem segja stjórnvöld og her vanmeta mjög í opinberum skýrslum mannfallið sem varð í þriggja vikna hernaði á Gasasvæðinu um síðustu áramót. Erlent 10.9.2009 04:00
Vill vera forseti önnur fimm ár Jose Manuel Barroso sækist eftir að vera forseti framkvæmdastjórnar ESB í önnur fimm ár. Hann svaraði spurningum blaðamanna í gær. Erlent 10.9.2009 03:45
Endurtalning atkvæða óhjákvæmileg Kvörtunarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna segir óhjákvæmilegt að atkvæði úr forsetakosningunum í Afganistan verði endurtalin á kjörstöðum, þar sem rökstuddur grunur leikur á kosningasvindli. Erlent 10.9.2009 02:45
Alls 27 myrtir frá áramótum Alls hafa 27 baráttumenn fyrir réttindum verkafólks verið myrtir í Kólumbíu frá áramótum. Tveir voru myrtir í síðustu viku, að því er fram kemur á vef ASÍ. Verkalýðshreyfingin í Kólumbíu og hin alþjóðlega hafa ítrekað beðið kólumbísk stjórnvöld um að stöðva blóðbaðið, segir á vef ASÍ. Erlent 10.9.2009 02:30
Borgarbúar áttu fótum fjör að launa Að minnsta kosti tuttugu manns létu lífið vegna skyndiflóða í gær í Istanbúl. Alls hafa nærri þrjátíu manns farist í flóðum við norðvesturströnd Tyrklands nú í vikunni. Erlent 10.9.2009 01:15
Ævilangt fangelsi fyrir akstur Tæplega sextugur Kanadamaður, Roger Walsh, var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að aka niður konu í hjólastól. Erlent 10.9.2009 00:45
Berst fyrir búrkubanni Sihem Habchi var mikið niðri fyrir þegar hún kom fyrir nýstofnaða þingnefnd í Frakklandi, sem fær það hlutverk að rannsaka fatnað íslamskra kvenna í landinu. Erlent 10.9.2009 00:15
Hart deilt um lífsbjörg blaðamanns Bresk yfirvöld hafa verið gagnrýnd harðlega fyrir að bjarga lífi breska blaðamannsins Stephen Farrel sem var í haldi talibana í Afganistan. Bresk sérsveit seig úr þyrlu og frelsað Stephen og aðra gísla með vopnavaldi. Til skotbardaga kom og lést einn af bresku hermönnunum auk afgansks blaðamanns en hann var einnig túlkur Farrels. Erlent 9.9.2009 23:16
Hubble kominn í gagnið - ótrúlegar myndir Birtar voru myndir og gögn frá fjórum af sex vísindatækjum Hubble sjónaukans í dag sem er í eigu ESA og NASA. Þetta eru fyrstu myndirnar sem eru birtar úr sjónaukanum síðan farið var í metnaðarfullan viðgerðarleiðangur í maí síðastliðnum. Erlent 9.9.2009 21:03
Bólívíumenn ræna mexíkóskri flugvél Flugræningjar sem eru taldir vera frá Bólivíu rændu mexíkóskri flugvél með hundrað farþegum innanborðs samkvæmt BBC. Vélin var á leiðinni til Cancun í Mexíkó þegar ræningjarnir létu til skara skríða. Vélinni var þá snúið til Mexíkó-borgar þar sem hún lenti. Erlent 9.9.2009 20:01
„Madeleine er dáin“ Dómstóll í Portúgal hefur sett lögbann á bók sem fyrrverandi lögreglumaður þar í landi hefur skrifað um mál Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi árið 2007. Maðurinn, Goncalo Amaral tók þátt í rannsókn málsins á sínum tíma og staðhæfir hann að Maddý sé dáin og að hann leggi engan trúnað á sögu foreldra hennar sem halda því fram að þau hafi verið að borða á veitingastað í nágrenninu þegar stúlkan hvarf. Erlent 9.9.2009 16:21
Barnabarn Stalíns höfðar mál Jósef Stalín var fyrir rétti í Rússlandi síðastliðinn mánudag. Þar var tekið fyrir mál sem barnabarn hans höfðaði gegn dagblaði sem hélt því fram að hann hefði fyrirskipað morð á sovéskum ríkisborgurum. Erlent 9.9.2009 15:45
Læknum ráðlagt að drekka sex kaffibolla á dag Örþreyttum áströlskum læknum hefur verið ráðlagt að drekka sex bolla af kaffi á dag til þess að halda sér vakandi. Erlent 9.9.2009 14:45
Fólki ráðlagt að kyssast minna Frakkar kyssast meira en flestir aðrir. Ekki aðeins í ástarbríma heldur er það einnig viðtekin venja að fólk kyssist á kinnina þegar það heilsar. Svínaflensan hefur nú gert strik í reikninginn. Fólki er ráðlagt að kyssast minna og á nokkrum opinberum stofnunum, svosem sjúkrahúsum hafa kossar hreinlega verið bannaðir. Erlent 9.9.2009 13:30
Skókastarinn hefur fengið tilboð um kvennabúr Íraski fréttamaðurinn sem kastaði skóm sínum í George Bush hefur fengið ótal tilboð um bíla, kvennabúr og önnur jarðnesk gæði þegar honum verður sleppt úr fangelsi. Erlent 9.9.2009 12:24