Erlent

Fólki ráðlagt að kyssast minna

Frakkar kyssast meira en flestir aðrir. Ekki aðeins í ástarbríma heldur er það einnig viðtekin venja að fólk kyssist á kinnina þegar það heilsar. Svínaflensan hefur nú gert strik í reikninginn. Fólki er ráðlagt að kyssast minna og á nokkrum opinberum stofnunum, svosem sjúkrahúsum hafa kossar hreinlega verið bannaðir.

Kossum mun einnig fækka á Ítalíu. Til dæmis í Napólí þar sem er að hefjast árleg hátíð borgarinnar. Það er löng hefði fyrir því að þá kyssa Napólíbúar glerflösku sem geymir blóð verndardýrlings þeirra Heilags Gennaro. Vegna flensunnar hafa kirkjufeður með trega ákveðið að svo verði ekki í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×