Erlent

Forseti Rúanda endurkjörinn

Paul Kagame, forseti Rúanda, var endurkjörinn með 93 prósentum atkvæða í nýafstöðnum kosningum. Kjörstjórn segir að 97 prósent hafa tekið þátt í kosningunum sem er nær óþekkt þátttaka. Undir stjórn Kagame hefur hagvöxtur verið mikill en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að sauma að stjórnarandstöðuhópum.

Erlent

Óttast geislavirkni af völdum eldanna

Starfsmenn almannavarna í Rússlandi standa nú vakt í Brjansk-héraði, suður undir Úkraínu, þar sem eldar hafa kviknað á að minnsta kosti sex stöðum nú í vikunni.

Erlent

Nægir ekki afsökunarbeiðni

Fyrrum kynlífsþrælar voru á meðal mótmælenda við japanska sendiráðið í Seúl í Suður-Kóreu í fyrradag. Tilefnið var afsökunarbeiðni japanska forsætisráðherrans, Naoto Kan, vegna hernáms Japana á Suður-Kóreu sem hófst 29. ágúst fyrir 100 árum.

Erlent

Slys sem beðið var eftir

Jarðfræðingar og aðrir sérfræðingar í Kína höfðu margsinnis varað við aurskriðum eins og þeirri sem varð yfir eittþúsund manns bana að í Gansu héraði á laugardag.

Erlent

Kajakræðararnir heilir á húfi

Kajakræðararnir sem saknað var á Scoresbysundi við austurströnd Grænlands eru fundir heilir á húfi. Berlingske Tidende hefur eftir grænlensku lögreglunni að sést hafi til hópsins úr björgunarþyrlu í dag.

Erlent

Ísraelskir hermenn vanmátu mótspyrnu

Æðsti yfirmaður ísraelska hersins segir að hermenn hafi vanmetið þá mótspyrnu sem gæti mætt þeim þegar þeir réðust um borð í tyrkneskt skip sem var að flytja hjálpargögn til Gaza strandarinnar.

Erlent

Greina Alzheimer með mænustungu

Vísindamenn í Belgíu hafa birt niðurstöður rannsókna, þar sem leitað var í mænuvökva fólks eftir ákveðnum prótínum sem grunuð eru um að eiga þátt í Alzheimersjúkdómnum.

Erlent

Tæplega 130 milljónir bóka til í heiminum

Google fyrirtækið hefur unnið að því í sex ár að gera eins margar bækur aðgengilegar á veraldarvefnum og unnt er. Verkefnið hefur reynst frekar erfitt vegna umfangs þess. Bækur leynast víð, á bókasöfnum í fórum hins opinberra, á bókasöfnum og víðar.

Erlent

Rannsaka hve miklu er hent af matvælum úr verslunum

Árlega er hent gífurlegu magni af matvælum úr verslunum, ýmist vegna rangra innkaupa eða vegna þess að varan er útrunnin. Þetta kemur niður á umhverfinu og kostar miklar fjárhæðir. Norræna ráðherranefndin, samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna, ætlar nú að láta rannsaka hversu mikið af matvælum er hent og hvernig koma megi í veg fyrir það.

Erlent

Fyrrum forseti Mexíkó vill gera fíkniefni lögleg í landinu

Vicente Fox fyrrum forseti Mexíkó hvetur nú til þess að fíkniefni verði gerð lögleg í landinu. Þetta sé eina leiðin til að draga úr þeim blóðugu átökum sem geysað hafa milli fíkniefnagengja í landinu og til að draga úr völdum þeirra og áhrifum.

Erlent

Íhuga að hætta skipulagðri leit á Grænlandi

Lögreglan í Syðri Straumsfirði á Grænlandi íhugar nú að hætta skipulagðri leit að Norðmönnunum þremur sem saknað er á svæðinu. Lík eins þeirra hefur fundist, og tveir bakpokar þeirra tveggja, sem enn er saknað.

Erlent

Taiba-moskunni í Hamborg lokað

Þýska lögreglan hefur lokað moskunni Taiba í Hamborg þar sem talið er að flugvélaræningjar hafi skipulagt sjálfsmorðsárásirnar í Bandaríkjunum árið 2001. Þá var fjórum farþegaflugvélum beint á Tvíburaturnana í New York og Pentagon-bygginguna í Washington, en ein brotlenti á akri í Pennsylvaníu.

Erlent