Erlent

Neyðarástandi lýst við kjarnorkuefnavinnslu í Rússlandi

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í grennd við kjarnorkuefnavinnslustöð í suðurhluta Úralfjallanna vegna þeirra skógar- og akurelda sem nú geysa í miðhluta Rússlands.

Vinnslustöðinni er ógnað af eldunum og berjast nú þúsundir her- og slökkviliðsmanna við að koma í veg fyrir að eldurinn berist í hana. Slíkt gæti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Yfirvöld í Moskvu hafa nú viðurkennt að fjöldi dauðfalla í borginni hefur tvöfaldast frá því að eldarnir hófust fyrir tveimur vikum síðan. Þykkur reykjarmökkur liggur yfir borginni og eiturefni sem fylgja honum eru sexfalt yfir hættumörkunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×