Erlent

Greina Alzheimer með mænustungu

Deilt er um nákvæmni greiningar sem byggð er á mænustungu.
Deilt er um nákvæmni greiningar sem byggð er á mænustungu.
Vísindamenn í Belgíu hafa birt niðurstöður rannsókna, þar sem leitað var í mænuvökva fólks eftir ákveðnum prótínum sem grunuð eru um að eiga þátt í Alzheimersjúkdómnum.

Í ljós kom að þessi ákveðnu prótín, amyloid og tau, var ekki aðeins að finna í 90 prósentum þeirra Alzheimersjúklinga sem tóku þátt í rannsókninni, heldur einnig í 72 prósentum þeirra þátttakenda sem mælst hafa með væg einkenni heilabilunar. Að auki var þau að finna í 36 prósentum þeirra þátttakenda, sem heilbrigðir töldust.

Á hverju ári er talið að um milljón manns byrji að fá væg einkenni heilabilunar, sem skilgreinast alvarlegri en eðlileg elliglöp án þess þó að greinast sem Alzheimersjúkdómur.

Athygli lækna beinist nú meðal annars að því að greina hverjir úr þessum hópi eiga eftir að fá Alzheimersjúkdóminn eða önnur alvarleg vitglöp. Mænustunga er aðeins ein þeirra aðferða, sem farið er að nota til þess að fá vísbendingar um þetta.

Ljóst þykir að Alzheimersjúkdómurinn byrjar að herja á heila einstaklinga að minnsta kosti áratug áður en fyrstu minnistruflana verður vart. Þetta vekur vonir um að hægt verði að hægja á þróun hans, ef byrjað er að gefa lyf nógu snemma.

Enn er þó deilt um nákvæmni greiningar sem byggð er á mænu-stungu. Rannsóknir á látnu fólki sýna að fjórðungur þeirra, sem deyja í hárri elli án nokkurra elliglapa, eru með prótínið amyloid í mænuvökva. „Það síðasta sem við viljum er að segja einhverjum að hann muni fá Alzheimersglöp ef hann fær þau síðan ekki,“ segir Marilyn Albert, vísindamaður við Johns Hopkins-háskólann í Bandaríkjunum.

Margir læknar telja þó vissara að bíða ekki eftir greiningu. Samkvæmt rannsókn, sem birtist í tímaritinu Neurology í síðustu viku, byrja 70 prósent þeirra lækna, sem spurðir voru, að gefa lyf við Alzheimer fljótlega eftir að væg einkenni heilabilunar greinast, í þeirri von að hægja megi á þróun Alzheimers – jafnvel þótt ekki sé vitað hvort lyfin bera nokkurn árangur.

- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×