Erlent
Rússar hættir að kaupa Kalashnikov Rússneski herinn ætlar að hætta að kaupa Kalashnikov riffilinn, eitt frægasta vopn sögunnar. Riffillinn var hannaður af hershöfðingjanum Mikhail Kalashnikov árið 1947 sem í kjölfarið varð að þjóðhetju í Sovétríkjunum. Litlar breytingar hafa hinsvegar verið gerðar á vopninu og nú vill herinn ekki kaupa fleiri riffla nema framleiðandinn endurhanni gripinn í takt við nýjustu tækni. Erlent 28.9.2011 14:29
Dauðahafshandritin til sýnis á netinu Hin 2.000 ára gömlu Dauðahafshandrit eru nú til sýnis á netinu. Það eru Google og þjóðminjasafn Ísraels sem standa að verkefninu. Hægt er að skoða handritin í háskerpu, stækka til og lesa þýðingar fræðimanna á textunum. Upprunalegi textinn er ritaður á papýrus og pergament. Talið er að handritin hafi verið rituð og safnað saman af flökkuhópi gyðinga sem síðar meir settist að við bakka Dauðahafsins. Erlent 28.9.2011 13:45
Pútín skipar fjármálaráðherra Vladimir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefur útnefnt nýjan fjármálaráðherra eftir að Alexei Kudrin var bolað úr sæti nú á mánudaginn. Pútín ákvað að aðstoðar forsætisráherra hans, Igor Shuvalov, ætti að hafa umsjón með fjármálum hins opinbera. Hins vegar mun Anton Siluanov taka við sem fjármálaráðherra. Putin lagði tillögurnar fyrir Medvedev forseta sem samþykkti þær um hæl. Líklegt þykir að Medvedev og Pútín skipti sjálfir á stólum á næsta ári. Erlent 28.9.2011 13:17
Gadaffi undir verndarvæng hirðingja Enn á ný berast fregnir af hugsanlegum felustað Muammar Gadaffi, fyrrum leiðtoga Líbíu. Nú telja yfirvöld í Líbíu að Gadaffi haldi til við landamæri Alsír og sé þar undir vernd innfæddra Tuareg hermanna. Gadaffi flúði eftir að uppreisnarmenn náðu valdi yfir landinu í síðasta mánuði, þó er talið að Gadaffi sé enn að skipuleggja aðgerðir til hefta sókn uppreisnarmanna og að hann vinni nú að því að endurheimta traust fyrrum hermanna sinna. Talsmaður hersins í Líbíu segir leitina enn standa yfir en svæðið sem Gadaffi er talinn vera á er afar víðfemt og erfitt yfirferðar. Hann greindi einnig frá því að líklegt þyki að Gadaffi greiði Tuareg mönnun fyrir verndum. Erlent 28.9.2011 12:47
Ástarsvindl á Netinu mun algengara en talið var Um 200 þúsund Bretar, aðallega karlmenn, hafa verið plataðir á Netinu og þeim talin trú um að þeir standi í eldheitu ástarsambandi. Samkvæmt nýrri rannsókn eru svik af þessu tagi mun algengari í raun og veru en opinberar tölur frá lögreglu gefa tilefni til að ætla, því oftast nær skammast menn sín fyrir að hafa gengið í gildruna og segja því ekki nokkrum manni frá. Erlent 28.9.2011 11:00
Evrópuríkin draga í land gagnvart Sýrlendingum Evrópuríki hafa dregið úr þeim auknu þvingunum sem þau vilja beita stjórnvöld í Sýrlandi en á þessu ári hafa þúsundir mótmælenda látist í átökum við stjórnarhermenn þar í landi. Evrópuríkin höfðu sett fram harða tillögu í málinu sem leggja átti fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna en nú hefur orðalag hennar verið mildað með það að markmiði að fá Kínverja og Rússa til að samþykkja aðgerðirnar. Þau lönd hafa hingað til hótað því að beita neitunarvaldi sínu gegn öllum slíkum tillögum. Í nýju tillögunni er þess krafist að stríðandi fylkingar láti af ofbeldinu, og takist það ekki verði farið út í viðskiptaþvinganir. Erlent 28.9.2011 10:17
Sextán látnir eftir að hafa borðað eitraðar kantalópur í Kólórado Allt að sextán eru látnir og 72 alvarlega veikir eftir að Listeríubaktería barst í menn úr kantalópum sem framleiddar eru í Kólórado í Bandaríkjunum. Yfirvöld hafa rakið smitið til kantalópuræktanda á svæðinu og er nú verið að rannsaka hvernig bakterían náði að breiðast út. Matvælaeftirlit Bandaríkjanna varar við að tala smitaðra eigi eftir að hækka enda geti tekið allt að fjórar vikur fyrir smitið að gera vart við sig. Erlent 28.9.2011 10:15
Andy Rooney lýkur keppni í 60 Mínútum Andy Rooney, pistlahöfundurinn aldni sem átt hefur lokorðið í fréttaþættinum 60 Minutes á sjónvarpsstöðinni CBS mun á sunnudaginn kemur lesa áhorfendum pistilinn í síðasta sinn. Erlent 28.9.2011 09:29
Polanski tók loks við verðlaunum í Sviss Kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski tók í gær við heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar á kvikmyndahátíðinni í Zurich í Sviss. Polanski mætti reyndar tveimur árum of seint til þess að taka við verðlaununum en hann var handtekinn á leið sinni á hátíðina árið 2009 vegna þess að hann er eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir að sænga með barnungri stúlki árið 1977. Erlent 28.9.2011 08:31
Stórbruni í Kaupmannahöfn Allt tiltækt slökkvilið Kaupmannahafnarborgar hefur í morgun barist við eld í K.B sýningarhöllinni á Frederiksberg. Þeir hafa ekki fengið við neitt ráðið og nú er ljóst að höllinni, sem byggð var árið 1938 og var nýlega friðuð, verður ekki við bjargað. Erlent 28.9.2011 08:09
Morðingi fundinn eftir 41 ár á flótta Bandarísk yfirvöld segjast hafa handsamað dæmdan morðingja sem hefur verið á flótta í 41 ár. Erlent 28.9.2011 08:00
Til stuðnings Breivik Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir hatursglæpi og morðtilraunir í Svíþjóð. Þeir eru taldir hafa reynt að myrða tvo innflytjendur í Västerås í Svíþjóð til stuðnings við aðgerðir hryðjuverkamansins Anders Behring Breivik í Noregi. Erlent 28.9.2011 02:00
Vilja úttekt á bótum rokkara Félagar í vélhjólaklúbbunum Vítisenglum og Bandidos, svokallaðir „rokkarar“, þáðu um 30 milljónir danskra króna, að jafngildi um 650 milljóna íslenskra, í opinbera framfærsluaðstoð á fyrri helmingi ársins. Erlent 28.9.2011 01:15
Fleiri steinar í götu viðræðna Ísraelsk stjórnvöld gáfu í gær út heimild til þess að reisa 1.100 nýjar íbúðir í austurhluta Jerúsalem, borgarhluta sem Ísraelar hertóku árið 1967. Palestínumenn gera tilkall til austurhluta borgarinnar og hyggjast hafa þar höfuðborg sína. Erlent 28.9.2011 01:00
Mótmælendur höfðu betur Evo Morales, forseti Bólivíu, ákvað á mánudag að fresta framkvæmdum við þjóðveg sem leggja átti þvert yfir þjóðgarð og sjálfstjórnarsvæði frumbyggja. Erlent 28.9.2011 00:30
Berlusconi bað hann að ljúga Ítalski kaupsýslumaðurinn Giampaolo Tarantini hefur verið látinn laus úr fangelsi, þar sem dómari komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki reynt að kúga fé út úr Silvio Berlusconi forsætisráðherra. Erlent 28.9.2011 00:00
Lést í sjálfsprottnum bruna Það muna kannski margir eftir trommaranum í grínheimildarmyndinni um rokkhljómsveitina Spinal Tap. Þar lýsti söngvari hljómsveitarinnar vandræðum með að halda í trommara sem virtust deyja með ólíklegasta hætti. Meðal annars lést einn þeirra í sjálfsprottnum bruna. Erlent 27.9.2011 22:30
Táblætisálfurinn handtekinn Fimmtugur karlmaður var handtekinn í Arkansa í Bandaríkjunum í gær eftir að tvær konur báru kennsl á hann. Maðurinn spurði þær í verslun hvort hann mætti sjúga á þeim tærnar. Erlent 27.9.2011 21:45
Reyndist vera með lífsmarki í líkfrystinum Brasilísk kona á sextugsaldri var úrskurðuð látin og flutt í líkhús þar sem hún dvaldi í tvo tíma áður en í ljós kom að hún var enn á lífi. Erlent 27.9.2011 20:26
Ljósmynd af líki Michael Jackson sýnd í réttarhöldum Réttarhöldin yfir Conrad Murray, lækni poppgoðsins, Michael Jackson, fara nú fram í Bandaríkjunum en meðal þess sem fram hefur komið er að popparinn hafi látist eftir að hann tók sterk svefnlyf þegar læknirinn var ekki viðstaddur. Þá tók hann fleiri lyf sem ollu dauða hans. Sjálfur kallaði hann svefnlyfin sem hann tók mjólkina sína. Erlent 27.9.2011 20:05
Um 200 slösuðust í lestarslysi Um tvöhundruð manns slösuðust þegar neðanjarðarlest í Shanghai rakst aftan á aðra neðanjarðarlest í morgun. BBC fréttastofan segir að meiðsl flestra hafi verið minniháttar. Ástæður slyssins voru þær að kerfisbilun varð á einni lestarstöðinni, eftir því sem fram kemur í fréttum Xinhua fréttastöðvarinnar. Neðanjarðarlestarkerfið í Shanghai hefur verið að stækka verulega að undanförnu og það hefur haft töluverða örðugleika í för með sér. Erlent 27.9.2011 15:40
Washington minnismerkinu lokað Washington minnismerkinu, einu af helsta kennileiti höfuðborgar Bandaríkjanna, hefur verið lokað um óákveðinn tíma. Ástæðan er sú að talið er að meiri skemmdir hafi orðið á minnisvarðanum en áður var talið eftir að jarðskjálfti upp á 5,8 á Richter skók Bandaríkin þann 23. ágúst síðastliðinn. Erlent 27.9.2011 13:27
Reynt að ráða ráðherra í Jemen af dögum Varnarmálaráðherra Jemens slapp lifandi í morgun frá tilræði sem gert var við hann í borginni Aden. Yfirvöld í landinu segja að bílsprengja hafi sprungið þegar bílalest Nasser Ali ók framhjá og slösuðust nokkrir úr lífverði ráðherrans. Að auki munu tilræðismennirnir hafa hent handsprengjum í átt að bifreið hans. Erlent 27.9.2011 10:44
Réttað yfir lækni Jackson Réttarhöld hefjast í dag yfir lækninum sem sakaður er um að hafa verið valdur að dauða poppgoðsins Michael Jackson. Conrad Murray er ákærður fyrir manndráp af gáleysi og á yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi verði hann fundinn sekur. Að auki myndi hann missa lækningaleyfi sitt. Erlent 27.9.2011 09:37
Miliband fær slæma útreið í könnun Ed Miliband formaður breska verkamannaflokksins fékk slæma útreið í nýrri skoðannakönnun sem birt var í gær. Landsfundur Verkamannaflokksins stendur nú yfir og af því tilefni ákvað breska blaðið Independent að kanna hug landsmanna til flokksins og leiðtogans. Erlent 27.9.2011 09:29
Hugsanlega kætir kaffi Konur sem drekka tvo eða fleiri kaffibolla á dag eru ólíklegri til að verða þunglyndar en aðrar konur, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Erlent 27.9.2011 09:21
Sprengdu gasleiðslu sem liggur til Ísraels Hluti leiðslunnar sem flytur gas frá Egyptalandi til Ísrael og Jórdan var sprengd upp í nótt. Sjónarvottar segja við fréttastofu BBC að þrír menn hafi komið að dælustöð og hafið skothríð. Kviknað hafi í stöðinni og hún síðan sprungið í loft upp. Erlent 27.9.2011 09:14
Setja kvóta á fjölda sms-skilaboða Stjórnvöld í Indlandi hafa sett kvóta á fjölda SMS sendinga almennings. Samkvæmt nýju reglunum getur hver og einn farsímanotandi ekki sent fleiri en 100 SMS skilaboð úr símanum sínum á hverjum degi. Reglurnar eru kærkomnar fyrir þær milljónir Indverja sem á síðustu misserum hafa þurft að sætta sig við auglýsingaflóð í formi SMS skilaboða á hverjum degi frá fyrirtækjum sem reyna að selja allt frá megrunarlyfjum og yfir í fasteignir. Indverski farsímamarkaðurinn er í mesta vexti allra símamarkaða í heiminum í dag og telja farsímaeigendur í Indlandi 700 milljónir. Erlent 27.9.2011 08:32
Nesat hrellir íbúa Filippseyja Fellibylurinn Nesat gengur nú yfir Filippseyjar og hafa tveir látist hið minnsta í veðrinu og fjögurra er saknað. Hamförunum fylgja mikil flóð og er rafmagnslaust víða í landinu. Vinna liggur mestan part niðri í höfuðborginni Manila og hefur kauphöll landsins verið lokað auk fjölda annara fyrirtækja. Búist er við að fellibylurinn gangi yfir landið næstu daga og út á Suður-Kínahaf á fimmtudag. Erlent 27.9.2011 08:14
Globo fékk Emmy Brasilíska sjónvarpsstöðin Globo hlaut í gærkvöldi alþjóðlegu Emmy verðlaunin fyrir umfjöllun sína í fyrra um átök öryggissveita og vopnaðra fíkniefnasala í Rio de janeiro. Fjórar sjónvarpsstöðvar voru tilnefndar, þeirra á meðal Ríkissjónvarpið fyrir umfjöllun sína um eldgosið í Eyjafjallajökli. Erlent 27.9.2011 08:10