Veður

Bjart með köflum sunnan heiða

Í dag má búast við hægri suðvestlægri eða breytilegri átt yfir landinu og dálítilli rigningu eða súld norðan- og austantil, en stöku skúrum síðdegis. Yfirleitt verður bjart með köflum sunnan heiða og léttir víða til með kvöldinu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Veður

Gætu orðið hressi­legar dembur inn til landsins

Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, golu eða kalda, þar sem verður skýjað með köflum og stöku skúrir. Síðdegis fjölgar skúrunum og verða á víð og dreif, einkum inn til landsins með hressilegum dembum á stöku stað.

Veður

Rigning og skúrir víða um land

Lítið lægðadrag liggur nú yfir landinu sem veldur rigningu eða súld um norðan- og austanvert landið í dag. Það verður skýjað með köflum og stöku skúrir verða sunnan- og vestanlands.

Veður

Bætir í úr­komu eftir há­degi

Lægðasvæði er nú yfir Íslandi í dag og vegna þess verður hæg breytileg átt á landinu, en heldur hvassari norðanátt vestast á Vestfjörðum fram eftir degi.

Veður

Stinning­skaldi og súld suð­vestan­lands

Í dag má búast við suðvestanátt á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu og súld um landið sunnan- og vestanvert. Draga á úr vætu í kvöld. Hiti verður á bilinu tíu til nítján stig, hlýjast austanlands.

Veður

Bjart og sól­ríkt víðast hvar

Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt, 3-8 metrum á sekúndu, en 5-13 við suðaustantil í dag. Lítilsháttar vætu er spáð á Austfjörðum og Suðausturlandi, en annars léttskýjað að mestu.

Veður

Allt að ní­tján stiga hiti í dag

Milt veður í dag en möguleg bleyta á Austfjörðum og Suðausturlandi. Lægð nálgast landið sem nær þó ekki inn á land og lítil úrkoma á suðaustanverðu landinu. 

Veður

Bjart víðast hvar á landinu í dag

Í dag er útlit fyrir að það verði hæg breytileg átt eða hafgola á landinu og bjart með köflum, en skýjað og lítilsháttar væta um landið suðaustanvert. Hiti 10 til 17 stig yfir daginn og hlýjast á Vesturlandi.

Veður

Bjart og milt í dag og allt að ní­tján stiga hiti

Í dag er spáð hægri breytilegri átt og að það verði léttskýjað um mestallt land, en líkur á stöku skúrum með kvöldinu inn til landsins. Hlýnar, einkum fyrir norðan og austan og hiti víðast 12 til 19 stig yfir daginn.

Veður

Nýjasta sólmyrkva­spáin gefur í­við betri fyrir­heit

Útlit er fyrir að skil fari yfir landið á miðvikudaginn, þann 12. ágúst, og er reiknað með að skýjað verði víða en nýjustu spár herma að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið, einkum þegar tekur að kvölda. Í dag má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á norðanverðu landinu en sunnan- og vestanlands verður bjart og hlýrra en hiti fer víða yfir tíu stig.

Veður

Tals­verð úr­koma á Austur­landi

Fremur úrkomusamt verður um landið norðan- og austanvert í dag en úrkomulítið sunnan- og vestalands. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Veður

Rigning og súld á öllu landinu

Í dag er spáð norðaustan 10-15 m/s norðvestantil á landinu í dag, en 5-10 sunnan- og austanlands. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings má búast við rigningu og súld á öllu landinu og að hiti verði á bilinu sjö til 12 stig.

Veður

Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum

Vaxandi lægð er nú stödd vestur af Reykjanesi sem sendir regnsvæði sitt til austurs yfir allt landið í dag. Nokkuð blautt verður víðast hvar í dag og á morgun og töluverður vindur og víða varasamt fyrir ökutæki sem viðkvæm eru fyrir vindi. 

Veður

Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suð­vestri

Í dag er von á mildu og hlýju veðri á Austurlandi en skýjað og dálítil súld eða rigning með köflum vestantil. Þá má búast við suðlægri átt og stafar hún af lægðarsvæði sem kemur í átt að landinu úr suðvestri. Hitinn 10 til 16 stig en gæti komist upp í 18 til 19 stig allvíða á hálendinu.

Veður