Katrín: Enska liðið er ekkert ósvipað því íslenska Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2015 08:15 Jodie Taylor og Jill Scott fagna marki í sigrinum á Kanada. Vísir/EPA
Enska landsliðið mætir því japanska í seinni undanúrslitaleiknum á HM í Kanada í kvöld. Enska liðið tapaði fyrsta leik sínum á HM gegn Frakklandi en hefur svo unnið fjóra leiki í röð, alla með markatölunni 2-1, og er komið í undanúrslit í fyrsta sinn. Katrín Ómarsdóttir hefur leikið með Liverpool í ensku deildinni síðan 2013. Hún segir að áhuginn á enska liðinu hafi aukist mikið í takt við gengi þess. „Liðið fær mikinn stuðning og það sjá allir hvað þær spila með miklu stolti. Þetta mót gerir mikið fyrir kvennafótboltann á Englandi,“ sagði Katrín en svo virðist sem margir Englendingar séu fyrst núna að átta sig á því að þeir eigi kvennalið. Katrín segir að væntingarnar til enska liðsins hafi ekki verið miklar fyrir HM, m.a. í ljósi lélegs árangurs á síðasta EM: „Englendingar búast aldrei við neinu af landsliðunum sínum. En ég held að leikmennirnir hafi gert meiri væntingar til sín en almenningur.“ Katrín telur leikstíl enska landsliðsins ekki vera ólíkan leikstíl Íslands. „Þetta er mjög taktískt lið. Þær spila skipulagðan og agaðan varnarleik og nýta sér svo skyndisóknir og föst leikatriði. Svo berjast þær fram á síðustu mínútu og gefast aldrei upp,“ sagði Katrín en enska liðið hefur útfært föstu leikatriðin mjög vel á HM og fengið mikið hrós fyrir. Japanska liðið, sem er ríkjandi heimsmeistari, er gjörólíkt því enska; spilar skemmtilegan fótbolta og er almennt talið best spilandi liðið í heimsfótboltanum í dag. Þrátt fyrir að andstæðingurinn sé sterkur hefur Katrín trú á því að England geti komist í úrslitaleikinn sem fer fram í Vancouver á sunnudaginn. „Ég held að þær geti alveg unnið leikinn ef þær halda áfram að spila eins og þær hafa gert; eru agaðar og skipulagðar og nýta sér hæðar- og styrktarmuninn í föstum leikatriðum. Það þarf ekkert að vera að Japan vinni leikinn þrátt fyrir að þær verði með boltann nánast allan tímann,“ sagði Katrín að lokum.
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Sjá meira