Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bestu kvik­myndir 21. aldarinnar

Fyrsti fjórðungur 21. aldarinnar er liðinn og af því tilefni ákváðu tveir íslenskir háskólaprófessorar að taka saman lista yfir 25 bestu kvikmyndir tímabilsins. Þeir leituðu til 149 íslenskra álitsgjafa og úr varð forvitnilegur listi með afgerandi sigurvegara og miklum kynjahalla.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor

Heimsókn Karls III Bretakonungs til Bandaríkjanna virðist hafa gengið með ágætum en hann sló bæði í gegn með þrumuræðu á þinginu og þegar hann gaf gestgjafa sínum, Donald Trump forseta, forláta bjöllu úr breska kafbátnum HMS Trump.

Erlent
Fréttamynd

Þing­menn klöppuðu ó­spart fyrir konunginum

Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Á­sýnd Trump mun prýða við­hafnar­út­gáfu vegabréfsins

Stjórnvöld vestanhafs hafa ákveðið að gefa út sérstaka viðhafnarútgáfu af vegabréfum til að marka þau tímamót að 250 ár eru liðin frá stofnun Bandaríkjanna. Vegabréfin, sem gefin verða út í takmörkuðu upplagi, verða meðal annars skreytt mynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Erlent
Fréttamynd

Kol­féllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu

„Undirbúningurinn gerði veturinn mikið skemmtilegri og þetta var ákveðin gulrót, að heimsækja bestu borgina og undirbúa okkur í leiðinni,“ segir Katrín Eyjólfsdóttir en hún og eiginmaður hennar Davíð Steinn Sigurðarson skelltu sér í ógleymanlega hjónaferð til New York þar sem þau hlupu saman hálfmaraþon. Blaðamaður tók púlsinn á þeim og fékk að heyra nánar frá undirbúningnum og upplifuninni.

Lífið
Fréttamynd

„Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók í dag á móti Karli Bretakonungi og Kamillu drottningu í Hvíta húsinu í Washington DC. Konungshjónin hófu í dag fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og ávarpaði Trump þau fyrir utan Hvíta húsið. Þar sagði Trump meðal annars frá því að móðir hans hefði verið skotin í Karli konungi á árum áður.

Erlent
Fréttamynd

Merz segir Írani spila með Banda­ríkja­stjórn

Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi.

Erlent
Fréttamynd

Á­kærður fyrir bana­til­ræði við Trump

Maðurinn sem bandarísk yfirvöld segja að hafi reynt að ryðjast inn á kvöldverðarsamkomu samtaka fréttamanna í Hvíta húsinu vopnaður byssum og hnífum var ákærður í dag fyrir tilræði við Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Erlent
Fréttamynd

„Við búum í brjáluðum heimi“

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við fréttaskýringaþáttin 60 Mínútur um helgina að hann hefði ekki orðið hræddur þegar árás var gerð þar sem galakvöldverður fjölmiðla og stjórnmálamanna fór fram í Washington.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásin til marks um aukna hörku vestan­hafs

Skotárás á galakvöldverði Bandaríkjaforseta með fjölmiðlum í gær er til marks um aukna hörku í bandarískum stjórnmálum að mati sérfræðings. Árásin sé ekki til þess fallin að hafa áhrif á vinsældir forsetans.

Erlent
Fréttamynd

Trump segir komið að Írönum að hringja

Fyrirhugaðar Bandaríkjamanna og Írana runnu enn einu sinni út í sandinn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði erindrekum sínum að hætta við ferð til Islamabad í þeim tilgangi að funda með fulltrúum Írana.

Erlent
Fréttamynd

Myndir: Upp­lausn á blaðamannamóttöku

Skýrari mynd er komin af atviki á Hilton-hótelinu í Washington í gærkvöldi þegar vopnaður maður hleypti af skotvopni og ógnaði gestum sem þar sóttu móttöku. Donald Trump Bandaríkjaforseti, Melania Trump forsetafrú og JD Vance varaforseti voru meðal annarra flutt í snarhasti út af viðburðinum. 

Erlent
Fréttamynd

Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott

Donald Trump Bandaríkjaforseti, eiginkona hans Melania Trump, varaforsetinn JD Vance og ráðherrar voru fluttir í öruggt skjól þegar hættu varð vart á galakvöldverði fjölmiðla í Washington. Fregnir hafa borist af því að skothvellir hafi heyrst og að sögn yfirvalda hefur einn verið handtekinn.

Erlent
Fréttamynd

Segja engan fund á dag­skrá

Hvíta húsið segir að samningamenn á vegum Bandaríkjanna haldi til Pakistan í dag í von um að semja um frið við Írani. Írönsk stjórnvöld segja aftur á móti að engir fundir með Bandaríkjamönnum séu á dagskrá, þrátt fyrir að utanríkisráðherra Írans sé í Íslamabad.

Erlent