Gróðureldar
1 2 3 … 3 ›
Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda. Innlent 23.2.2026 13:02
Vatnsból hefðu verið í hættu ef vindáttin hefði verið önnur Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu verið í hættu vegna sinueldsins við Elliðavatn ef vindáttin hefði verði önnur í gær. Vatnsbólið er að finna ekki langt frá svæðinu sem brann og geta brunar sem þessi mengað þau. Innlent 23.2.2026 08:02
Enginn sinueldur og róleg nótt hjá slökkviliði eftir eril gærdagsins Nóttin var með rólegasta móti hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eftir annasaman dag í gær þar sem mikill sinueldur logaði víða. Mestur bruninn varð við suðvesturhorni Elliðavatns og í átt að Heiðmörk en þar tókst að ráða niðurlögum eldsins á áttunda tímanum í gærkvöldi. Innlent 23.2.2026 06:29
Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Í þann mund sem slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var að ráða niðurlögum elds við Elliðavatn barst tilkynning um annan eld við Krýsuvíkurleiðina. Innlent 22.2.2026 19:57
Sinueldur við Elliðavatn Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið. Innlent 22.2.2026 15:39
Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur slökkt í fjórum sinueldum á innan við sólahring. Ekki hefur ringt né snjóað í lengri tíma á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 22.2.2026 13:20
Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Allt tiltækt slökkvilið á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit var kallað út á fimmta tímanum í dag eftir að tilkynning barst um sinubruna undir Akrafjalli. Innlent 19.2.2026 17:33
Sinueldur við Framheimilið Slökkvilið var í kvöld ræst út í Úlfarsárdal þar sem sinueldur logaði nálægt Framheimilinu. Slökkvilið virðist vera búið að ráða niðurlögum sinubrunans. Innlent 15.2.2026 18:44
Sæti Artúrs logar Sinueldur kviknaði á Sæti Artúrs, fjallinu sem gnæfir yfir Edinborg, í dag. Fjallið er vinsæll áfangastaður ferðamanna og borgarbúa á hlýjum sumardögum en í dag sást login og reykstrókarnir um alla borgina. Erlent 10.8.2025 22:12
„Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Eldri kona er látin og að minnsta kosti eins er saknað í gróðureldum sem nú geisa í suðurhluta Frakklands. Forsætisráðherrann François Bayrou heimsótti Aude í gær, þar sem eldarnir hafa brunnið á svæði sem er stærra en París. Erlent 7.8.2025 07:24
Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Sex þingmenn Repúblikanaflokksins hafa ritað sendiherra Kanada í Washington D.C. erindi þar sem þeir kvarta yfir því að reykur frá gróðureldum í landinu sé að eyðileggja sumarið fyrir íbúum Wisconsin og Minnesota. Erlent 10.7.2025 08:48
Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Slökkvilið í Frakklandi hafa í dag barist við mikla skógarelda sem loga í útjaðri Marseille, næststærstu borgar Frakklands. Öllu flugi til og frá borginni hefur verið aflýst. Erlent 8.7.2025 21:37
Stjórnlaus gróðureldur ógnar heimilum á Krít Tæplega tvöþúsund íbúum á grísku eyjunni Krít hefur verið gert að yfirgefa heimili sín en þar brenna nú gróðureldar stjórnlaust á stóru svæði. Erlent 3.7.2025 07:48
Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Umfangsmiklir gróðureldar hafa logað í dag á vinsælu grísku ferðamannaeyjunni Chios, þar sem yfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi og íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Rýma hefur þurft sextán þorp og úthverfi í aðalbænum Chios town. Erlent 23.6.2025 20:34
Slökktu gróðurelda á Ströndum með aðstoð þyrlu Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna gróðurelda í Þjóðbrókargili í Selárdal á Ströndum. Slökkvistörf gengu vel og búið var að slökkva eldinn á áttunda tímanum. Innlent 15.6.2025 20:10
Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Brunavarnir Árnessýslu slökktu sinueld við Apavatn upp úr hádegi í dag. Ábúandi var þar að brenna rusl á miðri sinubeðju þegar eldurinn breiddist svo út. Slökkviliðsmönnum var alls ekki skemmt enda ekki fyrsta sinn sem þeir hafa þurft að sinna slíku útkalli. Innlent 14.6.2025 13:45
Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Hætta á gróðureldum á Austurlandi þar sem lítil úrkoma hefur verið síðustu vikur hefur aukist síðustu daga. Almannavarnir hvetja íbúa og gesti í sumarhúsahverfum þar sem gróður er mikill til þess að fara varlega með eld við þær aðstæður. Innlent 13.5.2025 08:31
Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum Þann 30. mars árið 2006 kviknaði sinueldur við þjóðveg 54, norðvestan við Borgarnes, en þessi sinueldur átti eftir að verða sá stærsti í Íslandssögunni. Lífið 4.5.2025 12:15
Réðu niðurlögum sinuelds við Húsafell Tilkynning barst slökkviliði Borgarfjarðar um sinueld við Húsafell um hádegið í dag. Búið var að ráða niðurlögum eldsins um þrjúleytið. Innlent 26.4.2025 15:56
24 látnir og 1.000 ára hof brunnið í fordæmalausum gróðureldum Að minnsta kosti 24 hafa látist í skógareldum í Suður-Kóreu, sem stjórnvöld segja fordæmalausa. Flestir voru á sjötugs- og áttræðisaldri. Þá eru 26 særðir, þar af tólf lífshættulega. Erlent 26.3.2025 11:40
Sautján látnir vegna ofsafenginna vinda, hvirfilbylja og sandstorma Sautján eru látnir og tugir slasaðir vegna hvirfilbylja og ofsafenginna vinda sem hafa farið um mið- og suðurríki Bandaríkjanna síðustu tvo daga. Veðrakerfi sem færist austur yfir landið hefur orsakað mikla sandstorma og mörg hundruð gróðurelda í tólf ríkjum. Erlent 15.3.2025 18:22
Búa sig undir það versta Íbúar í Los Angeles í Bandaríkjunum búa sig nú undir það að vindurinn fari að blása á ný þannig að gróðureldarnir sem enn brenna sæki í sig veðrið. Erlent 14.1.2025 08:18
Að minnsta kosti 24 látnir Búist er við að heiti og þurri vindurinn sem knýr áfram eldana í Los Angeles eigi eftir að magnast aftur á næstu dögum. Danskur fjölskyldufaðir syrgir heimili sitt í borginni líkt og þúsundir annarra. Að minnsta kosti 24 eru látnir. Erlent 13.1.2025 22:07
Hnjúkaþeyrinn sem knýr áfram eldana mannskæðu í Los Angeles Heitur og þurr vindurinn sem knýr áfram eldana mannskæðu í Los Angeles á að magnast aftur eftir svikalogn um helgina. Santa Ana-vindarnir svonefndu eru af sama meiði og hnjúkaþeyrinn sem Norðlendingar njóta góðs af í suðlægum vindáttum. Erlent 13.1.2025 14:50
Eldar í Hollywood: Hneyksla sig á tryggingum, leigu og launum Eldar halda áfram að gera íbúum Los Angeles og stjörnum Hollywood lífið leitt. Meðal þess sem stjörnurnar keppast nú við að vekja athygli á í bandarískum miðlum eru lág laun slökkviliðsmanna, tryggingar húsnæðiseigenda og leiguverð þeirra sem neyðst hafa til að yfirgefa heimili sín. Lífið 13.1.2025 11:32
Tala látinna hækkar í LA og veðurspáin er óhagstæð Tala látinna í eldunum í Los Angeles borg í Bandaríkjunum er nú kominn í 24 og er sextán hið minnsta saknað. Erlent 13.1.2025 06:57
Alls sextán látin í eldunum Alls eru 16 nú látin vegna gróðureldanna í Los Angeles. Í gær voru þau 11 þannig þeim hefur fjölgað um fimm. Fimm létust í Palisades eldunum og ellefu í Eaton eldunum. Alls er þrettán saknað og er talið líklegt að fjöldi látinna muni hækka þegar viðbragðsaðilar fái tækifæri til að fara yfir eyðilögð hús. Talið er að allt að 12 þúsund hús og byggingar séu eyðilögð. Erlent 12.1.2025 10:15
Fyrrverandi barnastjarna og feðgar meðal látinna Gróðureldarnir í Los Angeles fara nú í nýja átt sem veldur nýjum hættum. Alls eru ellefu látin í eldunum en er búist við því að sú tala hækki þegar slökkviliðsmenn fá tækifæri til að skoða þau hús betur sem hafa brunnið. Erlent 11.1.2025 16:03
Útgöngubann í borginni í nótt Íslendingur sem býr í Los Angeles segir ófremdarástand ríkja í borginni en erfiðlega gengur að ná stjórn á gróðureldum sem þar geisa. Tíu hafa látist hið minnsta í eldunum og mörg þúsund hús brunnið, Útgöngubann verður í hluta borgarinnar í nótt en þjófar hafa nýtt sér ástandið og látið greipar sópa. Erlent 10.1.2025 20:07
Með þvottaklemmu á sér í beinni frá eldunum Bandaríski sjónvarpsmaðurinn David Muir ákvað að festa þvottaklemmu á sig til þess að líta betur út í slökkviliðsbúning þar sem hann var staddur við gróðurelda í Los Angeles í beinni útsendingu. Athæfið hefur vakið mikla athygli og sjónvarpsmaðurinn verið harðlega gagnrýndur vegna þessa. Lífið 10.1.2025 16:01