Barnalán

Fréttamynd

Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn

Á þriðja tug kvenna kusu að fæða án aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi á árunum 2022 til 2025. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands telur aukinn fjölda mæðra sem kjósa þessa leið vera tilkominn vegna áhrifa frá Bandaríkjunum þar sem konur þurfa að borga fyrir aðkomu ljósmæðra. Þá hafi hún áhyggjur af ljósmæðrum sem séu settar inn í slíkar aðstæður of seint.

Innlent
Fréttamynd

Ó­létt 52 ára

Bandaríska leikkonan Hillary Swank og eiginmaður hennar, Philip Schneider, eiga von á sínu þriðja barni í desember. Swank, sem varð 52 ára í sumar, varð fyrst móðir fyrir rúmum þremur árum þegar hún eignaðist tvíbura. Leikkonan frysti egg sín 37 ára gömul til að geta einbeitt sér að leiklistarferlinum.

Lífið
Fréttamynd

Aníta Briem og Haf­þór ó­létt á ný

Aníta Briem og Hafþór Waldorff eiga von á sínu öðru barni saman. Þau segja að sér hafi ekki dottið í hug að þetta væri mikill möguleiki eftir að hafa eignast sitt fyrra barn með glasafrjóvgun.

Lífið
Fréttamynd

Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur

Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir og tónlistarmaðurinn Vilhelm Anton Jónasson, betur þekktur sem Villi naglbítur, eignuðust dóttur þann 27. september síðastliðinn. Fyrir á parið saman soninn Hring og svo á Villi tvo syni úr fyrra sambandi.

Lífið
Fréttamynd

Kristín og Kol­beinn eiga von á janúarbarni

Kristín Ólafsdóttir, fyrrverandi fréttakona og núverandi aðstoðarkona forsætisráðherra, og Kolbeinn Arnarson, meistaranemi í verkefnastjórnun í Háskólanum í Reykjavík, eiga von á sínu fyrsta barni.

Lífið
Fréttamynd

Staðgöngumóðir var það

Bandaríska stórstjarnan Lady Gaga og eiginmaður hennar frumkvöðullinn Michael Polansky eignuðust barn með aðstoð staðgöngumóður. Frá þessu keppast bandarískir slúðurmiðlar nú við að greina frá en fyrst var greint frá barneign þeirra í síðustu viku.

Lífið
Fréttamynd

Ísak Berg­mann og Agnes Perla eiga von á barni

Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í knattspyrnu, og Agnes Perla Sigurðardóttir, fyrrverandi unglingalandsliðskona í körfubolta, eiga von á barni. Þetta tilkynntu þau í færslu á Instagram.

Lífið
Fréttamynd

Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður

Lena Dunham, rithöfundur, leikkona og höfundur sjónvarpsþáttanna Girls, eignaðist dóttur með eiginmanni sínum, Luis Felber, með hjálp staðgöngumóður í sumar. Dunham hefur verið opinská um glímu sína við endómetríósu og fór í legnám til að losna við króníska verki sem fylgja sjúkdómnum.

Lífið
Fréttamynd

Lady Gaga orðin mamma

Bandaríska stórstjarnan og söngkonan Lady Gaga er orðin móðir. Barnið eignaðist hún með unnusta sínum, frumkvöðlinum Michael Polansky.

Lífið
Fréttamynd

TikTok-stjörnur fjölga mann­kyninu

Áhrifavaldaparið Ólafur Jóhann Steinsson og Sigurlaug Birna Garðarsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið hefur verið saman í sex ár og verða að þriggja manna fjölskyldu á næsta ári.

Lífið
Fréttamynd

Fæddi barn utan við verslun Elko

Barn fæddist fyrir utan verslun Elko í Skeifunni í gærkvöldi en Rúv greindi fyrst frá. Að sögn Sigurjóns Hendrikssonar hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu koma atvik sem þetta öðru hverju fyrir og slökkviliðsmenn hafa tekið á móti börnum á ýmsum stöðum.

Innlent
Fréttamynd

Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur

Rut Magnúsdóttir vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar ókunnugur maður nálgaðist hana í Ísbúðinni Háaleiti í Reykjavík árið 2024. „Hann vatt sér bara upp að mér og bauð mér á deit í ísbúð og ég var að spá hvaða vitleysingur þetta væri. Mér fannst þetta samt svolítið spennandi, þannig að ég ákvað að segja já og svo keyptum við okkur bara ísbúð.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu

Leikstjórinn Baltasar Kormákur Baltasarsson og myndlistarkonan Sunneva Ása Weisshappel eiga von á öðru barni sínu saman og er það væntanlegt á næstu dögum. Fyrir eiga þau dótturina Kilju Kormák og svo á Baltasar fjögur önnur börn úr fyrri samböndum.

Lífið
Fréttamynd

Þor­steinn Leó orðinn pabbi

Stórskyttan Þorsteinn Leó Gunnarsson og kærasta hans, Andrea Dís Skúladóttir, eru orðnir foreldrar eftir að frumburður þeirra kom í heiminn um helgina.

Lífið
Fréttamynd

Jóhanna Guð­rún ó­létt

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og viðskiptafræðingurinn Ólafur Friðrik Ólafsson eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau saman eina dóttur og svo á Jóhanna Guðrún tvö börn úr fyrra sambandi.

Lífið
Fréttamynd

Usher þver­tekur fyrir klónið

Tónlistarmaðurinn Usher segist alls ekki hafa ráðið tvífara eða hannað klón af sjálfum sér til að stíga á svið á tónleikum hans á dögunum. Ásakanirnar fóru á flug á samfélagsmiðlum eftir að tónleikagestur birti myndband af flutningi hans og fjölmargir skrifuðu undir að þetta gæti ómögulega verið Usher.

Lífið
Fréttamynd

Aubrey Plaza orðin mamma

Grínistinn og leikkonan Aubrey Plaza er orðin móðir. Hún eignaðist frumburð sinn, litla stúlku, í lok júlí með leikaranum Christopher Abbott.

Lífið
Fréttamynd

Sonur Mari og Njarðar fæddur

Ofurhlauparinn Mari Järsk fæddi son sinn og Njarðar Lúðvíkssonar í gær. Mari birti mynd á samfélagsmiðli sínum seint í gær um að drengurinn væri „mættastur“.

Lífið
Fréttamynd

Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn

Usha Vance, varaforsetafrú Bandaríkjanna, fæddi barn á sunnudaginn. Um er að ræða fjórða barn hennar og JD Vance en þau eiga fyrir Ewan, níu ára, Vivek, sex ára, og Mirabel, fjögurra ára.

Erlent
Fréttamynd

„Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn

Fjölskylda listaparsins Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur og Júlís Heiðars Halldórssonar heldur áfram að stækka en dóttir þeirra kom í heiminn á dögunum. Móður og barni heilsast vel en Þórdís gerði sér lítið fyrir og mætti í brúðkaup örfáum dögum eftir fæðinguna.

Lífið