Raunveruleikaþættir

Bók Hugleiks kom sænskum manni í vandræði
Bók eftir skopmyndateiknarann Hugleik Dagsson olli vandræðum hjá pari í sænskum raunveruleikaþætti á dögunum. Parið var næstum því hætt saman því maðurinn átti bók eftir Hugleik.

Colton Underwood loksins genginn í það heilaga
Bandaríski raunveruleikaþáttastjarnan Colton Underwood úr Bachelor þáttunum er alls enginn piparsveinn lengur en hann gifti sig loksins unnustanum Jordan C. Brown um helgina. Meira en ár síðan elskendurnir trúlofuðu sig.

Love Island stjarna fékk óvænt boð í krýningu Karls
Breska raunveruleikaþáttastjarnan Tasha Ghouri hefur fengið óvænt boð um að vera viðstödd hátíðarhöld vegna krýningu Karls Bretakonungs þann 6. maí næstkomandi. Stjarnan greinir sjálf frá þessu á samfélagsmiðlinum Instagram.

MasterChef-dómarinn Jock Zonfrillo er látinn
Skoski sjónvarpsmaðurinn Jock Zonfrillo er látinn, 46 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem dómari í áströlsku útgáfu MasterChef-þáttanna.

Sænska Idolið vendipunktur í lífi Diljár: „Eitt það sársaukafyllsta sem ég hef gert“
Það er óhætt að segja að hin kraftmikla og hæfileikaríka Diljá Pétursdóttir hafi sungið sig inn í hjörtu landsmanna á síðustu mánuðum en hún bar sigur úr býtum í Söngvakeppni sjónvarpsins og mun því keppa í Eurovision fyrir Íslands hönd eftir aðeins örfáa daga.

Sambandið rann út í sandinn skömmu eftir Ástareyjuna
Parið Samie Elishi og Tom Clare lentu í þriðja sæti í nýjustu þáttaröð Ástareyjunnar (e. Love Island). Ástin entist þó ekki lengi hjá parinu því eftir einungis nokkrar vikur utan eyjunnar hættu þau saman.

Sögð vera byrjuð saman á ný
Parið Millie Court og Liam Reardon stóðu uppi sem sigurvegarar í sjöundu þáttaröð raunveruleikaþáttanna Love Island. Síðasta sumar hættu þau saman en nú, níu mánuðum síðar, eru þau sögð vera byrjuð að rugla saman reitum á ný.

Íslenskur kokkanemi vann Masterchef í Noregi
Róbert Ómarsson, Íslendingur sem búsettur er í Noregi, stóð uppi sem sigurvegari í Masterchef – Unge Talenter í Noregi. Hann er á þriðja ári í kokkanáminu og starfar sem kokkanemi á Michelin-veitingastað í Osló.

Kim Kardashian sá Arsenal tapa í gær
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian var í stúkunni á Emirates þegar Arsenal tapaði fyrir Sporting eftir vítaspyrnukeppni í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.

Sigurvegarar Love Island voru krýndir í kvöld
Sigurvegarar vetrarútgáfu raunveruleikaþáttanna vinsælu Love Island voru krýndir í kvöld. Fólk getur strax sótt um að taka þátt í næstu þáttaröð.

Raunveruleikastjörnur slíta trúlofuninni
Raunveruleikastjórnurnar Joey Sasso og Kariselle Snow hafa slitið trúlofun sinni. Þau trúlofuðu sig í lokaþætti Netflix-þáttaraðarinnar Perfect Match.

Ása keppir í Biggest Loser í Þýskalandi: „Svona ferðalag er ekki dans á rósum“
Ný þáttaröð Biggest Loser er sýnd um þessar mundir í Þýskalandi. Þar er hin íslenska Ása Ástardóttir meðal keppenda en hún hefur strax náð að vekja mikla athygli í fyrstu þremur þáttunum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ása tekur þátt í raunveruleikaþætti úti í Þýskalandi.

Katy Perry brast í grát: Missti vini sína í skotárás í framhaldsskóla
Katy Perry, söngkona og einn dómara Idol í Bandaríkjunum, brast í grát eftir að hinn 21 árs gamli Trey Louis mætti í áheyrnarprufu. Trey var nemandi í Santa Fe High School þegar byssumaður skaut þar tíu manns til bana árið 2018.

Saga Matthildur vann Idolið
Saga Matthildur er Idol-stjarna Íslands. Hún keppti til úrslita í kvöld á móti Kjalari og bar sigur úr býtum.

Bríet tók sjálf þátt í hæfileikaþætti áður en hún varð landsþekkt
Eins og vart hefur farið fram hjá neinum verður ný Idolstjarna krýnd í kvöld. Það er þó ekki aðeins sigurvegarinn sjálfur sem á möguleika á því að verða stjarna, heldur hafa fleiri keppendur sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna og á þjóðin eflaust eftir að sjá meira af þeim.

Rúrik krefst milljóna vegna þátttökunnar í Let‘s Dance
Rúrik Gíslason, fyrrverandi knattspyrnumaður og áhrifavaldur, hefur höfðað mál á hendur þýsku umboðsskrifstofunni Topas International. Vill Rúrik meina að skrifstofan skuldi sér 45 þúsund evrur, um sjö milljónir króna, vegna þátttöku sinnar í raunveruleikaþáttunum Let‘s Dance í Þýskalandi.

Fordæmir Balenciaga eftir að óhugnanlegar myndir fóru í birtingu
Athafnakonan Kim Kardashian segir nýja auglýsingaherferð Balenciaga sláandi og ógeðslega. Hún fordæmdi merkið á Twitter í kjölfarið á harðri gagnrýni á nýja auglýsingaherferð tískuhússins.

„Þetta er erfiðasta innivinna sem ég hef unnið“
„Ég sagði bara fljótlega já, vegna þess að mig langaði bara að gera þetta. Mér fannst bara vera kominn tími til að gera eitthvað svona, eitthvað sem ég hafði aldrei gert áður. Svo þegar ég frétti hvaða fólk væri með mér í þessu þá var þetta bara engin spurning.“

Hafa ekki enn opinberað endanlegt nafn sonarins
Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner hefur ekki enn greint frá því hvað tæplega tíu mánaða gamall sonur hennar eigi að heita. Þau voru búin að gefa drengnum nafn sem þau hættu svo við, þar sem þeim fannst það ekki eiga nógu vel við hann.

Ekki auðveld ákvörðun að hætta saman
Parið Gemma Owen og Luca Bish, sem byrjuðu að slá sér upp í raunveruleikaþáttunum Love Island, eru hætt saman eftir þriggja mánaða samband. Gemma er dóttir fótboltamannsins Michael Owen sem spilaði fyrir Liverpool og enska landsliðið.

Blake Shelton hættir í The Voice
„Ég hef tekið ákvörðun um að tími sé kominn fyrir mig að hætta í The Voice eftir næstu seríu,“ sagði kántrí söngvarinn Blake Shelton í tilkynningu. Það er óhætt að segja að þættirnir hafi breytt lífi hans en í þeim kynntist hann meðal annars núverandi eiginkonu sinni Gwen Stefani.

Þegar sextán ára Harry Styles heillaði heimsbyggðina
Harry Styles er í dag einn vinsælasti tónlistarmaður jarðarinnar. Hann er sem stendur á alheimstónleikaferðalagi og er uppselt á alla tónleika Styles

Stórfenglegur flutningur Sólveigar dugði ekki til sigurs
Sólveig Birta Hannesdóttir keppti í gær í úrslitum The Voice Kids Germany. Sólveig stóð sig frábærlega en tókst ekki að vinna keppnina.

Stóra stundin rennur upp hjá Sólveigu Birtu í kvöld
Í kvöld fara fram úrslit í söngvakeppninni The Voice Kids Germany. Sólveig Birta Hannesdóttir, 13 ára Íslendingur, er einn keppanda.

Sólveig Birta komin í úrslit The Voice Kids
Sólveig Birta Hannesdóttir, sem sló í gegn í þýska Voice fyrir um mánuði síðan, komst fyrr í kvöld áfram í úrslit keppninnar.

Rúrik var syngjandi górilla í Þýskalandi
Rúrik Gíslason tók nýlega þátt í þýsku útgáfunni af þáttunum The Masked Singer. Á Instagram-síðu sinni segist hann vera þakklátur fyrir reynsluna sem hann öðlaðist í keppninni.

Dómari gekk út þegar Giuliani var afhjúpaður í sjónvarpsþætti
Rudy Giuliani, fyrrum lögfræðingur Donald Trump og borgarstjóri New York, var afhjúpaður í þættinum The Masked Singer í gær og það varð til þess að einn dómaranna gekk út.

Sólveig Birta komst áfram í The Voice Kids
Sólveig Birta Hannesdóttir, sem sló í gegn í þýska Voice fyrir um mánuði síðan, komst rétt í þessu áfram í keppninni.

Ákvað sex ára að taka þátt í Voice: „Ég fékk alveg sjokk þegar hann snéri sér við“
Hin tólf ára Sólveig Birta sló í gegn í þýska þættinum The Voice Kids á dögunum og kepptust dómarar keppninnar við að fá að vinna með Íslendingnum. Hún stefnir á að vinna sem söngkona eða handboltakappi í framtíðinni.

Tólf ára Íslendingur sló í gegn í þýska Voice
Tólf ára Íslendingur sló í gegn í þýska Voice og kepptust dómarar þáttarins við að fá Íslendinginn í sitt lið.