Innlent
Sátt um skýrslu en rifist um RÚV Rætt var um fjölmiðla á Alþingi í gær þegar menntamálaráðherra kynnti skýrslu fjölmiðlanefndar og mælti fyrir frumvarpi sínu um Ríkisútvarpið. Meiri sátt ríkti um skýrsluna en frumvarpið sem stjórnarandstaðan lýsti óánægju sinni með.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:02
Forsetahjónin á Akureyri Opinber heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og Dorritar Moussaieff forsetafrúar til Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins hófst klukkan hálfníu í morgun en þá tóku framámenn innan Akureyrarbæjar á móti þeim á flugvellinum. Forsetahjónin heimsækja ýmsa skóla og stofnanir og í kvöld verður fjölskylduhátíð í Íþróttahöllinni þangað sem öllum bæjarbúum er boðið. Innlent 13.10.2005 19:02
Fjölmiðlamál rædd á þingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kynnti í dag skýrslu fjölmiðlanefndarinnar á Alþingi og fara nú fram umræður um hana á þinginu. Ráðherra sagði mikilvægt að fram færi víðtæk og málefnaleg umræða um þær tillögur sem lagðar væru fram af fjölmiðlanefndinni og hvatti hún fjölmiðla til þess að axla ábyrgð með svipuðum hætti og stjórnmálamenn gerðu með því að ná þvertpólitískri sátt um málið. Innlent 13.10.2005 19:02
Risaborar nýtast vart lengur Risaborar þeir er notaðir eru vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka og hafa reynst framar vonum munu að líkindum ekki nýtast í önnur verkefni þegar að framkvæmdum fyrir austan lýkur. Innlent 13.10.2005 19:02
Best að borga ekki Nokkur fyrirtæki hafa lent í vandræðum vegna sænsks fyrirtækis sem rukkar þau fyrir skráningu í gagnagrunn sinn þrátt fyrir að ekki hafi verið beðið um skráninguna. Innlent 13.10.2005 19:02
Samþykktu kjarasamning við ríkið Félag flugmálastarfsmanna ríkisins hefur samþykkt kjarasamning við ríkið með rúmum 80 prósentum greiddra atkvæða. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB. Á kjörskrá voru 145, 115 greiddu atkvæði og sögðu 94 eða 82% já en 16 eða 14% nei. Innlent 13.10.2005 19:02
Skiptar skoðanir um sameiningu Kosið verður um sameiningu sveitarfélaga í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar þann 23. apríl. Skoðanir um sameiningu eru skiptar í Skorradalshreppi, minnsta sveitarfélaginu, sem hefur 64 íbúa. Áhugi fyrir sameiningu er mun meiri í stærsta sveitarfélaginu, Borgarbyggð. Innlent 13.10.2005 19:02
Beitir sér á svæði Actavis Starfsgreinasambandið hefur miðlað upplýsingum og fræðslu og beitt sér fyrir bættum kjörum starfsmanna hjá íslenskum fyrirtækjum erlendis, til dæmis á svæði Actavis í Búlgaríu, Serbíu og á Möltu, og hyggst gera það áfram. Innlent 13.10.2005 19:02
Erill hjá lögreglu Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og var mikil ölvun í miðbænum og heimahúsum. Sjö voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Á slysavarðstofu Landspítala - Háskólasjúkrahúss var einnig talsvert að gera en að sögn vakthafandi læknis var enginn fluttur þangað alvarlega slasaður. Innlent 13.10.2005 19:02
Vara við norrænum brögðum Varað hefur verið við erindi frá sænska fyrirtækinu Nordisk Industri þar sem óskað er skriflegrar staðfestingar á faxi með ýmsum upplýsingum, til dæmis um símanúmer og heimilisfang. Innlent 13.10.2005 19:02
Þyrla sótti slasaðan sjómann Þyrla Varnarliðsins sótti slasaðan sjómann um borð í togarann Snorra Sturluson um klukkan eitt í nótt. Sjómaðurinn er töluvert mikið slasaður en hann fékk þungt högg á brjóstkassann og hlaut innvortis meiðsl. Hann liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut og er ástand hans stöðugt að sögn vakthafandi læknis. Innlent 13.10.2005 19:02
Flokkspólitík hlaupin í málið Samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir vefritið Tíkina vilja 73 prósent borgarbúa að svæðið milli Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur verði þróað áfram sem útivistarsvæði en ekki boðið undir byggingar. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segist gera athugasemdir við orðalag spurningar í könnuninni og segir bullandi flokkspólitík hlaupna í málið. Innlent 13.10.2005 19:02
Lýst eftir stúlku Lögreglan í Keflavík lýsir eftir Þorgerði Gísladóttur, 18 ára stúlku frá Grindavík. Hún sást síðast yfirgefa heimili sitt í gærkvöldi klukkan hálftíu. Bifreið hennar fannst í Keflavík í dag en ekkert hefur spurst til hennar sjálfrar. Innlent 13.10.2005 19:02
Hálka á Holtavörðuheiði Snjóþekja er víða á Suður- og Vesturlandi. Hálka er á Holtavörðuheiði og ófært er á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði. Snjóþekja og éljagangur eru víða á Norðausturlandi og snjóþekja og snjókoma á Austurlandi. Innlent 13.10.2005 19:02
Gölluð reglugerð Alþýðusambandið gagnrýnir nýja reglugerð félagsmálaráðuneytisins um atvinuréttindi útlendinga og telur að hún sé meingölluð. Vinnumálastofnun sé látin um að túlka stefnu stjórnvalda í þessum málaflokki á hverjum tíma. Innlent 13.10.2005 19:02
Össur sendir Ingibjörgu sneið Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir fátt nýtt koma frá framtíðarhópi flokksins en honum stýrir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, keppinautur hans um formannssætið í flokknum. Innlent 13.10.2005 19:02
Yfirlýsing ráðherra köld vatnsgusa Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri lýsir vonbrigðum með ummæli Sturlu Böðvarssonar um að vafasamt sé að ráðist verði í byggingu Sundabrautar fyrr en ný samgönguáætlun gerir ráð fyrir jafnvel þótt verkið verði sett í einkaframkvæmd. Innlent 13.10.2005 19:02
Borða minnst af ávöxtum Íslensk og spænsk skólabörn borða allra barna minnst af ávöxtum í Evrópu. Portúgölsk skólabörn borða hinsvegar allra barna mest af ávöxtum. Innlent 13.10.2005 19:02
Dýrahátíð í Reiðhöllinni Troðfullt var í reiðhöllinni í Víðidal í dag á mikilli dýrahátíð sem þar var haldin. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá, auk þess sem hunda- og kattaræktarfélög Íslands kynntu gestum og gangandi mismunandi tegundir dýranna. Innlent 13.10.2005 19:02
Stórar umbúðir utan um lítið Össur Skarphéðinsson gefur ekki mikið fyrir hugtakið umræðustjórnmál og segir það ofnotað. Hann segir Framtíðarhóp Samfylkingarinnar fámennan og lokaðan hóp. Innlent 13.10.2005 19:02
Lokað vegna símabilunar Vegna bilunar í símalínu var ekki hægt að afgreiða bensín eða díselolíu á Vopnafirði frá morgni síðastliðins miðvikudags og fram eftir degi. Innlent 13.10.2005 19:02
50% á móti Kárahnjúkavirkjun Rúmlega fimmtíu prósent Reykvíkinga eru á móti byggingu Kárahnjúkavirkjunnar en helmingur landsmanna henni fylgjandi. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands í mars. Innlent 13.10.2005 19:02
Leitað aftur án árangurs Á laugardaginn gengu björgunarsveitarmenn fjörur frá Þjórsá til Herdísarvíkur í leit að Brasilíumanninum Ricardo Correia Dantas, sem ekkert hefur spurst til síðan hann hvarf á Stokkseyri fyrir rúmri viku. Leitin bar engan árangur. Innlent 13.10.2005 19:02
Bæta aðgang innflytjenda Læknir telur að bæta megi aðgang innflytjenda að heilbrigðiskerfinu hér á landi, þótt þeir séu ýmsu vanir frá sínu heimalandi og kvarti ekki. Innlent 13.10.2005 19:02
Úrbóta þörf í fangelsismálum Fangavarðafélag Íslands fagnar þeirri stefnumörkun sem fram hefur komið með áformum um byggingu nýs fangelsis. Félagið segir löngu orðið tímabært að horft sé til framtíðar í fangelsismálum Innlent 17.10.2005 23:41
Sjúkrahúsið fékk ekki að taka þátt Yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað er ósáttur við að sjúkrahúsið tók ekki þátt í stóru slysavarnaæfingunni sem fram fór á Austurlandi um helgina. Hann segir fjórðungssjúkrahúsið vera eina bráðasjúkrahúsið á Austurlandi og starfsfólkið hefði getað lært mikið af æfingunni - hefði verið reiknað með því. Innlent 13.10.2005 19:02
Úrskurður á föstudag Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir úrskurðar að vænta í máli Og Fjarskipta vegna viðskiptavina Margmiðlunar. Innlent 13.10.2005 19:02
Íslendingar vakna of snemma Klukkan á Íslandi er vitlaus miðað við líkamsklukku Íslendinga. Við ættum að seinka klukkunni, en alls ekki flýta henni til samræmis við ýmsa aðra Evrópubúa, segir geðlæknir sem heldur því fram að Íslendingar vakni of snemma. Menning 13.10.2005 19:02
Flugmálastjórn hlutafélagavædd? Flugmálastjórn Íslands verður hlutafélagavædd ef tillögur ráðherraskipaðrar nefndar um framtíðarskipan flugmála ná fram að ganga. Tillögur nefndarinnar hafa verið kynntar í ríkisstjórn. Innlent 13.10.2005 19:02
Stefna stjórnvalda kemur ekki fram Stefna stjórnvalda um atvinnuréttindi til útlendinga kemur ekki fram í nýrri reglugerð um málefnið að mati Alþýðusambands Íslands. Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, gagnrýnir að Vinnumálastofnun sé eftirlátið að túlka stefnu stjórnvalda á hverjum tíma. Innlent 13.10.2005 19:02