Innlent
Ásþungi takmarkaður fyrir austan Vegagerðin hefur ákveðið að takmarka ásþunga á nokkrum vegum á Miðausturlandi vegna hættu á slitlagsskemdum. Takmörkunin er við sjö tonna ásþunga. Innlent 21.4.2006 12:20
Frestað vegna endurupptöku í Bretlandi Mál Jóns Ólafssonar gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Héraðsdómur frestaði málinu þar sem enn er beðið endurupptöku málsins í Bretlandi. Innlent 21.4.2006 12:13
Gengislækkun hefur áhrif á leiguverð bíla Afborganir á bílum í rekstrar- og einkaleigu hækka vegna lækkandi gengis krónunnar og aukinnar verðbólgu. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að einstaklingar gætu þurft að meta stöðuna upp á nýtt því ekki sé svo auðvelt að losna undan samningum. Innlent 21.4.2006 11:39
Enn langt í framkvæmdir við Sundabraut Vegamálastjóri segir ekki hægt að hefja lagningu Sundabrautar fyrr en hönnun hennar er lokið. Hönnunin getur tekið eitt og hálft ár en ekki verður hafist handa við hana fyrr en ákvörðun liggur fyrir um hvar Sundabrautin á að liggja. Innlent 21.4.2006 12:11
Deildu um bensínálögur Stjórnarandstæðingar á þingi kröfðust þess í morgun að stjórnvöld lækkuðu álögur á eldsneyti til að draga úr efnahagslegum áhrifum verðhækkana á bensíni. Stjórnarliðar gáfu hins vegar lítið fyrir slíkt. Innlent 21.4.2006 12:01
Mikil aukning félagsmanna Rúmlega hundrað nýir félagar bættust í Verkalýðsfélag Húsavíkur á fundi stjórnar og trúnaðarráðs fyrr í vikunni. Þetta er rúmlega tífalt meira en venja er til á slíkum fundum. Innlent 21.4.2006 09:32
Bjartsýn á tilboð frá samninganefndum Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu munu hittast á sáttafundi hjá Ríkissáttasemjara klukkan tvö í dag. Þetta er annar samningafundurinn milli samninganefndanna. Álfheiður Bjarnadóttir, talskona ófaglærðra starfsmanna á dvala- og hjúkrunarheimilum, segist bjartsýn á að einhver tilboð komi fram á fundinum. Innlent 21.4.2006 09:56
Ófært fyrir vestan og víða leiðindafærð Færð á vegum er víða ekki eins og best verður á kosið á þessum öðrum sumardegi ársins samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þannig er ófært yfir Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði er þungfær auk þess sem hálkublettir eru á flestum heiðum á Vestfjörðum. Innlent 21.4.2006 09:54
Óttast að laun lækki Líklegt er að laun lækki en gerviverktaka og atvinnuleysi aukist vegna niðurfellingar takmarkana á vinnuréttindum erlendra verkamanna hér á landi. Þetta segir stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Húsavíkur sem hefur áhyggjur af því að íbúar átta Austur-Evrópuríkja í ESB fá full atvinnuréttindi á við aðra íbúa EES-svæðisins frá 1. maí næst komandi. Innlent 21.4.2006 09:19
Tekjutenging verður ekki afnumin Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segist ekki stefna að því að fella niður tekjutengingu almannatryggingabóta. Þetta kemur fram í svari hennar við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Innlent 21.4.2006 09:15
Trassa að fara til tannlæknis Áttunda hvert ungmenni á aldrinum fimmtán til sautján ára hefur ekki farið til tannlæknis um tveggja ára skeið og helmingur þeirra ekki um þriggja ára skeið. Innlent 21.4.2006 08:53
Nýtt þjónustuver Reykjavíkurborgar Á mánudaginn opnar Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar þjónustuver í Skúlatúni 2. Nýja þjónustuverið mun taka við helstu verkefnum sem áður var sinnt af fimm minni afgreiðslum sem voru staðsettar í höfuðstöðvum sviðsins. Undirbúningur að stofnun þjónustuversins hefur staðið frá því í september en það er áfangi í skilulagsbreytingum sem unnið hefur verið að í rúmt ár. Almenn afgreiðsla verður lokuð til hádegis í dag vegna breytinganna. Innlent 21.4.2006 07:27
Verið að moka vegi á Vestfjörðum Á Vesturlandi er snjóþekja á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Á sunnanverðum Vestfjörðum er þæfingur á heiðum og mokstur stendur yfir. Hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði og ófært er um Eyrarfjall en mokstur er hafinn. Þá eru hálkublettir víða á heiðum á Norður- Norðaustur og Austurlandi. Þjóðvegir á Suður- og Suðausturlandi eru greiðfærir. Innlent 21.4.2006 08:01
Stöðvuðu ökuréttindalausan ökumann Tveir hassmolar fundust í bíl sem lögreglan í Keflavík stöðvaði í Garðinum í gærkvöldi. Þeir sem voru í bílnum viðurkenndu að eiga efnið og höfðu ætlað það til eigin nota. Innlent 21.4.2006 07:11
Tveir menn handteknir vegna gruns um innbrot Lögreglan í Reykjavík handtók tvo menn nú í morgunsárið sem grunaðir eru um innbrot á Njálsgötunni. Þá var einnig brotist inn á tveimur öðrum stöðum í miðborginni í nótt en margt bendir til að sömu menn hafi verið þar á ferð. Lögreglan er með mennina til yfirheyrslu en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Innlent 21.4.2006 06:53
Örninn er lentur Tökur á þriðju sjónvarpsþáttaröðinni um dansk-íslenska lögreglumanninn, Hallgrím Örn Hallgrímsson, fara nú fram hér á landi og er gert ráð fyrir að þær standi yfir í 16 daga. Byrjað er í Vestmannaeyjum. Innlent 20.4.2006 18:22
Íbúar í Reykjavík fyrir 874 Árið 871, eða tveimur árum fyrr eða síðar, bjó í Reykjavík fólk sem hafði reist þar varanlegt mannvirki. Ingólfur Arnason á að hafa sest hér að fyrstur manna 874, eins og segir í sögubókunum. En fornleifarannsóknir í Aðalstræti sýna að hér voru menn fyrr á ferðinni. Innlent 20.4.2006 19:03
Íslandsmeistarinn í blómaskreytingum karlkyns Eini karlkyns þátttakandinn í Íslandsmeistarakeppninni í blómaskreytingum bar sigur úr býtum í keppninni sem fram fór í Hveragerði í dag. Einnig voru þar afhent Garðyrkjuverðlaunin fyrir árið 2006 og Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar. Innlent 20.4.2006 18:59
Markmiðið að koma í veg fyrir fjölgun innflytjenda Ásgeir Hannes Eiríksson, sem hvatt hefur til stofnunar þjóðernisflokks á Íslandi, með það að markmiði að koma í veg fyrir fjölgun innflytjenda til Íslands, segist hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð fólks við tillögu sinni. Skoðanakönnun Gallups sýnir að ríflega 32% þjóðarinnar væru reiðubúin að kjósa slíkan flokk. Innlent 20.4.2006 19:00
Íslenskur maður enn í gæsluvarðhaldi í Burnley Máli íslensks karlmanns, sem grunaður er um að hafa tælt enska stúlku á netinu, hefur verið vísað á æðra dómstig í Englandi. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í febrúar. Innlent 20.4.2006 17:46
Ferðastyrkjum úr Vildabörnum úthlutað 25 börn og fjölskyldur þeirra fengu í dag ferðastyrk úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair og hefur aldrei verið úthlutað til jafn maargra. Flestar fjölskyldurnar eru íslenskar en nú fær tvær fjölskyldur, frá Danmörku og Englandi, styrk úr sjóðnum. Innlent 20.4.2006 17:27
Fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita vegna vélsleðaslyss sem varð í Gjástykki suður af Húsavík kl. 11 í morgun. Karlmaður fór þar á vélsleða sínum fram af klettavegg. Hann reyndist illa brotinn á handlegg og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann gengst undir aðgerð á hendi. Innlent 20.4.2006 15:54
Efling ályktar til stuðnings ófaglærðum á hjúkrunarheimilum Fjölmennur félagsfundur Eflingar-stéttarfélags beindi því í gærkvöldi til samninganefndar hjúkrunarheimila og heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis að ganga þegar í stað að kröfum launafólks á vinnustöðunum til að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir ófaglærðra starfsmanna. Innlent 20.4.2006 12:33
Aðeins tímaspursmál að þjóðernisflokkur yrði stofnaður Dósent í stjórnmálafræði segir að það komi ekki á óvart að menn hyggi á að stofna þjóðernisflokk hér á landi líkan þeim sem þekkjast í nágrannalöndunum, slíkt hafi aðeins verið tímaspursmál. Hann segir að frekar beri að nýta kraft nýrra Íslendinga en að efna til ófriðar við þá. Innlent 20.4.2006 12:24
Hátíðahöld víða um land í tilefni sumarkomu Ætla má að brúnin sé farin að lyftast á flestum landsmönnum því sumartíð með blóm í haga er framundan. Fyrsti dagur sumars er einmitt í dag og verður hann haldinn hátíðlegur víða um land. Vetur og sumar frusu saman í nótt sem sagt er að boði hlýtt sumar. Innlent 20.4.2006 12:25
Ríkissjóður varð að kyngja verulegri vaxtahækkun Ríkissjóður varð að kyngja verulegri vaxtahækkun á lánum sem hann tók í tilboðum í gær. Lánin voru upp á einn og hálfan milljarð. Innlent 20.4.2006 12:20
Örlög Varnarliðsins ráðin þegar Davíð hætti Örlög Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru ráðin þegar Davíð Oddsson gekk úr ríkisstjórninni, því að mati Bandaríkjamanna var Bush forseti þá ekki lengur bundinn af persónulegum loforðum við Davíð, segir John Vinocur dálkahöfundur The New York Times. Innlent 20.4.2006 12:08
Kappakstur á Akureyri Lögreglan á Akureyri batt enda á kappakstur tveggja sautján ára ökumanna á Hörgárbraut upp úr miðnætti í nótt. Annar var á 115 kílómetra hraða en hinn á 103 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Þá stöðvaði lögreglan í Keflavík ökumann á 166 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Innlent 20.4.2006 11:06
BÍ mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands í gærkvöldi mótmælti harðlega fyrirætlunum um að þrengja starfsskilyrði blaðamanna sem fram koma í frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um dómstóla. Innlent 20.4.2006 10:59
Vélsleðaslys í Gjástykki Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita vegna vélsleðaslyss sem varð í Gjástykki suður af Húsavík kl. 11 í morgun. Karlmaður fór þar á vélsleða sínum fram af klettavegg og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun hann hafa handleggsbrotnað. Innlent 20.4.2006 11:04