Innlent

Örlög Varnarliðsins ráðin þegar Davíð hætti

Dálkahöfundur New York Times segir örlög Varnarliðsins hafa verið ráðin þegar Davíð Oddsson gekk úr ríkisstjórn.
Dálkahöfundur New York Times segir örlög Varnarliðsins hafa verið ráðin þegar Davíð Oddsson gekk úr ríkisstjórn. MYND/Gunnar V. Andrésson

Örlög Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru ráðin þegar Davíð Oddsson gekk úr ríkisstjórninni, því að mati Bandaríkjamanna var Bush forseti þá ekki lengur bundinn af persónulegum loforðum við Davíð, segir John Vinocur dálkahöfundur The New York Times.

Í greininni varpar hann ljósi á hversu íslendingar standi einir eftir brottför Varnarliðsins, og áhugaleysi annarra á að taka við varnarhlutverkinu hér. Í því samhengi rifjar hann upp að íslendingar ræddu nýverið um það hjá NATO, hvernig nú ætti að haga vörnum landsins og segir orðrétt: "Þeim var svarað með dauða þögn og margir viðstaddra hvörfluðu augum til himins".

Þá fer hann háðulegum orðum um samstöðu Norðurlandanna, sérstaklega árásir norska olíusjóðsins á lánshæfi íslenskra banka og fyrir nokkrum dögum hafi svo komið í ljós að bandamennirnir svonefndu voru að gera aðför að íslensku krónunni. Íslendingar hafi ekki ná málamiðlun við Bandríkjamenn árið 2003, þegar það hafi hugsanlega verið mögulegt, en nú hafni Bandaríkjamenn þeim greiðslum sem Íslendingar séu tilbúnir að reiða fram, gegn því að varnir verði áfram á Keflavíkurflugvelli, enda sé persónulegt loforð Bush við Davíð Oddsson ekki lengur í gildi.

Þá hefur Vinocur eftir Geir H. Haarde utanríkisráðherra að hann hafi talað við valdamenn í Frakklandi, þýskalandi og á Norðurlöndum um einhverskonar hervarnir. jafnvel kæmi til greina að leita eftir aðild að Evrusvæðinu, til að tryggja jafnvægi í efnahagsmálum.

Í framhaldi af því víkur Vinocur enn að þeirri einangrun, sem við Íslendingurm blasir á alþjóðavettvangi og segir orðrétt: " Íslendingum hefur lengi liðið vel með því að hafa hagstætt samband bæði við Evópu og Bandaríkin, og haldið báðum í hæfilegri fjarlægð. Það er ekki framtíð sem íslendingar hafa þráð að sjá Bandaríkjamenn fara og horfa fram á skerðingu sjálfstæðis síns með þvi að ganga í Evrópusambandið. Þeir, það er að segja íslendingar, kæmu sem auðmjúkir umsækjendur og yrðu fámennasta og óhamingjusamasta þjóðin í Evrópusambandinu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×