Danski boltinn

Góður endir eftir slaka úrslitakeppni hjá Íslendingaliðinu Brøndby
Eftir að hafa aðeins unnið einn leik af níu í úrslitakeppninni endaði Íslendingaliðið Brøndby tímabilið á góðum nótum, með hreinu marki og eins marks sigri gegn Odense í dönsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta.

Táningurinn sem sökkti Man Utd á leið frá Kaupmannahöfn
Hinn 19 ára gamli Roony Bardghji er á förum frá FC Kaupmannahöfn. Hann á aðeins hálft ár eftir af samningi sínum við Danmerkurmeistarana og vill félagið selja hann í sumar frekar en að missa hann frítt um mitt tímabil.

Sunneva lagði upp fyrir framan metfjölda áhorfenda
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir lagði upp fyrra mark FCK er liðið vann 2-1 sigur gegn Næstved fyrir framan metfjölda áhorfenda á Parken í dag.

FC Kaupmannahöfn vann tvöfalt
FC Kaupmannahöfn er bikarmeistari karla í fótbolta í Danmörku. Á sunnudaginn tryggði liðið sér danska meistaratitilinn og fagnaði eftir því. Engin ummerki um þreytu var að sjá á liðinu í dag er það vann bikarmeistara síðasta árs, Silkeborg, örugglega.

Sótt að Sævari Atla á flugvellinum í Bergen
Hópur fjölmiðlamanna var mættur á flugvöllinn í Bergen í morgun þegar að knattspyrnumaðurinn Sævar Atli Magnússon lenti þar ásamt umboðsmanni sínum á leið í viðræður við norska úrvalsdeildarfélagið Brann.

Sævar og Nóel fallnir úr dönsku úrvalsdeildinni
Lyngby og Aalborg, lið Sævars Atla Magnússonar og Nóels Atla Arnórssonar, eru bæði fallin úr dönsku úrvalsdeildinni. Sævar og félagar töpuðu 5-1 gegn Sönderjyske. Nóel og félagar töpuðu 2-3 gegn Silkeborg. Liðin munu mætast í þýðingarlausum leik í lokaumferðinni næstu helgi.

Daníel Tristan og Mikael með stoðsendingar
Daníel Tristan Guðjohnsen lagði upp annað mark Malmö í 4-1 útisigri á Degerfors. Þá lagði Mikael Neville Anderson upp eina mark AGF í 1-3 tapi gegn Randers.

Sunneva Hrönn og stöllur í FCK tryggðu sig upp um deild
FC Kaupmannahöfn hefur tryggt sér sæti í næstefstu deild danska kvenna fótboltans á næsta ári. Það gerði liðið með 3-2 sigri á AaB. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir byrjaði leikinn fyrir FCK.

Fyrsti deildarsigur Brøndby á árinu
Brøndby vann langþráðan sigur þegar liðið sótti Nordsjælland heim í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Lokatölur 1-3, Brøndby í vil.

Sævar skoraði í fyrsta sigrinum í einn og hálfan mánuð
Sævar Atli Magnússon og félagar í Lyngby unnu í dag mikilvægan sigur í fallbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

María hetja dagsins en mark Ingibjargar dugði skammt
Íslensku knattspyrnukonurnar María Ólafsdóttir Grós og Ingibjörg Sigurðardóttir voru báðar á skotskónum í leikjum liðanna sinna í dag.

Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske
Segja má að Daníel Leó Grétarsson hafi rekið síðasta naglann í kistu Menno van Dam, þjálfara Álaborgar í efstu deild danska fótboltans. Markið tryggði Sönderjyske sigur á Álaborg um helgina og nú er Van Dam atvinnulaus.

FCK tímabundið á toppinn
FC Kaupmannahöfn lagði AGF 3-1 í síðasta leik dagsins i efstu deild karla í danska fótboltanum. Landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson lék allan leikinn á miðjunni hjá AGF á meðan markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamannabekk FCK.

Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby
Sævar Atli Magnússon lék allan leikinn fyrir Lyngby sem gerði 1-1 jafntefli við Viborg í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby
Brøndby gerði 1-1 jafntefli við OB í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi
Daníel Leó Grétarsson kom Sönderjyske 3-1 yfir í mikilvægum sigri í Álaborg þegar liðin mættust í efstu deild dönsku knattspyrnunnar. Leikurinn endaði með 3-2 sigri gestanna og mark Daníels Leó því sigurmarkið. Kolbeinn Þórðarson skoraði þá fyrra mark Gautaborgar í tapi gegn BK Häcken.

Slæmur skellur á móti nágrönnunum
Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson og félagar í AGF fengu slæman skell í dag í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Sönderjyske vann Íslendingaslaginn
Daníel Leó Grétarsson, Kristall Máni Ingason og félagar í Sönderjyske fögnuðu mikilvægum sigri í dag í Íslendingaslag í fallbaráttuhluta dönsku úrvalsdeildarinnar.

Byrjaði sem grín en endaði með því að Römer fór frá Lyngby til Akureyrar
Marcel Römer var fyrirliði Lyngby í efstu deild Danmerkur en þó ekki í myndinni hjá þjálfarateymi félagsins. Hann grínaðist með að vilja prófa eitthvað nýtt og er nú mættur til Akureyrar þar sem hann mun spila fyrir bikarmeistara KA í Bestu deild karla í fótbolta.

Þremur mínútum frá mikilvægum sigri
Brøndby, lið landsliðskvennanna Ingibjargar Sigurðardóttur og Hafrúnar Rakelar Halldórsdóttur, var hársbreidd frá því að vinna mikilvægan sigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Sævar Atli með fyrsta markið sitt á árinu 2025
Sævar Atli Magnússon skoraði langþráð mark í kvöld þegar Lyngby náði jafntefli á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi
Hægri bakvarðarstaðan hjá danska úrvalsdeildarfélaginu FC Kaupmannahöfn gæti verið að losna verði dönskum saksóknurum að ósk sinni.

Skallaði boltann tvisvar framhjá Elíasi Rafni
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland töpuðu dýrmætum stigum í kvöld í titilbaráttunni í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Tók Ara þrjár mínútur að skora fyrsta markið
Ari Sigurpálsson átti algjöra draumabyrjun sem leikmaður Elfsborg, eftir söluna frá Víkingi, þegar hann skoraði í dag eftir að hafa spilað örfáar mínútur. Markið má sjá í greininni.

Erfið staða Ingibjargar og Hafrúnar en nýja liðið neitar að tapa
Íslenskar landsliðskonur voru á ferðinni í danska og sænska fótboltanum í dag. Ingibjörg Sigurðardóttir og Hafrún Rakel Halldórsdóttir eru í erfiðri stöðu í baráttunni um sæti í úrslitum danska bikarsins.

Héldu hreinu gegn toppliðinu
Brøndby gerði markalaust jafntefli við Fortuna Hjørring í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ingibjörg Sigurðardóttir stóð vaktina í vörn Brøndby.

Danskur fótboltamaður skiptir um landslið
Danski varnarmaðurinn Stefan Gartenmann vill ekki spila lengur fyrir danska landsliðið heldur ætlar hann nú hér eftir að spila fyrir svissneska landsliðið.

Þjálfarinn lofaði Mikael: „Var okkar besti maður“
Uwe Rösler, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins AGF, hrósaði Mikael Neville Anderson í hástert eftir 1-1 jafntefli við Viborg í gær.

Mikael tryggði AGF stig gegn Viborg
Mikael Neville Anderson skoraði eina mark AGF sem gerði 1-1 jafntefli við Viborg í dönsku efstu deild karla í knattspyrnu í dag.

Sjaldséð tækifæri Sveindísar og Ingibjörg í undanúrslit
Sveindís Jane Jónsdóttir og Emilía Kiær Ásgeirsdóttir mættust í sjö mínútur þegar Wolfsburg vann Leipzig 2-0 á útivelli í efstu deild Þýskalands.