Fótbolti

Kane og Putellas hlutu Gullboltann

Sindri Sverrisson skrifar
Alexia Putellas og Harry Kane fluttu þakkarræður eftir verðlaunin sem þau hlutu á Ballon d'Or í kvöld.
Alexia Putellas og Harry Kane fluttu þakkarræður eftir verðlaunin sem þau hlutu á Ballon d'Or í kvöld. Samsett/Getty

Enski landsliðsmaðurinn Harry Kane hlaut í kvöld Gullboltann í fyrsta sinn og spænska landsliðskonan Alexia Putellas hlaut hann í þriðja sinn, þegar Ballon d'Or-verðlaunahátíðin var haldin með pompi og prakt í London.

Stærstu stjörnur fótboltans voru flestar mættar í Palladium-leikhúsið í kvöld en þær voru þó misfljótar að skila sér og hátíðin hófst seinna en ella vegna umferðartafa.

Hátíðin var í fyrsta sinn haldin utan Parísar og allt kvöldið mátti heyra Englendinga í salnum kalla nafn Kane í von um að Englendingurinn hlyti verðlaunin eftirsóttu. Það varð svo allt vitlaust þegar Kane var kallaður upp á svið til að taka við þeim og ekki síður þegar hann þakkaði Tottenham í þakkarræðu sinni.

Þessi 33 ára framherji varð fyrsti Englendingurinn í aldarfjórðung til að hljóta verðlaunin eftir magnað ár með Þýskalandsmeisturum Bayern München og enska landsliðinu þar sem hann skoraði samtals 73 mörk, þar af 61 mark í 51 leik fyrir Bayern sem er félagsmet. Kane hlaut verðlaunin þrátt fyrir að England félli út í undanúrslitum á HM og Bayern félli út í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Tíu efstu karlarnir:

  1. Harry Kane
  2. Kylian Mbappé
  3. Lamine Yamal
  4. Rodri
  5. Lionel Messi
  6. Khvicha Kvaratskhelia
  7. Ousmane Dembélé
  8. Erling Haaland
  9. Michael Olise
  10. Fabián Ruiz

Hin 32 ára gamla Putellas hlaut Gullboltann í þriðja sinn eins og fyrr segir. Hún hlaut verðlaunin einnig árin 2021 og 2022 áður en alvarleg krossbandsmeiðsli héldu henni lengi frá keppni og urðu næstum til þess að enda ferilinn hennar.

Liðsfélagi Putellas hjá Barcelona og spænska landsliðinu, Aitana Bonmatí, tók þá við og vann verðlaunin síðustu þrjú ár í röð. Verðlaunin voru fyrst veitt í kvennaflokki árið 2018 svo að fyrir utan Putellas og Bonmatí hafa aðeins Ada Hegerberg (árið 2018) og Megan Rapinoe (2019) unnið þau.

Tíu efstu konurnar:

  1. Alexia Putellas
  2. Ewa Pajor
  3. Khadija Shaw
  4. Melchie Dumornay
  5. Patri Guijarro
  6. Caroline Graham Hansen
  7. Pernille Harder
  8. Claudia Pina
  9. Alessia Russo
  10. Temwa Chawinga

Putellas skoraði samtals 26 mörk og átti 15 stoðsendingar í 53 leikjum fyrir Barcelona og spænska landsliðið á síðustu leiktíð. Hún vann allt sem hægt var að vinna með Barcelona í vor en tók svo afar óvænt skref þegar hún gekk í raðir London City Lionesses í sumar og er nú farin að láta til sín taka í ensku úrvalsdeildinni.

Spánverjar rökuðu inn verðlaunum

Landsliðsmarkverðir Spánar hlutu Yashin-verðlaunin sem bestu markverðirnir í ár. Cata Coll vann allt sem hægt var að vinna með Barcelona og Unai Simon, sem ver mark Athletic Bilbao, átti ríkan þátt í heimsmeistaratitli Spánar í sumar. 

Ungstirni ársins voru þau Lamine Yamal og Vicky López, líkt og í fyrra og raunar var þetta þriðja árið í röð sem Yamal hlýtur verðlaunin. Bæði eru þau leikmenn Barcelona og Spánar.

Pere Romeu og Luis de la Fuente voru verðlaunaðir sem bestu þjálfararnir. Romeu vann allt sem hægt var að vinna með kvennalið Barcelona og De La Fuente stýrði karlalandsliði Spánar til sigurs á HM í sumar.

Barcelona var valið kvennalið ársins og PSG karlalið ársins en þessi lið unnu Meistaradeild Evrópu í vor. PSG-menn voru þó alls ekki allir á svæðinu því liðið spilaði í kvöld í frönsku 1. deildinni, fagnaði 2-0 sigri gegn Lyon og komst á topp frönsku deildarinnar.

Hin 35 ára Charlyn Corral varð fyrsti Mexíkóinn til að hljóta Gerd Müller verðlaunin sem mesti markaskorari kvenna á árinu, eftir að hafa raðað inn 42 mörkum í 42 leikjum fyrir Pachuca í heimalandinu. Kane hlaut sömu verðlaun í karlaflokki fyrir samtals 73 mörk fyrir Bayern München og enska landsliðið.

Bukayo Saka, leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, hlaut svo Sókratesar-verðlaunin fyrir víðtækt framlag sitt til mannúðarmála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×