Kjósar­hreppur

Kjósar­hreppur

Mannfjöldi: 301. Flatarmál: 284 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fönguðu kol­efni með sömu að­ferð og átti að nota í Hval­firði

Bandarískir vísindamenn segja að tilraun sem þeir gerðu með basalausn í Maine-flóa hafi bundið kolefni úr lofti án þess að skaða sjávarlífverur. Utanríkisráðherra hafnaði því að veita leyfi fyrir sambærilegri tilraun í Hvalfirði síðasta sumar þrátt fyrir jákvæðar umsagnir sérfræðistofnana.

Erlent
Fréttamynd

Hnúfu­bakur í bana­stuði í Hval­firði

Þeir félagar, frændur og nágrannar, Baldur Ketilsson kerfisstjóri hjá Vegagerðinni og Eyjólfur Matthíasson ljósmyndari náðu einstöku myndefni af hnúfubak sem var að leika listir sínar rétt við land í Hvalfirðinum.

Innlent
Fréttamynd

Rannsóknar­leyfi Rastar hafnað

„Ráðuneytið lauk afgreiðslu umsóknar Rastar um rannsóknarleyfi fyrir helgi og var félaginu tilkynnt með bréfi sl. föstudag að umsókn félagsins um rannsóknarleyfi hefði verið hafnað.“

Innlent
Fréttamynd

Breyta Kaffi Kjós í í­búðar­hús

Hjónin Hermann Ingólfsson og Birna Einarsdóttir eru búin að selja Kaffi Kjós og verður veitingastaðnum lokað í kjölfarið. Í tilkynningu á Facebook-síðu veitingastaðarins kemur fram að húsinu verði breytt í íbúðarhús.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ræðst í byggingu átta húsa í Hvamms­vík

Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi sjóbaðanna í Hvammsvík í Hvalfirði, hefur látið ráðast í smíði átta ný húsa við Hvammsvík sem hugsuð eru sem gistiaðstaða fyrir ferðamenn. Húsin bætast við þau fjögur gistihús sem fyrir eru á svæðinu en nýju húsin verða nokkuð smærri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Til­raun með basa í Hval­firði ekki sögð hættu­leg líf­ríki

Magn basa sem félagið Röst vill losa út í Hvalfjörð í sumar til þess að rannsaka kolefnisbindingu sjávar er ekki hættuleg lífríki og er minna en það sem iðn- og hafnarfyrirtæki mega losa út í sjó að staðaldri, að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Sérfræðingur Hafró segir erfitt að sjá að tilraunin valdi skaða á firðinum.

Innlent
Fréttamynd

Kaffi Kjós til sölu

Kaffi Kjós við Meðalfellsveg er til sölu. Kaffihúsið hefur verið rekið frá árinu 1998 og eigendur segja samfélagið á svæðinu vona að veitingarekstur haldi þar áfram.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Biluð rúta í Hval­fjarðar­göngum og lokað næstu tvær nætur

Biluð rúta olli því að loka þurfti Hvalfjarðargöngum um sexleytið í kvöld. Hvalfjarðargöngin verða einnig lokuð vegna vinnu frá miðnætti í kvöld þangað til 6:30 í fyrramálið. Göngin verða einnig lokuð á sama tíma aðfararnótt fimmtudags 6. júní. Hjáleið er um Hvalfjarðarveg (47).

Innlent
Fréttamynd

Mikil gleði þegar Bergur komst í mark

Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, lauk um klukkan 14 í dag 100 kílómetra göngu sinni frá Akranesi til Reykjavíkur. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­breytt verk­efni hjá björgunar­sveitum í dag

Björgunarsveitarfólk hafði í nógu að snúast í dag og þurfti að fara í margskonar útköll. Koma þurfti áhöfn smábáts til aðstoðar undan ströndum Snæfellsness og þar að auki þurfti að koma göngumanni til aðstoðar við gönguleiðina upp að Glym. Þá barst einnig tilkynning um slys á vélsleða við Háskerðing, norðan Mýrdalsjökuls.

Innlent
Fréttamynd

Yngstu börnin inn­rituð í Garða­bæ og Mos­fells­bæ

Á höfuðborgarsvæðinu er nú unnið að því að innrita börn í leikskóla fyrir bæði næsta haust og sum þetta vorið. Um er að ræða árganga barna sem fæddust árin 2022 og 2023 en misjafnt er eftir sveitarfélögum hversu langt þau ná inn í árið 2023. 

Innlent