Frakkland

Frakkland

Höfuðborg: París. Mannfjöldi: 65,6 milljónir (2025). Flatarmál: 551.695 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Færir Selenskí eldflaugateikningar

Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, ferðaðist í morgun til Kænugarðs í Úkraínu. Er það hans fyrsta opinbera heimsókn frá því hann tók við embætti í síðasta mánuði en þangað fór hann með teikningar af breskum og frönskum stýriflaugum sem hann ætlar að afhenda Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá sumum ríkjum.

Innherji
Fréttamynd

Komst undan á­samt fjöl­skyldunni

„Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“

Innlent
Fréttamynd

Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið

Alls hefur ríflega tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns verið gert að rýma svæði í Suður-Evrópu og nú loga gróðureldar víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum borgarinnar Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn

Franskur maður sem kynnti Jeffrey Epstein fyrir fyrirsætum í gegnum árin fannst látinn á heimili sínu í gær. Daniel Siad var 69 ára gamall en ekki liggur fyrir enn hvernig hann dó.

Erlent
Fréttamynd

Frakkar lög­leiða samfélagsmiðlabann barna

Franska þingið samþykkti í gærkvöld frumvarp sem bannar samfélagsmiðlanotkun barna yngri en fimmtán ára. Þannig eru Frakkar orðnir fyrsta Evrópusambandsríkið til að taka upp slíkt bann.

Erlent
Fréttamynd

Hand­takan þyrfti að byggja á al­þjóða­lögum

Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum.

Erlent
Fréttamynd

Segir ó­tíma­bært að ræða undan­þágur

Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Hann átti í dag fund með utanríkisráðherra Íslands, sem segir slíkar undanþágur ekki hafa borið á góma í samræðum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævin­týri

„Augustin hafði beðið afa sinn og ömmu um leyfi hálfu ári áður en hann bað mín. Við vorum öll saman úti að borða og þau töluðu saman á frönsku, þannig að ég hafði enga hugmynd um hvað væri í gangi,“ segir hin nýgifta Margrét Björk Ólafsdóttir sem giftist sínum heittelskaða Augustin Eude við gullfallega athöfn í frönsku sveitinni.

Lífið
Fréttamynd

„Drullið ykkur í burtu“

Kanadíska stórstjarnan Hudson Williams var að þrotum kominn í París á dögunum eftir að hafa verið eltur á röndum af mönnum sem vinna við það að selja eiginhandaráritanir. Einn mannanna tók Williams upp á myndband sem hefur farið sem eldur um sinu á Internetinu.

Lífið
Fréttamynd

Miklir skógar­eldar nærri París

Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg. 

Erlent
Fréttamynd

Heimsins frægasti refill fluttur til Bret­lands

Bayeux-refillinn, eitt af mestu stórvirkjum listasögunnar, var fluttur frá Frakklandi til Englands í nótt í háleynilegri aðgerð. Refillinn hefur ekki yfirgefið Frakkland í tæplega þúsund ár, eða frá því að hann var fluttur þangað frá Englandi, þar sem hann er talinn hafa verið saumaður út af enskum nunnum.

Erlent
Fréttamynd

Le Pen stað­festir forsetaframboð

Marine Le Pen hyggst bjóða sig fram til forseta Frakklands á næsta ári. Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en hún ætli að áfrýja til hæstaréttar Frakklands.

Erlent
Fréttamynd

Ó­víst með fram­boð Le Pen eftir tví­ræðan dóm

Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Marine Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en mildaði verulega bann sem hún hlaut við því að bjóða sig fram. Hún getur tæknilega boðið sig fram til forseta á næsta ári en óljóst er hvort hún geri það eftir niðurstöðuna.

Erlent
Fréttamynd

Geir­vörtur og latex vekja at­hygli í París

Tískuhúsið Schiaparelli er eitt það heitasta í dag og vekur alltaf hvað mesta athygli á tískuvikum víða um heim. Daniel Roseberry er listrænn stjórnandi merkisins og einkennist hönnun hans af gríðarlegri sköpunargleði og frumlegheitum sem hafa aldrei sést fyrr.

Tíska og hönnun