Erlent

Gríðar­legur við­búnaður í Frakk­landi vegna morgun­dagsins

Jón Þór Stefánsson skrifar
Lögreglumenn verða sjötíu þúsund talsins í Frakklandi á morgun.
Lögreglumenn verða sjötíu þúsund talsins í Frakklandi á morgun. Getty

Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á morgun þar sem yfirvöld reyna að stemma stigum við mikilli mótmælaöldu sem hefur á síðustu vikum farið vaxandi.

The Guardian greinir frá þessu.

Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, sagði að á meðal þeirra sem myndu taka þátt í aðgerðum lögreglu yrðu sérhæfð teymi sem vanalega hafa það starf að bregðast við hryðjuverkaógn eða takast á við gíslatökur. Þá sagði ráðherrann að öfga-vinstri hópar hefðu á samfélagsmiðlum kallað eftir því að ofbeldi yrði beitt í mótmælunum.

Hægt er að lesa nánar um mótmælaölduna hér.

„Við erum ekki að tala um friðsæl, vinsæmleg mótmæli,“ sagði Nuñez að loknum fundi með öðrum ráðherrum og Emmanuel Macron, Frakklandsforseta.

„Við erum tilbúin í morgundaginn og verðum ofboðslega föst fyrir og munum ekki líða neitt.“

Jafnframt sagði Nuñez að lögreglan myndi beita vatnsslöngum, vopnuðum bílum, þyrlum, og drónum.

Búist er við mótmælum í þónokkrum frönskum borgum á morgun. Þau hafa þó verið bönnuð í einhverjum þeirra, og í öðrum hefur skipuleggjendum verið gert að færa mótmæli sín til að vernda verslanir og byggingar hins opinbera. Einnig er búist við mótmælum á Ítalíu, Austurríki, Spáni, Portúgal, Albaníu og á Írlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×