Erlent

Stolnu mál­verkin fundust á bak við vegg

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Málverkin eru hundruð milljóna króna virði.
Málverkin eru hundruð milljóna króna virði. AP

Tvenn málverk eftir listmálarann Pierre-Auguste Renoir er fundin eftir að þeim var stolið af safni til heiðurs málaranum. Málverkin fundust falin fyrir aftan vegg.

Málverkin tvö heita Portrait de Madame Colonna Romano og Jeune Femme au puits og eru talin vera 4,2 milljóna evra virði eða tæpar sex hundruð milljónir króna.

Nicolas Bessone, saksóknari í Marseille, tilkynnti á blaðamannafundi í dag að bæði málverkin fundust við húsleit á heimili í bænum Clermont-l'Herault. Málverkin voru falin á bak við vegg úr holsteini og fundust við aðra húsleit lögreglunnar. Bæði verkin báru merki um skemmdir. 

„Þau voru algjörlega ógreinanleg,“ sagði Bessone samkvæmt France24.

Þjófarnir brutust inn á safnið, sem er fyrrum heimili málarans í bænum Cagnes-sur-Mer, í byrjun september. Þeir höfðu á brott með sér fjögur listaverk en skildu tvö þeirra eftir þegar þeir flúðu vettvang. Lögreglan kom á vettvang fimm mínútum eftir að viðvörunarkerfi safnsins fór í gang og voru þjófarnir á bak og burt.

Sex hafa verið handteknir vegna málsins og meðal tveggja helstu grunuðu er 29 ára gamall karlmaður. Erfðaefni úr honum fannst í tösku sem var skilin eftir á flóttanum en maðurinn hafði verið til rannsóknar hjá lögreglu vegna fíkniefnasmygls.

Fjórir sæta formlegri rannsókn og eru þeir á aldrinum 29 til 51 árs. Tveir þeirra eru enn í haldi lögreglu.


Tengdar fréttir

Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir

Tveir þjófar brutust inn í Renoir-safn í Frakklandi í morgun og stálu fjórum málverkum þaðan en skildu síðan eitt þeirra eftir. Málverkin eru talin mikils virði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×