Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Hópur öfgahægrimanna safnaðist saman fyrir utan mosku í bænum Southport í Norður-Englandi í kvöld, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana á dansnámskeiði í gær. Mótmælendur köstuðu flöskum og grjóti í lögreglumenn og kveiktu í lögreglubíl. Erlent 30. júlí 2024 21:30
Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar. Erlent 30. júlí 2024 15:52
Þriðja stelpan látin í Southport Þrjár stelpur á aldrinum sex til níu ára eru látnar og fimm börn til viðbótar eru þungt haldin eftir hnífaárás á dansnámskeiði í Southport í Englandi í gær. Erlent 30. júlí 2024 12:15
Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Um þúsund bréfberar á Bretlandseyjum hafa misst fingur eða framan af fingri á síðustu fimm árum eftir að hafa verið bitnir af hundi þegar þeir voru að setja bréf inn um póstlúgu. Erlent 30. júlí 2024 08:33
Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Sex börn og tveir fullorðnir liggja enn þungt haldnir á sjúkrahúsi eftir að sautján ára gamall piltur gekk berserksgang með hníf á dansskemmtun fyrir börn í bænum Southport á Englandi í gær. Enn liggur ekki fyrir hvert tilefni árásarinnar var en tvö börn eru þegar látin. Erlent 30. júlí 2024 08:00
Tvö börn stungin til bana í Southport Tvö börn létu lífið í fólskulegri stunguárás í bænum Southport í Norður-Englandi í dag. Níu börn til viðbótar særðust í árásinni, þar af sex alvarlega. Erlent 29. júlí 2024 18:38
Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Maður sem er grunaður um stunguárás í bænum Southport á Norðvestur-Englandi í dag er sautján ára gamall karlmaður. Hann er sagður vera íbúi þorpsins Banks, sem er skammt frá Southport. Hann var handtekinn skömmu eftir árásina Erlent 29. júlí 2024 16:46
Sleit sambandinu með símtali Samband Vilhjálms Bretaprinsar og Katrínar Middleton hefur ekki alltaf verið dans á rósum, að því er fram kemur í nýrri bók sem fjallar um ævi Katrínar. Þar segir að Vilhjálmur hafi verið haldinn efasemdum um sambandið og sagt Katrínu upp símleiðis árið 2008. Þau hafi svo náð aftur saman í búningateiti stuttu síðar. Lífið 29. júlí 2024 14:31
Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Að minnsta kosti átta manns voru stungnir þegar karlmaður gekk berserksgang í bænum Southport á Norðvestur-Englandi í dag. Fórnarlömbin eru sögð börn en árásarmaðurinn er í haldi lögreglu sem lagði einnig hald á hníf. Erlent 29. júlí 2024 13:45
Hugmyndafræðilegur ágreiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna Miklar deilur standa nú innan Murdoch-fjölskyldunnar eftir að ættfaðirinn og fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch freistaði þess að breyta skilmálum fjölskyldusjóðs sem var stofnaður þegar hann skildi við aðra eiginkonu sína, Önnu Murdoch Mann. Erlent 26. júlí 2024 11:23
Hræddur um líf eiginkonu sinnar Harrý Bretaprins vill ekki fara með Meghan Markle aftur til Bretlands. Hann segist vera raunverulega hræddur um líf hennar. Lífið 26. júlí 2024 09:40
Lögreglumaður traðkaði á höfði manns Myndskeið sem sýnir breskan lögreglumann sparka í og traðka á höfði manns sem liggur á gólfi flugstöðvarinnar í Manchester á Englandi á þriðjudag er í mikilli dreifingu á netinu. Blásið hefur verið til mótmæla vegna atviksins. Erlent 25. júlí 2024 07:40
Hagnaður krúnunnar meira en tvöfaldast vegna vindorkusamninga Hagnaður eignarhaldsfélagsins sem heldur utan um jarðir og fasteignir í eigu bresku konungsfjölskyldunnar jókst gríðarlega í fyrra og nam 1,1 milljarði punda, samanborið við 442 milljónir árið á undan. Erlent 24. júlí 2024 11:40
Segja neyðarástand ríkja vegna aukins ofbeldis gegn konum og stúlkum Lögregluyfirvöld á Englandi og í Wales segja neyðarástand ríkja þegar kemur að ofbeldi gegn konum og stúlkum. Tvær milljónir kvenna verða fyrir ofbeldi af hálfu karla á ári hverju í Englandi og Wales, samkvæmt samtökum lögreglustjóra. Erlent 23. júlí 2024 07:55
Fagna afmæli prinsins með nýrri ljósmynd Georg prins, elsti sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, fagnar í dag ellefu ára afmæli sínu. Þau birtu nýja mynd af afmælisbarninu á samfélagsmiðlum sínum í tilefni þess. Lífið 22. júlí 2024 15:02
Saka Apple um fálæti þegar kemur að barnaníðsefni Stærstu barnaverndarsamtök Bretlands, National Society for the Prevention of Cruelty to Children (NSPCC) segir stórfyrirtækið Apple standa sig afar illa í því að bera kennsl á og tilkynna um barnaníðsefni. Erlent 22. júlí 2024 08:16
Bretar hefja aftur greiðslur til UNRWA Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja aftur greiðslu fjárframlaga til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Erlent 19. júlí 2024 11:57
Óeirðir brutust út í Leeds þegar flytja átti börn í fóstur Óeirðir brutust út í Harehills í Leeds á Englandi í gær eftir að yfirvöld komu og sóttu börn sem flytja átti í fóstur. Lögreglubifreið var meðal annars velt á hliðina og kveikt í strætisvagni. Erlent 19. júlí 2024 10:35
Ratcliffe og vinir á fjórum einkaþotum á Egilsstöðum Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe er duglegur að bjóða vinum sínum í veiði á Norðausturlandi. Til þess að komast þangað notast þeir við einkaþotur í eigu fyrirtækis hans Ineos, sem flogið er á Egilsstaði. Innlent 18. júlí 2024 10:42
Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Verðbólga í Bretlandi mældist 2 prósent á ársgrundvelli í júní, og var örlítið meiri en búist var við. Gífurlegar verðhækkanir á hótelgistingu voru helsta orsökin, en mikil tengsl virðast hafa verið milli þeirra og tónleikaferðalags Taylor Swift um landið. Viðskipti erlent 17. júlí 2024 15:44
Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson birti mynd af sér og írska stórleikaranum Barry Keoghan á Instagram í gær þar sem þeir voru í fótbolta saman. Félagarnir, sem eru báðir búsettir í Lundúnum, hittast á vikulegum fótboltaæfingum. Lífið 17. júlí 2024 13:54
Bretar samþykkja sölu dýrafóðurs úr ræktaðri kjötvöru Yfirvöld á Bretlandseyjum hafa veitt fyrirtækjunum Meatly og Omni heimild til að framleiða og selja dýrafóður sem er unnið úr kjöti sem hefur verið ræktað á tilraunastofu. Erlent 17. júlí 2024 11:28
Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs Í dag hefur breska þingið störf eftir stórsigur Verkamannaflokksins í kosningum fyrr í mánuðinum. Eins og hefð er fyrir heldur Karl III Bretakonungur ræðu í þinghúsinu við tilefnið. Ræða konungs er eins konar stefnuyfirlýsing nýviðtekinnar ríkisstjórnar og er skrifuð af ríkisstjórnarliðum. Erlent 17. júlí 2024 10:10
Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö Sænska lögreglan rannsakar nú mál þar sem tvö lík fundust skotin og brunnin í bílaleigubíl á iðnaðarsvæði í Malmö. Um var að ræða ökumann og farþega sem virðast hafa verið drepnir á sunnudag, samkvæmt Aftonbladet. Erlent 17. júlí 2024 06:33
Leggja upp laupana í Lundúnum Hamborgarabúllu Tómasar á Berwickstræti í Lundúnum hefur verið lokað. Endurskipulagning er í farvatninu að sögn framkvæmdastjóra. Viðskipti innlent 16. júlí 2024 15:27
Lík Jay Slater fundið Spænska lögreglan hefur staðfest að líkið sem fannst af manni á Tenerife fyrr í dag er af Jay Slater. Við fyrstu sýn virðist eins og um slys hafi verið að ræða. Erlent 15. júlí 2024 12:00
Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon Viðstaddir stóðu á fætur og klöppuðu Katrínu lof í lófa þegar prinsessan mætti á úrslitaviðureign Carlos Alcaraz og Novak Djokovic á Wimbledon í gær. Erlent 15. júlí 2024 08:13
Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku Þrátíu og fjögurra ára gamall karlmaður sem grunaður er um morð hefur verið handtekinn í Bristol á Englandi. Líkamsleifar fundust í ferðatöskum á brúnni Clifton Suspension Bridge og í íbúð í Shepherd's Bush á miðvikudaginn. Erlent 13. júlí 2024 11:43
Sjötíu og sjö grindhvalir dauðir eftir að hafa strandað á Orkneyjum Sjötíu og sjö grindhvalir eru dauðir eftir að þeir strönduðu á Orkneyjum. Ekki hafa fleiri hvalir drepist við strendur Skotlands í marga áratugi en 55 grindhvalir drápust við Lewis í fyrra. Erlent 12. júlí 2024 06:37
Clifford handtekinn Kyle Clifford, maðurinn sem leitað var í dag vegna gruns um að hafa átt þátt í dauða þriggja kvenna er fundinn. Lögreglan í Hertfordshire handtók Clifford og kom honum undir læknishendur síðdegis í dag. Erlent 10. júlí 2024 17:50