Fleiri fréttir

Bjarnfreður var fullur efasemda

Bjarnfreður Ólafsson, lögfræðingur á Logos, segir að hann og aðrir starfsmenn Logos hafa verið fulla efasemda um að það mundi standast að greiða einungis einn milljarð fyrir 50 milljarða hlutafjáraukningu í Existu, eins og Lýður og Ágúst Guðmundssynir gerðu í desember 2008.

Lýður kannast ekki við varnaðarorð Deloitte

Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Existu, kannast ekki við það að endurskoðandi félagsins hjá Deloitte hafi tjáð honum að 50 milljarða hlutafjáraukning Existu stæðist ekki lög og Deloitte gæti aldrei skrifað upp á hana. Hann sagðist fyrir dómi fyrr í morgun ekki muna til þess að það hafi komið fram í símtali hans og endurskoðandans Hilmars Alfreðssonar.

Framtakssjóður selur í Icelandair fyrir 3,3 milljarða

Framtakssjóður Íslands hefur selt 250 milljón hluti í Icelandair og er verðmæti þeirra um 3,3 milljarðar kr. miðað við gengi þeirra í Kauphöllinni en það stendur í rúmum 13 kr. á hlut í augnablikinu.

Samkomulag við Landsvirkjun um kolefnislosun

Landsvirkjun og Kolviður-sjóður skrifuðu undir samkomulag fyrir helgina um að jafna alla kolefnislosun vegna notkunar Landsvirkjunar á bensíni og dísilolíu á bifreiðar og tæki, vegna flugferða starfsmanna bæði innanlands og milli landa og loks vegna förgunar úrgangs. Alls var þessi losun um 1.000 tonnCO2-ígilda á síðastliðnu ári.

HH skora á FMÍ að stöðva allar innheimtur á gengislánum

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) skora á Fjármálaeftirlitið (FMÍ) að stöðva allar innheimtur á gengistryggðum lánum þar til lánastofnanir geta sannað að lánin séu reiknuð með réttarhagsmuni skuldara að leiðarljósi.

Já í tilraunir með þrívíddarkort

Upplýsingaveitan Já, sem rekur meðal annars vefinn já.is, hefur í dag tilraunaverkefni sem miðar að því að gera þrívíddarmyndir af íslenskum vegum aðgengilegar á kortavefum fyrirtækisins. Þessi þjónusta yrði að erlendri fyrirmynd, en tæknirisinn býður upp á Google Street View á kortavef sínum þar sem sjónarhorn notanda er frá götunni. Sú þjónusta Google er ekki í boði á Íslandi sem stendur.

Meniga hlut Vaxtarsprotann í ár

Fyrirtækið Meniga ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á síðasta ári. Fyrirtækið nær tífaldaði sölutekjur sínar milli áranna 2011 og 2012. Fyrirtækin Controlant, Nox Medical og Iceconsult fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt.

Fasteignaviðskipti eru að stærstum hluta milli einstaklinga

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru 73% viðskipta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á milli einstaklinga, eða samtals 984 kaupsamningar af þeim 1.341 kaupsamningum sem gerðir voru á tímabilinu í heildina.

Eurostat: Skattar eru langlægstir á Íslandi af Norðurlöndunum

Skattbyrðin á Íslandi er sú langlægsta á öllum Norðurlöndunum, mæld sem hlutfall af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í nýrri úttekt frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Úttektin nær yfir árið 2011 og þá voru skattar á Íslandi 35,9% af landsframleiðslu.

Hlutur í Landsvirkjun seldur of lágu verði

Kaupverð ríkisins á 46 prósenta hlut í Landsvirkjun árið 2006 var allt of lágt. Þetta fullyrðir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Í skýrslu úttektarnefndar á stjórnsýslu og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar, sem kynnt var í gær, eru rök færð fyrir hinu sama.

Mikil tækifæri í Kína fyrir þá þolinmóðu

Mikil tækifæri bíða íslenskra útflutningsfyrirtækja í Kína eftir að fríverslunarsamningur Íslands við Kína tekur gildi. Þetta sagði Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group, í erindi sínu á kynningarfundi sem Íslensk-kínverska verslunarráðið stóð fyrir í gær. Þolinmæði sé þó nauðsynleg.

Kaupa þrjá sumarbústaði af slitastjórn Landsbankans

Þingvallanefnd hefur keypt þrjá sumarbústaði af LBI, slitastjórn gamla Landsbankans, sem staðsettir eru í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Samningar um þetta voru undirritaðir 29. apríl síðastliðinn en kaupverð var 34,5 milljónir króna.

Viðskipti í Kauphöllinni jukust um 527% milli ára í apríl

Viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni aprílmánuði námu 1.356 milljónum kr. á dag, sem er 527% hækkun á milli ára, samanborið við 216 milljóna króna veltu á dag í apríl 2012. Þetta er 85% hækkun frá fyrri mánuði, en viðskipti með hlutabréf í marsmánuði námu 732 milljónum kr. á dag.

Ný stjórn kjörin í MP banka

Á aðalfundi MP banka sem haldinn var 30. apríl var kjörin ný stjórn bankans. Í aðalstjórn sitja Þorsteinn Pálsson (stjórnarformaður), lögfræðingur, Skúli Mogensen (varaformaður stjórnar), fjárfestir og forstjóri Wow air, Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Icepharma, Inga Björg Hjaltadóttir, lögmaður & meðeigandi Acta lögmannsstofu & Attentus mannauður og ráðgjöf, og Mario Espinosa, lögfræðingur og framkvæmdastjóri, að því er segir í tilkynningu.

Dramatísk breyting á fáum árum

Á fimm árum hefur hlutur kvenna í stjórnum skráðra fyrirtækja farið úr tíundaparti í nærri helming. Í haust taka gildi ný lög um kynjahlutföll. Áhersla á jafnan hlut stuðlar að faglegri vinnubrögðum við skipan stjórna.

Erlendir gestir á Fanfest Eve eyddu 400 milljónum

Erlendir gestir á Fanfest EVE tölvuleiksins eyddu yfir 400 milljónum króna á hátíðinni. Rúmlega 280.000 manns fylgdist með beinni útsendingu úr Hörpu meðan á hátíðinni stóð nýlega. Alls mættu rúmlega 4.000 manns á hátíðina í ár.

FT: Kröfuhafar tilbúnir til samninga við íslensk stjórnvöld

Financial Times greinir frá því í dag að erlendir kröfuhafar þrotabúa gömlu bankanna hafi vaxandi áhuga á því að ganga til samninga við íslensk stjórnvöld. Þeir séu jafnframt viðbúnir því að þurfa að gefa afslátt af kröfum sínum.

Björgólfur á sextíu milljarða hlut í Actavis

Félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar á sextíu milljarða hlut í Actavis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgólfi Thor þar sem greint er frá því að bandaríska lyfjafyrirtækið Watson - nú Actavis - hafi gengið frá lokagreiðslu vegna kaupanna á Actavis fyrir ári. Árangurstengd greiðsla vegna kaupanna verði greidd að fullu, alls 5,5 milljónir bréfa í hinu sameinaða félagi.

Krónan styrkist í útboðum Seðlabankans

Töluverð breyting varð á útboðsgengi krónu í gjaldeyrisútboði Seðlabankans síðastliðinn þriðjudag. Hefur gengi krónu gagnvart evru ekki verið sterkara í útboði síðan gjaldeyrisútboðunum var fyrst hleypt af stokkunum vorið 2011. Á heildina litið má segja að útboðið hafi verið ágætlega heppnað, en þar skiptu tæplega 29 milljónir evra um hendur fyrir 6 milljarða kr.

Aukin umsvif hjá Isavia, hagnaðurinn 738 milljónir í fyrra

Umtalsverð aukning varð á umsvifum Isavia á síðastliðnu ári. Tekjur félagsins jukust um 11,4% og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 3,8 milljarðar króna eða um 20% af tekjum. Hagnaður eftir skatta var um 738 milljónir króna.

Optima opnar söluskrifstofu á Akureyri

Optima hefur opnað söluskrifstofu á Akureyri. Jafnframt hefur Sigurður Aðils verið ráðinn svæðisstjóri fyrirtækisins fyrir Norður- og Austurland. Fyrirtækið var stofnað 1953 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár.

Öryrki segir Gildi lífeyrissjóð hafa haft af sér pening

Margrét Ingibjörg Marelsdóttir, öryrki, hefur stefnt Gildi lífeyrissjóði fyrir ólögmæta skerðingu á lífeyrisgreiðslum til hennar. Hún telur skerðingu sjóðsins í andstöðu við lög og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar auk þess að brjóta í bága við reglur og yfirlýsingar sjóðsins. Margrét krefst þess að Gildi lífeyrissjóður endurgreiði þá fjármuni sem hún telur að sjóðurinn hafi haft af henni með ólögmætum hætti.

Fyrsta konan í fimmtán ár til að stýra skráðu fyrirtæki

Sigrún Ragna Ólafsdóttir varð á dögunum fyrsta konan í fimmtán ár og sú önnur alls til að stýra skráðu fyrirtæki á Íslandi þegar viðskipti hófust með hlutabréf í VÍS í Kauphöllinni. Markaðurinn ræddi við Sigrúnu í tilefni af skráningunni.

Gagnrýndi vaxtastefnu SÍ harkalega

Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Íslandsstofu, gagnrýndi vaxtastefnu Seðlabanka Íslands (SÍ) í ræðu sinni á ársfundi stofunnar og sagði stjórnvöld í raun ráðalaus gagnvart henni.

Haraldur vann Webby-verðlaun

"Ég er húrrandi glaður,“ segir vefhönnuðurinn Haraldur Þorleifsson. Hann vann ein Webby-verðlaun og tvenn People"s Choice-verðlaun, sem eru hluti af Webby-verðlaununum, fyrir hönnun kynningarsíðu fyrir Google maps.

Afkoma ríkissjóðs versnar milli ára

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins liggur nú fyrir. Handbært fé frá rekstri dróst saman miðað við sama tímabil í fyrra og var neikvætt um 11 milljarða kr. en var neikvætt um 7,3 milljarða kr. á sama tímabili í fyrra.

Loftleiðir aftur með verkefni í Papúa Nýju Gíneu

Loftleiðir Icelandic, leiguflugsdeild Icelandair Group, hefur nú hafið flug fyrir Air Niugini, í Papúa Nýju Gíneu. Þetta verkefni hefur áður verið á borði Loftleiða en frá efnahagshruninu hefur verið heldur lítið að gera í leigufluginu.

Geiturnar þrjár búa til jógúrt, ís og osta

Geiturnar þrjár ehf. er nýtt sprotafyrirtæki í Vestmannaeyjum. Að fyrirtækinu standa Berglind Sigmarsdóttir, Ragnheiður Sveinþórsdóttir og Heather Philip. Saman ætla þær að þróa ís, jógúrt og osta til framleiðslu úr geitamjólk.

Viðsnúningur frá árinu 2008

Eftir skráningu Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) á aðallista Kauphallar Íslands í næstu viku gegnir kona starfi stjórnarformanns í tveimur fyrirtækja Kauphallarinnar. Elín Jónsdóttir er stjórnarformaður TM og einnig Regins, sem þegar er skráð í Kauphöll.

Viðsnúningur til hins verra hjá Ríkisútvarpinu

Alls varð 10 milljóna króna tap á rekstri Ríkisútvarpsins á tímabilinu 1. september 2012 til 28. febrúar 2013 samanborið við 9 milljón kr. hagnað fyrir sama tímabil árið á undan.

Sjá næstu 50 fréttir