Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2026 13:14 Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP. CCP Íslenska leikjafyrirtækið sem um árabil hefur gengið undir nafninu CCP heitir nú Fenris Creations. Nafninu hefur verið breytt eftir að stjórnendur þess keyptu fyrirtækið aftur af fyrirtæki frá Suður-Kóreu en það var gert með aðkomu Aldir ehf. Omega ehf. og tæknirisans Google
Í tilkynningu frá Fenris Creations segir að Íslendingar eigi nú tvo þriðju í fyrirtækinu. Hilmar Veigar Pétursson verður áfram forstjóri fyrirtækisins og eiga eigendabreytingarnar ekki að fela í sér neinar breytingar á starfseminni. Höfuðstöðvar fyrirtækisins verða áfram á Íslandi. „Höfuðstöðvar okkar verða áfram hér í Vatnsmýrinni og starfsstöðvarnar í London og Shanghai verða reknar með óbreyttum hætti. Stjórnendateymi, starfsemi, vöruframboð og stefna haldast einnig óbreytt. Salan felur eingöngu í sér breytingu á eignarhaldi og stjórnarháttum,“ segir Hilmar Veigar. Í tilkynningunni segir að Hilmar verði áfram í nýrri stjórn ásamt þeim Arnari Ragnarssyni, Adrian Bolton og Birgi Má Ragnarssyni, sem tekur á ný við hlutverki stjórnarformanns Fenris Creations. Sjá einnig: Kaupa CCP aftur frá Kóreu Um kaupin á félaginu frá Kóreu segir Hilmar að breytingarnar séu til góðs. „EVE-heimurinn er byggður til að endast og þess vegna þurfum við stöðugt að horfa til framtíðar. Þessi breyting færir okkur beint eignarhald, skýra ábyrgð og sjálfstæði til að fjárfesta í heimum sem geta vaxið og dafnað áratugum saman. Við erum hér í dag vegna framsækni, þolinmæði og trausts á milli okkar og þeirra sem spila leikinn. Með þessu fyrirkomulagi og nýjum samstarfsaðilum getum við haldið áfram að þróa lifandi heim og kannað af krafti hvað hann getur orðið.“ „Fenris Creations stígur inn í nýtt skeið með sterkan meðbyr. Síðasti ársfjórðungur árið 2025 var næsttekjuhæsti ársfjórðungur EVE Online í rúmlega 20 ára sögu leikjarins og nóvember sl. var mettekjumánuður. CCP var með yfir 70 milljónir Bandaríkjadala í tekjur á síðasta ári sem gerir félaginu kleift að halda áfram að fjárfesta í framtíð EVE-heimsins en tveir nýir leikir eru nú í þróun: EVE Vanguard og EVE Frontier,“ segir í tilkynningunni. Samstarf með Google DeepMind Fenris Creations hefur gert samning um rannsóknarsamstarf við Google DeepMind, sem er hluti tæknirisans sem vinnur að þróun gervigreindar. Í tilkynningunni segir að rannsóknirnar verði gerðar innan heimslíkans EVE og muni til dæmis snúa að langtímaáætlanagerð, minni og sínámi. „Google DeepMind mun vinna með ótengda útgáfu af EVE-heiminum, sem keyra mun á staðbundnum netþjóni, til að prófa og meta gervigreindarlíkön í stýrðu umhverfi. Samhliða verða einnig kannaðir möguleikar á nýjum upplifunum í leikjum sem þessi tækni getur gert mögulega,“ segir í tilkynningunni. Þar er haft eftir Demis Hassabis, forstjóra Google DeepMind, að tölvuleikir hafi alltaf verið hluti af lífi hans. „Ég hef verið spilari frá barnæsku og hóf feril minn við að hanna og forrita flókna gervigreindarhermileiki á borð við Theme Park. Leikir hafa einnig verið kjarninn í mörgum af helstu tímamótaverkum Google DeepMind, svo sem Atari DQN, AlphaGo, AlphaStar og SIMA, enda eru þeir kjörinn vettvangur til að þróa og prófa algrími gervigreindar. Við Hilmar höfum þekkst í mörg ár og ég hef verið mjög hrifinn af hans störfum. Það er mér mikið ánægjuefni að ganga til samstarfs við hann og hið frábæra teymi hjá Fenris Creations með það markmið að kanna nýja leikjaupplifun og efla rannsóknir á gervigreind með öruggum hætti innan leikmannadrifins heims sem er jafn ótrúlega flókinn og EVE Online.“
Google Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira