Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Þakefnasala Íslands 6. maí 2026 09:19 Þakefnasala Íslands hefur verið starfandi frá árinu 2021 og er bæði heildsala og verslun með hágæða þakefnisvörur. Íslenskt veðurfar með sinni rigningu, roki og snjókomu gera kröfur til bygginga sem fá önnur lönd þurfa að standast. Við slíkar aðstæðu skiptir fátt meira máli heldur en gott og traust þak og það veit starfsfólk Þakefnasölu Íslands vel þar sem áherslan hefur frá upphafi verið skýr: gæðavörur, fagleg þjónusta og lausnir sem endast.
Þakefnasala Íslands, sem hefur verið starfandi frá árinu 2021, er bæði heildsala og verslun með hágæða þakefnisvörur. Þrátt fyrir að vera ungt í árum byggir það á áralangri reynslu starfsfólks sem þekkir þök, og þá sérstaklega íslensk þök, út og inn. Einn mikilvægasti hluti byggingarinnar „Þakið er sjálfsagt einn mikilvægasti hluti byggingarinnar. Það má ekki leka,“ segir John Gear, framkvæmdastjóri Þakefnasölu Íslands, þegar hann er spurður um mikilvægi fagsins. Hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á að bjóða upp á vörur frá þekktum og viðurkenndum framleiðendum. Þar ber helst að nefna Polyglass sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Mapei Group, rótgrónu fyrirtæki sem er þekkt fyrir gæði á heimsvísu. En hvað felst í vöruúrvalinu? „Við erum fyrst og fremst með alls konar tegundir af þakpappír, bæði sem undirlag undir klæðningu og sem undirlag og efsta lag svo sem bræðslupappa,“ útskýrir John. „Svo seljum við líka allt sem tengist því, lofttúður, niðurföll, þéttiefni og margt fleira.“ Þetta þýðir að bæði einstaklingar og verktakar geta fundið allt sem þarf á einum stað, hvort sem um er að ræða nýbyggingar eða viðhald eldri húsa. Fjölbreyttur viðskiptavinahópur Viðskiptavinahópurinn er fjölbreyttur. Verktakar eru stór hluti viðskiptanna en einstaklingar sækja einnig í þjónustuna. „Við fáum fullt af einstaklingum sem vilja gera hlutina sjálfir. Til dæmis erum við með sjálflímandi pappa sem þarf ekki að bræða með eldi og það einfaldar verkefnin töluvert,“ segir John. Þessi nálgun endurspeglar breyttan markað þar sem fleiri vilja taka þátt í eigin framkvæmdum en þó með góðri leiðsögn. Ráðgjöf sem skiptir máli Þakefnasala Íslands er nátengd verktakafyrirtækinu Smíðaverk þaklagnir sem hefur margra ára reynslu af öllu því sem tengist byggingarframkvæmdum og sérhæfir sig m.a. í pappalögn og þakvinnu. Þessi tenging styrkir ráðgjöfina sem viðskiptavinir fá. „Við leggjum mikla áherslu á að fólk velji rétt efni fyrir rétt verkefni. Það getur skipt sköpum til lengri tíma,“ segir John. Og það er einmitt þar sem reynslan vegur þungt, að vita hvað virkar, og hvað ekki, við íslenskar aðstæður. Góð verð í bland við góð gæði Þrátt fyrir að leggja áherslu á gæði hefur fyrirtækið einnig markvisst haldið verði niðri. „Við höfum reynt að vera samkeppnishæf frá upphafi og höfum ekki viljað hækka verðin. Þetta er meðvituð ákvörðun hjá okkur enda viljum við styðja við að halda kostnaði niðri fyrir viðskiptavini okkar,“ segir John. Það er stefna sem getur skipt miklu máli á tímum þar sem byggingarkostnaður hefur víða hækkað. Verslun Þakefnasölu Íslands er staðsett að Drangahrauni 4 í Hafnarfirði. Persónuleg þjónusta og kaffibolli með Verslun Þakefnasölu Íslands er staðsett að Drangahrauni 4 í Hafnarfirði þar sem lögð er áhersla á að taka vel á móti fólki. „Við viljum að fólk komi til okkar, fái sér kaffi og spjalli við okkur. Það á ekki að þurfa að bíða lengi eftir þjónustu,“ segir John. Fyrirtækið svarar einnig öllum fyrirspurnum sem berast, hvort sem er í gegnum tölvupóst eða heimasíðu. Gott sumar framundan Með sumrinu fylgir jafnan aukin eftirspurn eftir þakefnislausnum. Þó er ekki von á stórum breytingum í vöruframboði á næstunni. „Við erum með mjög gott úrval eins og staðan er í dag og ætlum að halda okkur við það. Stundum er einfaldlega best að gera það sem maður gerir vel enn betur,“ segir John. Fyrir þá sem standa frammi fyrir framkvæmdum, stórum sem smáum, er ljóst að traust ráðgjöf og vandaðar vörur geta skipt sköpum. Og eins og John bendir á: Það er ekki bara þakið sem skiptir máli heldur að það haldi. Nánari upplýsingar á vef Þakefnasölu Íslands.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira