Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stefán Hilmarsson gjaldþrota Stefán H. Hilmarsson, fyrrverandi fjármálastjóri Baugs Group og núverandi fjármálastjóri 365 miðla, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Eftir því sem fram kemur í Viðskiptablaðinu var úrskurðurinn kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. júlí síðastliðinn. 19.7.2010 17:18
3,4 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 3,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,8 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 1,6 ma. viðskiptum. 19.7.2010 16:33
Verðsamanburður á eldsneyti á Keldunni Samkvæmt vefsíðunni keldan.is er lægsta bensínverð landsins hjá Orkunni, sem selur lítrann af 95 oktana bensíni á 193 krónur. Dýrasta bensínið er hjá Shell, þar kostar lítrinn 194,5 krónur. 19.7.2010 15:11
Nýsköpun eykur sölu fisks til breskra neytenda Viðskiptavinir stærstu smásölukeðju Bretlands eru yfir sig ánægðir með nýja fiskrétti frá Icelandic Group. 55% aukning í sölu fiskrétta er á milli ára í verslunum verslunarkeðjunnar Tesco í Bretlandi. 19.7.2010 11:45
Íbúðaverð í borginni hefur lækkað um 37,8% að raunvirði Frá því að íbúðaverð náði hámarki í verðbólunni sem var á íbúðamarkaðinum áður en gjaldeyris- og bankakreppan skall á hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 37,8% að raunvirði. 19.7.2010 08:42
Eignir tryggingarfélaga hækkuðu lítilega Heildareignir tryggingarfélaganna námu 137,6 milljörðum kr. í lok maí og hækkuðu um 39 milljónir kr. milli mánaða. 19.7.2010 08:31
Ríkið gæti tapað milljörðum á Sjóvá Íslenska ríkið mun hugsanlega tapa miklum fjármunum á sölu Sjóvár, ef ekki fæst rétt verð fyrir fyrirtækið. Ríkissjóður á rúmlega sjötíu prósenta hlut í Sjóvá sem hefur verið í söluferli í nokkra mánuði. Nú stendur einn fjárfestahópur eftir og er söluferlið á lokasprettinum. 18.7.2010 18:32
Fær greidda þóknun fyrir neyslu sína á Íslandi Sjö hundruð og fimmtíu þúsund króna þóknun 365 miðla til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar er greidd út mánaðarlega svo hann geti greitt fyrir neyslu sína á Íslandi, að því er fram kemur í greinargerð lögmanna Glitnis fyrir breskum dómstólum. Þrotabú bankans telur að hegðun Jóns Ásgeirs endurspegli mjög lágt viðskiptasiðferði. 17.7.2010 11:33
Halli ríkissjóðs 34 milljörðum minni Hallarekstur ríkissjóðs á síðasta ári var 34 milljörðum krónum lægri en gert hafði verið ráð fyrir. Ríkisreikningur fyrir síðasta ár er tilbúinn og verður birtur á næstu dögum, samkvæmt heimildum Vísis. 16.7.2010 13:19
Velta eykst: Vísbending um hagvöxt? Heildarvelta í atvinnulífinu eykst talsvert frá síðasta ári fyrstu fjóra mánuði ársins, og gæti verið vísbending um áframhaldandi hagvöxt. Velta í smásöluverslun eykst minna. 16.7.2010 13:48
Gera ekki kröfu um að Þorsteinn eigi Vífilfell áfram Vífilfell missir ekki leyfi til að tappa á og selja kók þótt Arion banki taki rekstur fyrirtækisins yfir, þvert á það sem áður hefur komið fram. Vífilfell og félög í eigu Þorsteins M. Jónssonar skulda Arion banka ellefu milljarða króna. 16.7.2010 18:30
Gamma hækkaði um 0,3% Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,3% í dag í 4,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,3% í 3,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 0,9 ma. viðskiptum. 16.7.2010 16:11
Vilja bjóða upp 48 nemendaíbúðir Tryggingarmiðstöðin fer fram á að 48 íbúðir á nemendagörðum Háskólans á Bifröst verði boðnar upp í næstu viku vegna tæplega fjögurra milljóna króna skuldar. Mannleg mistök, skuldin verður greidd á eftir segir fjármálastjórinn. 16.7.2010 12:17
Ládeyða áfram á fasteignamarkaði Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir því að velta á íbúðamarkaði aukist ekki að neinu ráði fyrr en fjárhagsleg endurskipulagning heimilanna verður um garð gengin, atvinnuástandið hefur batnað og óvissa varðandi 16.7.2010 12:10
Kaupmáttur lágmarkslauna aukist um 2,5% Samtök atvinnulífsins fullyrða að kaupmáttur lágmarkslauna sé 2,5% hærri en hann hafi verið í byrjun árs 2008. 16.7.2010 11:37
ÍLS sektaður fyrir brot á verðbréfalögum Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sektað Íbúðalánasjóð (ÍLS) fyrir brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti. Málinu lauk með sátt og greiðir ÍLS 400.000 kr. í sekt. 16.7.2010 09:55
Krónueign erlendra fjárfesta helst stöðug Krónueign erlendra fjárfesta í íslenskum ríkisskuldabréfum hefur haldist nokkuð stöðug síðustu mánuði. Eign erlendra aðila (að nafnvirði) er nú svipuð og hún var vorið 2009 eða um 220 milljarðar króna. 16.7.2010 09:23
FME gerði athugasemdir við starfsemi Stapa Fjármálaeftirlitið (FME) gerði ýmsar athugasemdir við starfsemi lífeyrissjóðsins Stapa eftir athugun á starfseminni í fyrra. FME tekur fram í umfjöllun sinni um málið á vefsíðu embættisins að rekstur sjóðsins sé þó að mestu leyti í viðunandi horfi. 16.7.2010 08:23
Reikna með að fiskeldi muni tvöfaldast á Íslandi Sérfræðingar Íslandsbanka reikna með því að fiskeldi á landinu muni tvöfaldast frá því sem nú er, í náinni framtíð. 16.7.2010 07:04
Óttast ekki að Sjóvá fari í þrot Fall Aska Capital mun ekki hafa nein áhrif á tryggingafélagið Sjóvá, en félagið sér fram á tap vegna falls Avant, dótturfélags Aska. Óvíst er hversu mikið tapið verður. 16.7.2010 04:00
Lífeyrissjóðirnir búnir að ná sér eftir bankahrunið Íslensku lífeyrissjóðirnir virðast vera búnir að ná vopnum sínum eftir bankahrunið haustið 2008, að mati sérfræðinga Efnahags- og samvinnustofnunarinnar (OECD). 16.7.2010 02:00
Ferðakostnaður seðlabankastjóra hefur snarlækkað Ferðakostnaður seðlabankastjóra hefur snarlækkað frá árinu 2006 samkvæmt gögnum sem Vísir hefur frá skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands. 15.7.2010 16:49
Gamma lækkaði um 0,2% Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 1,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 2,8 ma. viðskiptum. 15.7.2010 16:18
Fólk leigir íbúðir frekar en að kaupa Fólk er farið að sækja meira í að leigja húsnæði en að kaupa það, segir Sigurður H. Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands varð töluverð fjölgun á þinglýstum leigusamningum milli mánaðanna maí og júní. Á landinu í heild fjölgaði þeim um 24%. 15.7.2010 15:34
Osta- og smjörsalan vill í orkugeirann Osta og smjörsalan vill eignast hlut í neyslu- og frávatnsveitu á Suðurnesjum og gerði Orkuveitunni tilboð. Orkuveitan hafnaði því hins vegar á stjórnarfundi í byrjun vikunnar. 15.7.2010 14:17
Spá áframhaldandi verðhjöðnun Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs lækki í júlí um 0,2% frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir muni verðbólga hjaðna úr 5,7% í 5,3% í júlímánuði. Verðbólgan hefur ekki mælst minni hérlendis frá lokamánuðum ársins 2007. 15.7.2010 13:10
Íslandsbanki býður framkvæmdalán á sérstökum kjörum Íslandsbanki tekur þátt í hvatningarátaki stjórnvalda og atvinnulífsins Allir vinna sem nýverið var hleypt af stokkunum. Bankinn mun bjóða einstaklingum í viðskiptum við bankann hagstæð framkvæmdalán á sérstökum kjörum. 15.7.2010 08:11
Austurrískur banki á mest í Straumi Austurríski bankinn Raiffeisen Zentralbank (RZB) er nú stærsti eigandi Straums. RZB var einn stærsti lánadrottinn bankans, ásamt Deutsche Bank, Bayern LB og Goldman Sachs, að því er segir í frétt austurríska miðilsins Die Presse. Þar segir að samkomulagið hafi verið hluti af því að milda höggið á bankann af hruninu á Íslandi, en við það tapaði RZB um 70 milljónum evra, eða jafnvirði rúmra ellefu milljarða króna. 15.7.2010 06:00
Kenna bönkunum um fasteignabóluna Efnahagsmál Rannsóknarnefnd Alþingis dregur rangar ályktanir af áhrifum hækkunar á hámarkslán Íbúðalánasjóðs að mati sjóðsins. Þetta kemur fram í greinargerð sem sjóðurinn sendi þingmannanefnd sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndarinnar. 15.7.2010 05:00
Enn samdráttur í verslun Samdráttur var á milli ára í öllum tegunda verslunar í síðasta mánuði nema í raftækjaverslun og áfengisverslun, samkvæmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar. Þá varð einnig samdráttur í áfengisverslun ef veltan er leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum. Mestur samdráttur var í skóverslun og húsgagnaverslun en dagvöruverslun dróst minnst saman. 14.7.2010 14:30
Sprotafyrirtæki á sviði heilbrigðisvísinda í samstarf Kerecis og ValaMed undirrituðu í dag samstarfssamning sem tekur m.a. til rannsókna á frumuvexti í mismunandi vefjum. ValaMed vinnur að þróun á lyfjanæmisprófum á krabbameinsfrumum en Kerecis vinnur að gerð stoðefna sem hámarka vöxt frumna t.d. í sárum. 14.7.2010 17:41
Segir tryggingareksturinn traustan Ólafur Njáll Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sjóvár Almennra, segir að Tryggingarekstur Sjóvár sé traustur og mun fall Avant engin áhrif hafa á viðskiptavini Sjóvár. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í dag hefur Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskað eftir fundi í viðskiptanefnd Alþingis vegna mögulegra áhrifa slitameðferðar Aska Capital á stöðu Sjóvár-Almennra. 14.7.2010 12:58
Fáir lífeyrissjóðir jafn vel fjármagnaðir og þeir íslensku Efnahags- og framfarastofnunin segir íslenska lífeyrissjóðakerfið vera eitt af örfáum sem hafa náð sér að fullu eftir efnahagshrunið. Aðeins hollenskir lífeyrissjóðir séu betur fjármagnaðir. 14.7.2010 11:59
Miklu minna lánað til íbúðakaupa Almenn útlán Íbúðalánasjóðs til íbúðakaupa námu 1,6 milljörðum króna sem er um 16% minna en í sama mánuði fyrir ári síðan. Engu að síður er fjárhæðin nú í júní hærri en í síðasta mánuðinn þegar sjóðurinn lánaði 1,3 milljarða króna til íbúðakaupa og jafnframt hærri en sjóðurinn hefur lánað að meðaltali síðasta árið. 14.7.2010 11:50
Töluverð fjölgun þinglýstra leigusamninga Töluverð fjölgun varð á þinglýstum leigusamningum milli mánaðanna maí og júní. Á landinu í heild fjölgaði þeim um 23,7%. Ef tekinn er júní ár miðað við júní í fyrra er fjölgun þessara samninga 2,6%. 14.7.2010 10:44
Icelandic Glacial vatnið sett á markað í Kína China Water and Drinks, eitt af stærstu átöppunar-og dreifingarfyrirtækjum á drykkjum í Kína hefur ákveðið að setja Icelandic Glacial vatnið á markað í Kína. 14.7.2010 09:41
Vaxtakjör á ríkisvíxlum þau bestu frá hruninu 2008 Góð þátttaka var í ríkisvíxlaútboðinu sem haldið var hjá Lánamálum ríkisins í gær. Þannig bárust alls 43 gild tilboð í ríkisvíxlaflokkinn RIKV 10 1115 að fjárhæð 23,9 milljarðar kr. að nafnverði. Ákveðið var að taka tilboðum fyrir 22,1 milljarða kr. að nafnverði á 5,49% flötum vöxtum. 14.7.2010 09:21
Heildaraflinn minnkaði um 19% milli ára í júní Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði, metinn á föstu verði, var 19,2% minni en í júní 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 13% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. 14.7.2010 09:01
Exista og Bakkavör brutu gegn lögum um verðbréfaviðskipti Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sektað Exista og Bakkavör fyrir brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Hvoru félagi um sig er gert að greiða 1.250 þúsund krónur í sekt en báðum málunum lauk með sátt. 14.7.2010 07:47
Ísland aftur á topp tíu listanum yfir hættu á þjóðargjaldþroti Ísland er aftur komið á topp tíu listann yfir þær þjóðir sem taldar eru í hvað mestri hættu á þjóðargjaldþroti. 14.7.2010 07:19
AGS gagnrýnir ehf-væðingu síðustu ára Breyta ætti skattareglum svo einkahlutafélög einyrkja þurfi að greiða tekjuskatt af greiðslum til eigenda að mati sérfræðinga AGS. Þeir telja núverandi fyrirkomulag ófullnægjandi. Leggja til kerfi svipað og á hinum Norðurlöndunum. 14.7.2010 07:00
Askar gæti valdið Sjóvá vanda Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í viðskiptanefnd Alþingis vegna mögulegra áhrifa slitameðferðar Aska Capital á stöðu Sjóvár-Almennra. 14.7.2010 07:00
FME skipar bráðabirgðastjórn yfir Avant Fjármálaeftirlitið (FME) hefur orðið við beiðni Avant hf. um að skipa félaginu bráðabirgðastjórn á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki. 14.7.2010 06:57
Fall Aska hefur engin áhrif á Saga Capital Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri fjárfestingabankans Saga Capital, segir að fall fjárfestingabankans Aska Capital hafi engin áhrif á fyrirtækið sem hann rekur, Saga Capital. Hvorki á reksturinn né fjárhagslegan styrk bankans. 13.7.2010 20:22
Fjárfestingabanki gjaldþrota vegna gengistryggðu lánanna Stjórn fjárfestingabankans Askar Capital hf hefur samþykkt að óska eftir slitameðferð á félaginu og beint kröfu þess efnis til Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá hefur stjórn dótturfélags Askar Capital, Avant, óskað eftir að Fjármálaeftirlitið skipi bráðabirgðastjórn félagsins. 13.7.2010 14:32