Viðskipti innlent

Kenna bönkunum um fasteignabóluna

Innkoma bankanna á fasteignalánamarkaðinn var að mati Íbúðalánasjóðs „áhlaup“ á sjóðinn, að því er fram kemur í greinargerð.
Innkoma bankanna á fasteignalánamarkaðinn var að mati Íbúðalánasjóðs „áhlaup“ á sjóðinn, að því er fram kemur í greinargerð. Fréttablaðið/Vilhelm
Efnahagsmál Rannsóknarnefnd Alþingis dregur rangar ályktanir af áhrifum hækkunar á hámarkslán Íbúðalánasjóðs að mati sjóðsins. Þetta kemur fram í greinargerð sem sjóðurinn sendi þingmannanefnd sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Fram kom í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að breytingar á útlánareglum Íbúðalánasjóðs hefðu verið þensluhvetjandi. „Breytingarnar á útlánareglunum voru með stærri hagstjórnarmistökum í aðdraganda falls bankanna. Þau mistök voru gerð með fullri vitund um líklegar afleiðingar aðgerðanna," segir þar enn fremur. Þessu er harðlega mótmælt í skýrslu Íbúðalánasjóðs.

„Áhrif breytinga á útlánafyrirkomulag Íbúðalánasjóðs árið 2004 eru stórlega ofmetin í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Innleiðing 90 prósenta lána og hófleg hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs er ekki sá áhrifavaldur á þróun fasteignaverðs til verulegrar hækkunar og þenslu í íslensku efnahagslífi sem haldið er fram í skýrslunni," segir í greinargerðinni.

Innkomu bankanna á fasteignalánamarkaðinn í ágúst 2004 er lýst sem „áhlaupi" á Íbúðalánasjóð. Á einni nóttu hafi áform stjórnvalda um að hækka lánshlutfall sjóðsins í áföngum í 90 prósent, í takt við efnahagsástandið hverju sinni, verið útilokuð af bankakerfinu. Það hafi verið gert fyrirvaralaust og án nokkurs samráðs bankakerfisins við stjórnvöld, Seðlabankann eða Fjármálaeftirlitið. „Hækkun á fasteignaverði og mikil þensla á fasteignamarkaði var fyrst og fremst tilkomin vegna óheftra íbúðalána bankakerfisins. Íbúðalán Íbúðalánasjóðs höfðu þar takmörkuð áhrif þar sem íbúakaupendur höfðu aðgang að ótakmörkuðum íbúðalánum bankanna án hámarkslánsfjárhæðar eða annarra takmarkandi skilyrða á svipuðum vöxtum og með mun hærra lánshlutfalli en Íbúðalánasjóður bauð," segir í greinargerðinni.

Stjórnvöld áformuðu að hækka hlutfall lána Íbúðalánasjóðs í 90 prósent í áföngum allt þar til bankarnir komu inn á markaðinn í ágúst 2004. Engan tilgang hafði að innleiða breytingarnar í áföngum eftir að bankarnir komu inn á markaðinn, að því er fram kemur í greinargerð Íbúðalánasjóðs.

„Hún hefði aðeins leitt til þess að Íbúðalánasjóður hefði ekki verið lengur á þessum markaði, trúlega misst hlutverk sitt og tilgang og þar með hefði megin markmiði bankanna með þessari innkomu [bankanna] verið náð," segir í greinargerðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×