Fleiri fréttir Ráðgjöf fyrir 555 milljónir 7.6.2011 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Í lagi að gefa peninga á viðskiptalegum forsendum Þingmaður kallaði Landsbankann í dag Hróa Hött vegna niðurfellinga á skuldum viðskiptavina. Ráðherra segir að bankarnir megi gefa peninga geri þeir það á viðskiptalegum forsendum. 6.6.2011 18:45
Exxon Mobil sýnir Drekaútboðinu áhuga Bandarísku olíurisarnir Exxon Mobil og Conoco Phillips, ásamt Statoil í Noregi og Total í Frakklandi, eru meðal þeirra átta olíufélaga sem sóttu kynningarfund um væntanlegt útboð Íslendinga á Drekasvæðinu, sem Orkustofnun stóð fyrir í Stafangri í Noregi í dag. Önnur félög sem sendu fulltrúa sína á fundinn eru Atlantic Petrolium í Færeyjum, Faroe Petrolium í Bretlandi, Sagex Petrolium í Noregi og Tullow Oil í Bretlandi. 6.6.2011 18:36
AGS með strangt eftirlit á Íslandi eftir að áætlun lýkur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) mun verða með í ráðum við öll helstu skref í afnámi gjaldeyrishafta, og ljóst að aðkoma sjóðsins hér á landi, a.m.k. hvað það varðar, mun standa mun lengur en efnahagsáætlunin sjálf. AGS vill tryggja endurheimtur lána sinna og mun í því sambandi áfram hafa strangt eftirlit með gangi mála hér. 6.6.2011 15:26
Hæstiréttur troðfullur í gengisdómamáli Áhorfendapallar í sal Hæstaréttar Íslands voru fullir þegar að sjö manna dómur kom þar saman í fyrsta sinn í sjö ár klukkan eitt í dag. Þar tókust á lögmaður Landsbanka Íslands og lögmaður þrotabús Motormax. 6.6.2011 14:44
Gjaldeyrishöftin tefja fyrir bata Þó svo að efnahagsbati á Íslandi hafi verið ótrúlega góður eftir eitt mesta hrun sögunnar standa gjaldeyrishöft nú í vegi fyrir frekari bata. Þetta kemur fram í grein eftir Þorvald Gylfason, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem birtist á hagfræðivefnum Vox fyrir helgi. 6.6.2011 14:00
Aðalsteinn Leifsson formaður stjórnar FME Aðalsteinn Leifsson, lektor, hefur tekið við sem nýr formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent, hefur tekið við sem varaformaður. Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, situr áfram í stjórn Fjármálaeftirlitsins. 6.6.2011 11:10
Asda ræður Lazard til að skoða Iceland Asda önnur stærsta stórmarkaðakeðja Bretlands hefur ráðið fjárfestingarbankann Lazard til að meta möguleikana á að gera kauptilboð í Iceland Foods verslunarkeðjuna. Lazard er framarlega í ráðgjafaþjónustu og eignastýringu í Bretlandi og víðar. Asda er í eigu Wal-Mart stærstu verslunarkeðju heimsins. 6.6.2011 10:10
Nýskráningar bíla aukast um 120% milli ára Nýskráningar bíla í janúar–maí 2011 voru 2.200 miðað við 997 í janúar–maí árið áður. Þetta er 120,7% aukning á milli ára. 6.6.2011 09:12
Kortavelta eykst töluvert á milli ára Kreditkortavelta heimila jókst um 7,4% í janúar–apríl í ár miðað við janúar–apríl í fyrra. Debetkortavelta jókst um 1,6% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–apríl í ár um 4,7% miðað við janúar–apríl í fyrra. 6.6.2011 09:08
Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgar áfram Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgaði um 200 í maímánuði. Hefur þessum fyrirtækjum því fjölgað um 46% frá árinu 2009 og eru þau nú 6.700 talsins. 6.6.2011 08:59
AGS vill hraða skuldaúrlausnum fyrir heimili og fyrirtæki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að íslensk stjórnvöldi eigi að hraða endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja. Nýjar úrlausnir sem kynntar hafa verið eigi að komast í gagnið eins fljótt og auðið er. 6.6.2011 08:47
Lykilríki innan OPEC berjast fyrir lækkun olíuverðs Lykilríki innan OPEC, samtaka olíuframleiðenda, munu berjast fyrir því að olíuframleiðsla á vegum samtakanna verði aukin á næstunni með það fyrir augum að koma heimsmarkaðsverði á olíu aftur niður fyrir 100 dollara. Sem stendur kostar tunna af Brent olíunni tæpa 116 dollara. 6.6.2011 06:55
Undrast tímasetninguna á erlendu skuldabréfaútboði Íslands Þrír alþjóðlegir stórbankar vinna nú að fyrstu erlendu skuldabréfaútgáfu íslenskra stjórnvalda frá því fyrir hrunið. Tímasetningin á útgáfunni kemur erlendum bankamönnum á óvart. 6.6.2011 06:52
Fjárfestu ekki skynsamlega „Útgerðarmenn hafa verið áhættusæknir í fjárfestingum sínum sem margar hafa gefist illa. Það er óvarlegt að draga þær ályktanir að breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafi neikvæð áhrif á raungengið,“ segir ÞórólfurMatthíasson, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands. 6.6.2011 05:15
Fjárfesting löngum lítil í sjávarútvegi „Fjárfesting í sjávarútvegi hefur nánast ekki verið nein í tíu ár,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. 6.6.2011 05:00
Átti að sækja um 160 undanþágur „Ég er á móti því að einn fái undanþágu en ekki annar,“ segir Lúðvík Júlíusson. Hann hefur staðið í stappi við Seðlabankann um nokkurra mánaða skeið til að fá gjaldeyrishöftunum breytt. Hann vill láta gera þau mannlegri, fólk sé ekki reitir í excel-skjali. 6.6.2011 05:00
Heildarkröfur á fjórða milljarð „Nú er loks búið að koma þessari skuldastöðu hafnarinnar fyrir horn. Þetta hefur tekið langan tíma og málið farið nokkra hringi,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. 6.6.2011 04:30
Til skoðunar að skattleggja skuldaniðurfellingu hjá Landsbanka Til skoðunar er í fjármálaráðuneytinu að krefja viðskiptavini Landsbankans um endurgreiðslu á vaxtabótum vegna endurgreiðslu sem þeir fá frá bankanum. Þá verður niðurfelling skulda hugsanlega sérstaklega skattlögð sem tekjur. 5.6.2011 20:15
Með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði Íslandsbanki var með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði í maí, með 27% hlutdeild, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Alls nam veltan 216,4 milljörðum króna sem er rúmlega 20 milljörðum meira en meðaltal þessa árs. 5.6.2011 11:08
Fjórar hópuppsagnir í maí kosta 81 vinnuna Vinnumálastofnun bárust 4 tilkynningar um hópuppsagnir í maí síðastliðnum. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í mannvirkjagerð, hugbúnaðargerð, upplýsingastarfsemi og sjávarútvegi. Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 81 manns. 5.6.2011 09:27
Tískukóngurinn Kevin Stanford klórar í bakkann Fyrir aðeins tveimur árum horfði tískukóngurinn Kevin Stanford fram á eitt stærsta persónulega gjaldþrot sögunnar í Bretlandi. Þessum fyrrum viðskiptafélaga Baugs og einum af stærstu skuldurum Kaupþings hefur hinsvegar tekist að klóra svo vel í bakkann að hann heldur enn hluta af fyrra veldi sínu. 5.6.2011 09:03
Wal-Mart blandar sér í slaginn um Iceland Breska stórmarkaðakeðjan Asda, sem er í eigu Wal-Mart stærstu verslunarkeðju heimsins, ætlar sér að leggja fram tilboð í Iceland Foods. 5.6.2011 08:14
Elsta kampavín heimsins sló verðmet Eftir að hafa legið í 170 ár á botni Eystrasalts var flaska af kampavíni slegin á 30.000 evrur eða 5 milljónir kr. á uppboði í Finnlandi. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir flösku af kampavíni í sögunni. 5.6.2011 07:41
Velta með gjaldeyri minnkar milli mánaða Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í maímánuði 2011 nam 5.343 milljónum kr. sem er 207 milljónum kr. minni velta en í apríl 2011. 5.6.2011 07:30
Veltan eykst og meðalverð hækkar á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 87. Þetta er nær sami fjöldi og nemur meðaltalinu á viku undanfarnar 12 vikur sem er 88 samningar. Hinsvegar hefur heildarveltan aukist og meðalupphæð á samning hefur hækkað. 5.6.2011 07:26
MP Banki hefur áhuga á að kaupa BYR MP banki hefur sett sig í samband við slitastjórn Byrs með það fyrir augum að kaupa sparisjóðinn. Forstjóri Byrs segir að fleiri sýni sparisjóðnum áhuga. 4.6.2011 19:30
Segja kjarasamning til þriggja ára í uppnámi Aðilar vinnumarkaðarins saka forystumenn ríkisstjórnarinnar um að ganga á bak orða sinna og segja kjarasamninga til þriggja ára í uppnámi. 4.6.2011 19:00
Icesave stöðvaði sölu á Íslandsbanka Áhugi á Íslandsbanka, sem er til sölu hjá skilanefnd Glitnis, slokknaði þegar niðurstaðan í Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslunni lá fyrir segir formaður skilanefndar Glitnis. 4.6.2011 18:31
Íslendingur semur við Rússa fyrir hönd WTO Íslendingur leiðir viðræður Alþjóðviðskiptastofnunarinnar við Rússa en leiðtogar G8 ríkjanna telja afar mikilvægt að Rússar gangi til liðs við stofnunina sem leggur grunninn að viðskiptum heimsins. 4.6.2011 13:00
Hugsanlega hægt að hraða afnámi hafta Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að fimmta endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun íslands feli í sér traustyfirlýsingu á efnahagsstjórnina. Hann útilokar ekki að hægt verði að hraða afnámi gjaldeyrishafta. 4.6.2011 12:06
AGS lýsa yfir áhyggjum af atvinnuleysi og hægri endurskipulagningu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir það áhyggjuefni að íslenskum stjórnvöldum hafi ekki tekist að minnka atvinnuleysi og hraða endurskipulagningu á skuldum fyrirtækja. 4.6.2011 10:13
Ferðamenn fjölmenntu í maí Rúmlega 37 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá Íslandi um Leifsstöð í maímánuði. Er það einhver mesti fjöldi ferðamanna sem heimsótt hefur landið í mánuðinum. Þetta kemur fram í tölum frá Ferðamálastofu. 4.6.2011 09:00
Eldsneytisverð lækkað um fimm krónur Verð á bensíni og dísilolíu lækkaði í gær hjá Atlantsolíu, Orkunni og ÓB. Öll félögin reka ómannaðar bensínstöðvar. 4.6.2011 07:30
Hægt að taka upp Kanadadollara á þremur mánuðum Það er hægt að taka upp kanadískan dollar á þremur mánuðum sem gjaldmiðil á Íslandi í stað krónu og upptaka hans mun ekki standa í vegi fyrir aðild að Evrópusambandinu, heldur auðvelda hana ef eitthvað er. Þetta segir lektor í hagfræði. 3.6.2011 19:09
Landsvirkjun kaupir til baka erlent skuldabréf Landsvirkjun hefur samþykkt að kaupa til baka erlent skuldabréf sem fellur á gjalddaga á árinu 2012 fyrir 40 milljónir svissneskra franka að nafnvirði eða 5,4 milljarðar króna. 3.6.2011 18:02
Síminn greiðir 750 milljónir til Seamobile Europe Síminn hf., dótturfélag Skipta hf., hefur undirritað samkomulag við Seamobile Europe um að ágreiningsmáli milli félaganna tveggja ljúki með því að Síminn greiði Seamobile Europe 4,5 milljónir evra eða tæplega 750 milljónir kr. , sem er umtalsvert lægri fjárhæð en niðurstaða gerðardóms Alþjóðaviðskiptaráðsins í París kvað á um. 3.6.2011 17:58
Fimmta endurskoðun efnahagsáætlunarinnar samþykkt Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti í dag fimmtu endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 3.6.2011 15:18
Samningar í höfn hjá Reykjaneshöfn og Reykjanesbæ „Mikil vinna er að baki þessari lausn og því í höfn mikilvægur áfangi í að styrkja stöðu hafnarinnar og gera hana færa um að standa undir þeim miklu verkefnum sem eru framundan á næstu árum tengt hafnsækinni starfsemi í Helguvík", segir Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar í tilkynningu frá bænum. 3.6.2011 13:02
Komu til Íslands í vor til að ræða einhliða upptöku Kanadadollars Bæði fjármálaráðuneyti Kanada og Seðlabanki Kanada eru sögð jákvæð fyrir einhliða upptöku kanadísks dollars á Íslandi. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að kanadískir embættismenn hafi komið til Íslands fyrr á þessu ári og rætt þessar aðgerðir við íslenska kaupsýslumenn. 3.6.2011 12:00
Noreg skortir yfir 60.000 manns í vinnu Yfir 60.000 manns skortir nú á vinnumarkaðinn í Noregi. Þetta er aukning upp á 19% frá því í fyrra. Langmestur er skorturinn á verkfræðingum en um 7.000 slíka skortir á vinnumarkaðinn í ár. 3.6.2011 10:39
Fjöldi ferðamanna í maí einn sá mesti frá upphafi Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 37.212 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í maí síðastliðnum og er um að ræða einn af fjölmennustu maímánuðum frá upphafi talninga. Fjöldi ferðamanna hefur þrívegis áður verið um og yfir 35 þúsund í maí eða árin 2007, 2008 og 2009. 3.6.2011 10:13
House of Fraser lýkur 46 milljarða skuldabréfaútgáfu Verslunarkeðjan House of Fraser hefur lokið við skuldabréfaútgáfu upp á 250 milljónir punda eða ríflega 46 milljarða kr. Með þessu hafa bankaskuldir keðjunnar verið endurskipulagðar. 3.6.2011 09:04
Gistinóttum fjölgaði um 25% í apríl Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 110.000 en voru 88.000 í sama mánuði árið 2010. Þetta er fjölgun um 25% milli ára. 3.6.2011 09:01
Markaðurinn telur 71% líkur á grísku þjóðargjaldþroti Matsfyrirtækið Moody´s hefur sökkt lánshæfi gríska ríkisins enn dýpra niður í ruslflokk. Moody´s lækkaði lánshæfið um 3 stig niður í Caa1 sem er aðeins fimm stigum frá gjaldþrotseinkunn. Markaðurinn telur 71% líkur á grísku þjóðargjaldþroti en skuldatryggingaálag Grikklands nálgast nú 1.500 punkta. 3.6.2011 08:27