Fleiri
Þriðjungur fyrirtækja er í viðvarandi mínus 1.6.2011 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Sólin skín hjá sérstökum saksóknara Skiptastjóri eignarhaldsfélagsins Sólin skín ehf., Páll Kristjánsson, hefur vakið athygli sérstaks saksóknara á starfsemi félagsins og sent gögn þar af lútandi til embættisins. 2.6.2011 11:22
Íslandsbanki og Arion 200 milljarða króna virði Skilanefnd Glitnis metur 95 prósenta hlut sinn í Íslandsbanka á 111 milljarða króna og skilanefnd Kaupþings metur 87 prósenta hlut sinn í Arion banka á 92 milljarða króna, sé miðað við fjárhagsyfirlit nefndanna, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. 2.6.2011 10:20
Segir Microsoft vera að kaupa Nokia Sérfræðingur í málefnum tæknifyrirtækja heldur því fram að Microsoft sé að kaupa farsímaframleiðslu Nokia fyrir tæplega 2.200 milljarða kr. Þetta kemur fram á vefsíðunni bgr.com en flestir fjölmiðlar Danmerkur birta fréttir um þetta í dag. 2.6.2011 08:58
Áfram kreppa Landsframleiðsla dróst saman um 0,5 prósent í Danmörku á fyrsta fjórðungi ársins, samkvæmt gögnum hagstofu landsins. Samdrátturinn skýrist helst af því að almenningur hélt fastar um budduna en áður en einkaneysla á tímabilinu dróst saman um 1,9 prósent. 1.6.2011 21:00
Úlfar Steindórs að eignast Toyota á Íslandi Viðræður um sölu á Toyota á Íslandi eru á lokastigi en Úlfar Steindórsson, forstjóri, freistar þess ásamt fjármálastjóra að kaupa félagið af Landsbankanum. 1.6.2011 18:39
Viðskiptajöfnuður óhagstæður um 48 milljarða Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 48,3 milljarða kr. á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 58,4 milljarða kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 24,5 milljarðar kr. og 2,2 milljarða kr. halli var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 70,5 milljarða kr. 1.6.2011 16:20
Þeir sem voru í Spkef geta nýtt sér úrræði Landsbankans Að gefnu tilefni vill Landsbankinn taka fram að þeir viðskiptavinir bankans sem áður voru í viðskiptum við Spkef, njóta sömu réttinda og aðrir þegar kemur að nýtingu þeirra leiða sem bankinn kynnti 26.maí til lækkunar skulda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. 1.6.2011 14:09
Hraðbönkum fækkaði um tuttugu prósent Hraðbönkum fækkaði í fyrra um fimmtung og þjónustustöðvum banka um 15 prósent. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika. Færri eru þó um hvern afgreiðslustað hér en gerist og gengur á Norðurlöndum, að meðaltali 2.500 íbúar á hvern þjónustustað, en 3.800 ytra. 1.6.2011 14:00
Starfsmenn Arion útskrifast frá Bifröst Nú um mánaðarmótin voru 46 starfsmenn Arion banka, sem starfa í útibúum bankans vítt og breitt um landið, brautskráðir úr sérhæfðu undirbúningsnámi í fjármálaráðgjöf frá Háskólanum á Bifröst. Námið er liður í samstarfsverkefni Arion banka og háskólans sem hófst haustið 2010. „Samstarfið er ekki síst merkilegt fyrir þær sakir að akademískum fræðum háskólans er fléttað saman við þekkingar- og reynsluheim bankans þannig að úr verður lifandi nám. Í ljósi góðrar reynslu má gera ráð fyrir að meira kveði að slíku samstarfi í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst. Fræðslustarf Arion banka hefur undanfarin ár verið víðtækt. Námið sem nú var að ljúka er afrakstur þarfagreiningar meðal starfsmanna og upp úr þeirri vinnu kom til samstarf við Háskólann á Bifröst sem þróaði tillögurnar áfram í samvinnu við bankann. Fyrr á árinu luku 300 starfsmenn bankans umfangsmiklu námi um vörur og kerfi sem alfarið fór fram í fjarnámi. „Það er óhætt að segja að mikill metnaður hafi verið lagður í verkefnið af hálfu bankans sem og Háskólans á Bifröst en verkefnið er það umfangsmesta sem skólinn hefur tekið að sér fyrir fyrirtæki í atvinnulífinu. Arion banki hefur unnið mikið brautryðjendastarf fyrir fyrirtæki á fjármálamarkaði og haft hugrekki til að fara nýjar leiðir við að koma námi á framfæri til starfsfólks, með blöndu af fjarnámi og vinnulotum á Bifröst" sagði Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst við útskriftarathöfnina. Námið er hluti af menntunarátaki sem efnt var til í kjölfar stefnumótunar bankans þar sem áhersla er lögð á getu starfsmanna til að veita fyrirtækjum og einstaklingum fjölbreytta fjármálaþjónustu með persónulegri þjónustu og sérsniðnum lausnum. 1.6.2011 13:40
Tæplega 2000 árangurslaus fjárnám Gert var árangurslaust fjárnám í hátt í tvö þúsund fyrirtækjum á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það er meira en tvöföldun frá árinu áður 1.6.2011 12:25
Spáir óbreyttum stýrivöxtum Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunardegi 15. júní. 1.6.2011 10:56
Endurreisn bankanna kostaði 190 milljarða Samtals nemur fjárbinding ríkissjóðs vegna endurreisnar viðskiptabankanna þriggja 190 milljörðum kr. Þetta kemur fram í greinargerð frá fjármálaráðherra um málið en eins og kunnugt er af fréttum hefur töluverð umræða orðið um hver þessi kostnaður ríkissjóðs hafi í raun verið. 1.6.2011 10:15
EIB stöðvar allar lánveitingar til Glencore Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) hefur stöðvað allar lánveitingar til hrávörurisans Glencore sem m.a. er stærsti eigandi Century Aluminium móðurfélags Norðuráls. 1.6.2011 09:37
Nýr hótel- og móttökustjóri á Grand Hótel Arnar Laufdal Ólafsson hefur tekið við starfi hótelstjóra á Grand Hótel Reykjavík og Gylfi Freyr Guðmundsson hefur verið ráðinn sem móttökustjóri hótelsins. 1.6.2011 09:29
Kínverskir milljónamæringar meir en milljón talsins Fjöldi kínverska milljónamæringa mælt í dollurum vex hröðum skrefum. Þeir eru orðnir yfir milljón talsins í fyrsta sinn í sögunni. 1.6.2011 09:23
Færa sig til Reykjanesbæjar Veffyrirtækið Kosmos&Kaos opnaði nýjar höfuðstöðvar í Reykjanesbæ á föstudag. Reykjanesbær hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir vef- eða hugbúnaðarfyrirtæki en stofnendur Kosmos&Kaos kunna vel við sig á nýjum stað og segja verkefnin hlaðast upp. 1.6.2011 09:00
Nýsköpunarsjóður rekinn með hagnaði í fyrra Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins var rekinn með 16 milljóna króna hagnaði árið 2010. Nýsköpunarsjóður seldi hlutafé í fjórum fyrirtækjum á árinu og var söluhagnaður af þeim 234 milljónir króna. 1.6.2011 08:52
Walker talinn líklegasti kaupandi Iceland Malcolm Walker forstjóri Iceland Foods verslunarkeðjunnar er talinn líklegasti kaupandi hennar en stefnt er að sölu keðjunnar í ár. Eins og fram hefur komið í fréttum virðist töluverður áhugi á því að kaupa Iceland og er 1,5 milljarður punda, eða rúmlega 280 milljarðar kr. nefndur sem kaupverðið. 1.6.2011 08:35
Tækifæri í gosinu Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Clara, sem búsettur er í San Fransico þekkir þá flesta sem tepptust hér. Eins og frumkvöðla er háttur sá hann tækifæri í svartnættinu. Hann bauð þeim að skoða skrifstofur Clara og blés síðan til lítillar frumkvöðlaráðstefnu undir yfirskriftinni TechCrunch Erupt. 1.6.2011 08:30
Sennilegt að IGS hafi misnotað markaðsstöðu sína Samkeppniseftirlitið telur sennilegt að IGS ehf. hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína í fraktflutningum á Keflavíkurflugvelli. Beinir eftirlitið þeim tilmælum til IGS að félagið gangi þegar til samninga við Cargo Express um fraktafgreiðslu. 1.6.2011 07:53
Nýr formaður ÍMARK Guðmundur Arnar Guðmundsson, vörumerkjastjóri Icelandair og pistlahöfundur Markaðarins um tíma, var kjörinn formaður Ímark, félags íslensks markaðsfólks, á aðalfundi félagsins 18. maí síðastliðinn. Hann tók við af Gunnari B. Sigurgeirssyni, markaðsstjóra Ölgerðarinnar. 1.6.2011 07:00
Nýjum verkefnum frestað Rakel Sveinsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Creditinfo, er hætt störfum hjá fyrirtækinu. Rakel Sveinsdóttir var framkvæmdastjóri Fjölmiðlavaktarinnar og leiddi sameiningu hennar við Lánstraust um áramótin 2007 og 2008. Eftir það varð hún framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Starfinu sagði hún lausu í febrúar og tók Hákon Stefánsson, framkvæmdastjóri í Þýskalandi, við því. 1.6.2011 06:00
Árið byrjar verr en það síðasta Þjónustujöfnuður við útlönd var neikvæður um 2,2 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins samkvæmt nýbirtum bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur á þjónustu nam 58,2 milljörðum, en innflutningur 60,4. 1.6.2011 06:00
Luku námi í fjármálaráðgjöf Alls 46 starfsmenn í útibúum Arion banka brautskráðust úr undirbúningsnámi í fjármálaráðgjöf nú um mánaðamótin. Námið er liður í samstarfsverkefni Arion banka og Háskólans á Bifröst sem hófst haustið 2010. Námið stunduðu starfsmenn að hluta til í gegnum fjarnámsvef skólans en einnig fór kennsla fram í vinnulotum á Bifröst og í höfuðstöðvum bankans. 1.6.2011 05:00